Síða 1 af 1

endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 12:12
af maggik
Sælir.

Hefur einhver hérna reynslu af heyrnatólum sem henta vel til útivistar og líkamsræktar þ.e þola raka og svita þar sem ég hef náð að skemma öll heyrnatól sem ég hef átt vegna þess að þau endast ekki lengi í svitabaði :-"

Getið þið mælt með einhverjum sérstökum sem búa yfir endingu og góðum hljómgæðum. Þá er ég að tala um svona in ear unit eða sambærilegt sem hentar við hlaup og annað.


Vona að það sé í lagi að pósta þessu á koníakið, ég fann allavega ekki umræðuborð fyrir þetta.

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 12:48
af Viktor
x2, upp fyrir þessu, hef verið að pæla í ræktarheadphones

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 13:03
af addifreysi

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 14:31
af rapport
Mynd

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 14:32
af maggik
of lítil :guy

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 14:35
af Klemmi
Á svona gæja:
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=SHQ3000

Það mætti vera betri bassi í þeim en ég hef notað þetta í sundi og get því fullyrt um að þetta á að þola svitabað :)

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 14:46
af SolidFeather
Ég er búinn að nota eldri týpuna af þessum http://pfaff.is/Vorur/4456-cx-300-ii.aspx í ræktinni og hlaupum í 5 ár eflaust. Sviti og chalk sem fer á þau reglulega og þau svínvirka og svo er fínn hljómur í þeim.

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 15:11
af Moquai
SolidFeather skrifaði:Ég er búinn að nota eldri týpuna af þessum http://pfaff.is/Vorur/4456-cx-300-ii.aspx í ræktinni og hlaupum í 5 ár eflaust. Sviti og chalk sem fer á þau reglulega og þau svínvirka og svo er fínn hljómur í þeim.


Ég á akkurat þessi, virka alveg suddalega vel, en bara leiðinlegt að ég kem þeim ekkert hærra en maxið :(

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 16:39
af worghal
Eitt orð, sennheiser!
Er buinn ad eiga somu headsettin i um 6 ar og notad thau i ollum vedrum og hljomurinn hefur haldist rosalega godur :D :happy

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 19:13
af maggik
Ég er búin með 2x cx-300 (eldri týpan af þeim sem var póstað hér að ofan), hljómuðu frábærlega en þau voru ónýt eftir rúman mánuð í báðum tilfellum sem mér þótti grátlegt þar sem þau hljómuðu svo vel og kostuðu smá aur.

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 20:15
af SolidFeather
Hvað var að skemmast?

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Þri 10. Júl 2012 22:32
af dori
Ég átti CX-300 mjög lengi og notaði þau mikið (daglega í útivinnu 2 sumur o.fl.). Var ekkert að passa of vel uppá þau en þau klikkuðu aldrei. Helsti gallinn við þau er hvað þau eru lítil enda týndi ég mínum alltof fljótt.

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Mið 11. Júl 2012 00:26
af CurlyWurly
Fyrst hann spurði um in-ear headphones í byrjun langar mig að benda á að SPORT serían hjá sennheiser/adidas inniheldur fleiri valmöguleika en höfuðspöngina. Hérna eru tildæmis "in-ear" úr þeirri seríu. Líka til önnur svipuð apple heyrnatólunum og svo geturu fengið "i" útgáfur af þessu fyrir örlítinn auka aur sem bjóða upp á góða "samvinnu" við Ipod, Iphone o.s.frv.+

Á ekki svona sjálfur en hef fulla trú á þessu og er að skoða að fá mér svona, annars mæli ég með því að þú fáir þér ekkert annað en sennheiser! Besta performance/price ratio sem ég veit um hjá þeim.

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Mið 11. Júl 2012 05:21
af mercury
þetta er ekkert flókið. Sennheiser. kaupi yfirleitt ekki annað.

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Mið 11. Júl 2012 05:47
af Mumminn
Búnn að nota þessi í 4ár núna í ræktina og vinnuna, þrusu sound í þeim og þægileg.

http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 2,509.aspx

Re: endingargóð heaphones.

Sent: Mið 11. Júl 2012 08:13
af maggik
SolidFeather skrifaði:Hvað var að skemmast?


Í báðum tilvikum dó hljóðið í öðrum hátalaranum en þá var ég að hlaupa, þau höfðu dottið úr og sviti lekið inn í eyrað.

Ég er samt rosalega hrifin af Sennheiser og það kemur sterklega til greina að fá mér svoleiðis aftur, ætli það verði ekki sport serían þar sem þessir buds hafa ekki reynst mér vel.