Síða 1 af 1

Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 01:34
af GuðjónR

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 01:37
af Gúrú
"SSDs should kill off traditional hard drives for all but older backups. "

Meira: For all but storage.

Ég er allavegana ekki að fara að borga 5x meira fyrir GBið til að backupa ljósmyndir og myndbönd til að það taki einhverjum mínútum styttri tíma. :shock:

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 01:39
af AciD_RaiN
uhhhh.... Ég get ekki alveg verið sammála því að þetta muni drepa Storage diska... Vonandi munu verðun bara lækka eitthvað. eða er ég eitthvað að misskilja?? :popeyed

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 01:41
af GuðjónR
Ef verðið er að hrynja svona þá er orðið ódýrara að framleiða þessa diska og þá styttist í stærri.
Ég væri alveg til í 2TB SSD :money

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 01:52
af appel
GuðjónR skrifaði:Ef verðið er að hrynja svona þá er orðið ódýrara að framleiða þessa diska og þá styttist í stærri.
Ég væri alveg til í 2TB SSD :money


Ég er alveg þokkalega ánægður með gömlu góðu HDD. Þeir eru stórir, 3 TB, og eru nógu hraðvirkir. Duga vel fyrir mig :)

PC tölvur eru ekki eins vinsælar og þær voru, og þeir sem hafa áhuga á að fá sér HDD (eftir 1-2 ár) er aðeins ákveðinn hópur tölvunörda. Auk þess ímynda ég mér að mun dýrara er að framleiða HDD heldur en SSD, fleiri hreyfanlegri hlutir og svona. Þannig að já, SSD er framtíðin og þeir eiga eftir að stækka. Þó tel ég að þeir verði ekki 3TB í náinni framtíð, og ekki innan 5 ára. Þannig að við munum þurfa fleiri smærri SSD diska til að geyma gögn á.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 02:11
af AntiTrust
Fyrir 5 árum var stærsti 3.5" HDDinn 750GB, og stærsti 2.5" diskurinn 160GB.

Mig grunar að með mikilli aukinni eftirspurn að það sé styttra í að SSD taki yfir sem storage diskar en við höldum.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 02:15
af Victordp
Jæja þá ætla ég að uppfæra tölvuna.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 02:17
af vikingbay
Ekkert nema æðislegar fréttir :)

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 02:32
af SolidFeather
Well, duh.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 10:37
af mind
Bara DV fyrirsagnir og fréttafrásögn :)

Framtíð SSD er enn óvituð, mörg óleyst tæknileg vandamál og eitt þeirra er stærð.
http://hardware.slashdot.org/story/12/02/16/2038221/ssd-latency-error-rates-may-spell-bleak-future

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 10:42
af GuðjónR
mind skrifaði:Bara DV fyrirsagnir og fréttafrásögn :)

Framtíð SSD er enn óvituð, mörg óleyst tæknileg vandamál og eitt þeirra er stærð.
http://hardware.slashdot.org/story/12/02/16/2038221/ssd-latency-error-rates-may-spell-bleak-future

hahaha já maður lærir af þeim bestu ;)

Annars þá er þessi frétt í ýktari kantinum, þetta er í raun frétt um verðlækkun hjá Intel en ekki almennt á SSD.
Og HDD koma til með að verða áfram í umferð um ókomin ár. Alla veganna þá er ekkert komið í dag sem leysir stóru diskana af hólmi.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 13:58
af Gúrú
mind skrifaði:Bara DV fyrirsagnir og fréttafrásögn :)

Framtíð SSD er enn óvituð, mörg óleyst tæknileg vandamál og eitt þeirra er stærð.
http://hardware.slashdot.org/story/12/02/16/2038221/ssd-latency-error-rates-may-spell-bleak-future


The researchers said MLC NAND-based SSDs won't be able to go beyond 4TB and TLC-based SSDs won't be able to scale past 16TB because of the performance degradation, so it appears the end of the road for SSDs will be 2024


Græt ekki yfir þessu. Svo hefði ég ekkert á móti 3.5" SSD staðli og þá á þessi rannsókn varla við lengur.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 17:05
af mind
Gúrú skrifaði:Græt ekki yfir þessu. Svo hefði ég ekkert á móti 3.5" SSD staðli og þá á þessi rannsókn varla við lengur.


