Síða 1 af 1
Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:01
af vesley
Mamma býr í kjallaraíbúð og er farsímasambandið þar alveg merkilega lélegt. Maður þarf að standa á ákveðnum stöðum til að ná eitthverju sambandi og er yfirleitt slatti af truflunum og rugli.
Hver gæti verið ástæðan ?
Eitthvað sem ég get gert til að bæta sambandið eða eitthvað sem símafyrirtækið geta gert ?
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:02
af GuðjónR
Einfalda svarið, fá sér venjulegan heimasíma (fastlínu).
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:04
af Gúrú
Væri mjög til í að sjá gott svar í þessum þræði. GSM símasambandið inni hjá mér í nákvæmlega miðri Reykjavík á 2. hæð er verra en úti á sjó.
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:07
af tdog
Ástæðan er eðlisfræði. Farsímamerki fer ekki auðveldlega í gegnum mörg lög af steinsteypu – Sérstaklega ekki steinsteypu sem er vel járnbent.
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:14
af Pandemic
Bjóða enginn íslenskt fyrirtæki uppá PicoCells fyrir fólk sem er með lélegt farsímasamband inni hjá sér?
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:16
af cartman
Það væri kannski séns að setja upp gsm signal booster.
http://dx.com/s/gsm+signal+booster
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:19
af upg8
Ef símarnir væru ennþá með external loftnet þá væri þetta ekkert vandamál
Þú gætir prófað þetta
http://www.metacafe.com/watch/750707/ho ... 5_minutes/
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:21
af GuðjónR
Já um að gera að steikja heilann í sér aðeins meira
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 21:11
af upg8
Ég prófaði að opna android símann minn þar sem hann er ekki með external antenna, það væri allavega ekkert mál að bæta við loftnetið hjá mér með lítilli breytingu... Hvernig síma ert þú með?
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 21:13
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Já um að gera að steikja heilann í sér aðeins meira
Það hefur aldrei verið sannað að GSM merki steiki heila, minnir að ég hafi séð frétt um daginn þar sem þetta 'myth var busted'.
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 21:16
af vesley
GuðjónR skrifaði:Einfalda svarið, fá sér venjulegan heimasíma (fastlínu).
Það er ekkert mál, en vandamálið er að það hringir enginn í heimasíma í dag. Allavega ekki hjá mér og mínum.
Líka ef ég kíki til hennar þá þarf ég að hlaupa út til að ná góðu sambandi svo ég geti talað við manneskjuna í símanum.
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 21:17
af upg8
það eru reglulega rannsóknir sem benda til þess að þetta sé skaðlegt eða ekki skaðlegt... hefur oft með það að gera hver fjármagnar þær. Sígarettuframleiðendurnir voru nú duglegir við að fjármagna rannsóknir sem sýndu fram á að það væri ekkert slæmt að reykja...
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 22:59
af mainman
Það sem þig vantar er svokallaður "GSM Repeater" hann endurvarpar inn í íbúðinni signalinu að utan.
Nóg til af þessu og þú þarft ekki endilega að fá þér dýrasta unitið því sumt af þessu er svo öflugt að það er ætlað á staði eins og t.d. hvalfjarðargöngin.
http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R4 ... m+repeater
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 23:07
af vesley
mainman skrifaði:Það sem þig vantar er svokallaður "GSM Repeater" hann endurvarpar inn í íbúðinni signalinu að utan.
Nóg til af þessu og þú þarft ekki endilega að fá þér dýrasta unitið því sumt af þessu er svo öflugt að það er ætlað á staði eins og t.d. hvalfjarðargöngin.
http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R4 ... m+repeater
Ætli það sé eitthver hérna á klakanum sem selur svona ?
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Júl 2012 23:10
af mainman
Ég mundi þá byrja á því að tala við þá í "Íhlutum"
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Fim 19. Júl 2012 07:48
af Bassi6
Ég mundi byrja á að tala við Póst og Fjarskiptastofnun áður en þú pantar svona að utan, ég ætlaði að versla svipaða græju en þeir sögðu að það fengist ekki leyfi en sendu þeim bara mail með link á græjuna .
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Fim 19. Júl 2012 08:22
af natti
Bassi6 skrifaði:Ég mundi byrja á að tala við Póst og Fjarskiptastofnun áður en þú pantar svona að utan, ég ætlaði að versla svipaða græju en þeir sögðu að það fengist ekki leyfi en sendu þeim bara mail með link á græjuna .
Ef þið eigið einhverja tengiliði hjá fjarskiptafyrirtækjunum, þá getið þið líka spurt þau hvaða tæki þau eru að nota.
Ég veit t.a.m. að Vodafone hefur lánað fyrirtækjum svona repeater í ákveðnum tilfellum.
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Jún 2014 09:34
af fedora1
Afsakið að vekja upp gamlan þráð, en var þetta leyst ?
Er gsm signal booster löglegur hér á landi ?
Er einhver að selja svoleiðis hér ?
Re: Gríðarlega lélegt farsímasamband í kjallaraíbúð
Sent: Mið 18. Jún 2014 12:04
af vesley
fedora1 skrifaði:Afsakið að vekja upp gamlan þráð, en var þetta leyst ?
Er gsm signal booster löglegur hér á landi ?
Er einhver að selja svoleiðis hér ?
Það var bara stuttu seinna flutt í aðra íbúð og því get ég svarð játandi , vandamálið var "leyst"