Síða 1 af 1
Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Fös 13. Júl 2012 23:23
af vesi
Sælir vaktarar.
Var að fá verkjalyf sem heitir Tramól-L 100mg. Var að velta því fyrir mér hvort einhverjir hérna hafa notað þetta og gætu deilt með mér reynslu sinni af þeim,
Var erfitt að hætta á þeim, þó bæði doktor.is og actavis.is segji að þetta sé ekki ávanabyndandi þá kaupi ég það ekki allveg.
Hvernig virka þau í samanburði við önnur lyf, svo sem morfínskild verkjalyf eða þá hversu mykið af parkódín forte þarftu til að ná þessum,
Slátrar þetta nokkuð einhverjum líffærum í leiðinni.
svör vel þeginn en skítkast má vera annarstaðar.
Bestu kv,
Vesi
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Fös 13. Júl 2012 23:27
af GuðjónR
Hef aldrei heyrt um þetta lyf, en miðað við sérlyfjaskrá þá er þetta sterkt verjkalyf.
Lyfið.Af hverju ertu að taka svona sterk verkjalyf?
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Fös 13. Júl 2012 23:31
af vesi
Var í skurði á hné fyrir 3 vikum.,(4 á árinu) á sama kné. og verkjar enn djöfull í þetta!,
var einnmitt að spá í hversu sterkt þetta væri því hef aldrey heyrt um þetta áður líka.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Fös 13. Júl 2012 23:32
af mainman
Tramol (tramadol) er morfínlyf. þetta er sama eins og noblican og öll þessi lyf sem er mest verið að misnota.
Mjög gott sem verkjalyf en ég mundi ekki nota mikið af þessu og alls ekki lengi. Farðu bara akkurat eftir því sem stendur á miðanum á glasinu og hættu svo strax og þú þarft þetta ekki lengur.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Fös 13. Júl 2012 23:39
af vesi
mainman skrifaði:Tramol (tramadol) er morfínlyf. þetta er sama eins og noblican og öll þessi lyf sem er mest verið að misnota.
Mjög gott sem verkjalyf en ég mundi ekki nota mikið af þessu og alls ekki lengi. Farðu bara akkurat eftir því sem stendur á miðanum á glasinu og hættu svo strax og þú þarft þetta ekki lengur.
já sæll..
Hef hvergi séð þessu líkt við noblican..
Annað sem ég var að spá svo ég skilji þetta einhvernvegin..
Ef settur væri upp skali frá 0-10, og neðst væru venjuleg verkjalyf sem væru ekki lyfseðils skild, og efst væru þá mjög sterk lyf eins og morfín og contal...(man ekki) hvar væri þá parkodín forte og svo þetta Tramól-L
bestu kv.
vesi
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:08
af dandri
ekki taka meira en 400mg i einu. Það getur valdið flogum og likaminn nær ekki að vinna ur umfram 400mg.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:10
af vesi
dandri skrifaði:ekki taka meira en 400mg i einu. Það getur valdið flogum og likaminn nær ekki að vinna ur umfram 400mg.
eftir að hafa tekið 200mg þá fóru verkirnir að minka.. held að 150mg ættu allveg að duga, er ekki að leitast eftir að vera stoned af þessu. Er skíthræddur við allt þetta pilludrasl.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:14
af dandri
vesi skrifaði:dandri skrifaði:ekki taka meira en 400mg i einu. Það getur valdið flogum og likaminn nær ekki að vinna ur umfram 400mg.
eftir að hafa tekið 200mg þá fóru verkirnir að minka.. held að 150mg ættu allveg að duga, er ekki að leitast eftir að vera stoned af þessu. Er skíthræddur við allt þetta pilludrasl.
gott mal, opiates eru vist mjog avanabindandi.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:16
af AciD_RaiN
mainman skrifaði:Tramol (tramadol) er morfínlyf. þetta er sama eins og noblican og öll þessi lyf sem er mest verið að misnota.
Mjög gott sem verkjalyf en ég mundi ekki nota mikið af þessu og alls ekki lengi. Farðu bara akkurat eftir því sem stendur á miðanum á glasinu og hættu svo strax og þú þarft þetta ekki lengur.
Langar að bæta við þetta sem stenst allt að áhrifin af ofskömmtun af þessu lyfi eru ekki vímugefandi (ef þú finnur fyrir því þá er það í hausnum á þér) heldur finnur þú bara fyrir miklum kláða þegar áhrif lyfjanna minnka, svipað og í morfínráhvörfum. Ofskömmtun veldur líka hægðatregðu og þvagtregðu til lengri tíma (allavegana í mínu tilfelli) en ef þú notar þetta bara samkvæmt læknisráði í einhvern ákveðinn tíma þá áttu ekki að vera í erfiðleikum með að hætta á þeim.
Gangi þér bara vel með þetta
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:17
af vesley
Farðu eftir læknisráði.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:20
af dandri
btw helmingartiminn fyrir þessi lyf er bysna langur.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 00:26
af vesi
dandri skrifaði:btw helmingartiminn fyrir þessi lyf er bysna langur.
já hver er hann.. las einhverstaðar að virknin ætti að vera 12 tímar,,stenst það??
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 07:39
af Bioeight
Einn sem ég þekki þurfti að taka þetta í 6 mánuði. Það voru fráhvarfseinkenni í 3-4 daga þegar hann hætti á lyfinu en ekkert svakalegt. Fráhvarfseinkennin voru mun vægari fyrir Tramadolið heldur en Contalgin(morfín). Þannig að þetta er ekkert til að hafa hrikalegar áhyggjur af en samt áttu að fara varlega með þetta og nota á ábyrgan hátt.
Það er sama virka efnið(Tramadol) í Nobligan og Tramól.
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Lau 14. Júl 2012 09:52
af Nördaklessa
ég hef notað þetta lyf, fann ekki fyrir neinum frákvörfum, taktu bara ráðlagðan skammt
Re: Verkjalyf- Tramól-l
Sent: Sun 15. Júl 2012 11:26
af Viktor
Vil benda þér á að fráhvarfseinkenni geta magnast með of miklum áhyggjum, t.d. af fráhvörfum. Mundu bara að vera rólegur þó þú finnir fyrir fráhvörfum, þau fara líklega fyrr en þig grunar. Reyndu bara að fá nægilegan og reglulegan svefn er þú finnur fyrir þeim, passaðu þig bara að byggja ekki upp óþarfa kvíða.
Svo bara fara eftir læknisráði, þeir vita þetta allt, og myndu ekki skrifa upp á þetta ef þetta væri hættulegt. En alltaf skynsamlegt að bara.varan á!
Good luck.