Það myndi ekki leysa neitt, á þeim grundvelli væri hægt að halda því fram, að stærð veskja segði til um hversu ríkt fólk gæti orðið.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 17:18
af Gúrú
mind skrifaði:
Gúrú skrifaði:Græt ekki yfir þessu. Svo hefði ég ekkert á móti 3.5" SSD staðli og þá á þessi rannsókn varla við lengur.

Það myndi ekki leysa neitt, á þeim grundvelli væri hægt að halda því fram, að stærð veskja segði til um hversu ríkt fólk gæti orðið.


Er ég að misskilja þennan útdrátt sem að segir að þar sem að rafrásirnar þurfi að minnka til að meira pláss geti orðið (í þá 2.5" staðlinum)
þá hækki biðtíminn það mikið að það sé ekki raunhæft að fara fram yfir 4TB og 24TB eftir aðferðum?
Það segir sig sjálft að ef að ég get verið með 80GB 2,5" disk þá gæti ég bókstaflega tengt tvo þannig saman og fengið 160GB "disk", ég sé ekki hvað vandamálið er.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 18:04
af mind
Veit ekki til þess að rætt hafi verið um físíska stærð hlutarins í þessu.

Það segir sig sjálft að ef að ég get verið með 80GB 2,5" disk þá gæti ég bókstaflega tengt tvo þannig saman og fengið 160GB "disk", ég sé ekki hvað vandamálið er.

Og samkvæmt því geturðu keypt 6x 480GB diska í dag og verið með næstum 3TB disk.

Vandamálið er verðið. Til að ná því niður þarf framleiðslan að minnka (nm).

Ef þeir minnka framleiðsluna yfir visst verða diskarnir of hægir, ef þeir minnka ekki framleiðsluna lækkar verðið ekki.

Það er að minnsta kosti það sem ég las útúr þessu.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 19:42
af Hargo
Hvernig er með gagnabjörgun af þessum SSD diskum þegar þeir bila?

Vitið þið um einhver gagnabjörgunarforrit sérhæfð fyrir SSD eða jafnvel hardware SSD test til að prófa diskana?

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 19:54
af arnaru
Tæknin er nú til staðar, hægt er að fá revo drive upp í 3.2TB með 2800 read/write hraða :)
http://www.fcomputer.dk/hardware/harddi ... 3.2tb.html

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 20:12
af Gúrú
arnaru skrifaði:Tæknin er nú til staðar, hægt er að fá revo drive upp í 3.2TB með 2800 read/write hraða :)
http://www.fcomputer.dk/hardware/harddi ... 3.2tb.html


"9.8 cm x 24.2 cm x 1.7 cm" Ekki beint hefðbundinn 2.5" SSD. :)

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 20:22
af chaplin
Hargo skrifaði:Hvernig er með gagnabjörgun af þessum SSD diskum þegar þeir bila?

Vitið þið um einhver gagnabjörgunarforrit sérhæfð fyrir SSD eða jafnvel hardware SSD test til að prófa diskana?

Það bilaði hjá mér Intel diskur (ekki disknum að kenna) - það var ekki hægt að boota á honum aftur né komast í skjöld.

Re: Verðhrun á SSD yfirvofandi, HDD búnir að vera

Sent: Fim 19. Júl 2012 20:33
af arnaru
Gúrú skrifaði:
arnaru skrifaði:Tæknin er nú til staðar, hægt er að fá revo drive upp í 3.2TB með 2800 read/write hraða :)
http://www.fcomputer.dk/hardware/harddi ... 3.2tb.html


"9.8 cm x 24.2 cm x 1.7 cm" Ekki beint hefðbundinn 2.5" SSD. :)


Enda er þetta revo drive :) samt svipuð tækni á bakvið þetta :) Revo drive-ið tengist í PCI rauf ;)