Síða 1 af 2

Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 12:32
af bulldog
Ég er með tölvuna mína sértryggða vegna þess að hún er yfir þeim kostnaðarmörkum sem eru fyrir einstaka hlut í heimilistryggingunum. Eru ekki fleiri hérna sem eru með svona tryggingu ?

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 12:50
af AntiTrust
Hvar ertu tryggður?

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:14
af bulldog
hjá vís.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:22
af AntiTrust
bulldog skrifaði:hjá vís.

Og hver eru tryggingarmörk per einstaka hlut?

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:38
af dori
Og hvað kostar svona trygging?

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:40
af bulldog
það þarf að vera með verðmat frá fagmönnum s.s. tölvufyrirtæki sem er með verkstæði og það eru engin mörg heldur bara hvað það er metið hátt og svo fer það eftir sjálfsábyrgð hvað tryggingin er há.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:51
af dori
bulldog skrifaði:það þarf að vera með verðmat frá fagmönnum s.s. tölvufyrirtæki sem er með verkstæði og það eru engin mörg heldur bara hvað það er metið hátt og svo fer það eftir sjálfsábyrgð hvað tryggingin er há.

Er það skynsamlegt að tryggja svona hluti? Ég hélt að líkindafræðilega borgaði sig aldrei að tryggja.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:56
af AntiTrust
dori skrifaði:

Getur svosem verið rétt, fer samt eftir heimilisaðstæðum og flr. faktorum hvernig breytan er.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 14:59
af dori
Vissulega. Enda vill maður ekki endilega treysta líkindfræðinni (hljómar kannski of líkt heppni/óheppni fyrir suma).

En það er alltaf gott að hafa í huga að tryggingafélög myndu ekki virka ef þetta virkilega borgaði sig (einhvernvegin græða þau) og svona. En auðvitað eru skyldutryggingar sem maður þarf að taka auk þess sem það er fínt uppá "peace of mind" að vera með tryggingu á hlutum sem maður sér ekki fram á að ráða við að skipta út.

Bara að velta þessu upp :)

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 15:09
af bulldog
í heimilistryggingunni sem ég er með þá er hvert einstakt tjón að hámarki 412 þús en tölvan mín ásamt fylgihlutum er mun meira virði...

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 15:14
af Daz
dori skrifaði:
bulldog skrifaði:það þarf að vera með verðmat frá fagmönnum s.s. tölvufyrirtæki sem er með verkstæði og það eru engin mörg heldur bara hvað það er metið hátt og svo fer það eftir sjálfsábyrgð hvað tryggingin er há.

Er það skynsamlegt að tryggja svona hluti? Ég hélt að líkindafræðilega borgaði sig aldrei að tryggja.

Ef að þú getur borgað hlutinn sem skemmist (og hefði verið tryggður) án þess að finna fyrir því fjárhagslega, þá þarftu ekki að tryggja. Ég tryggi ekki skóna mína, því ég á fyrir því að kaupa nýja á 5-20 þúsund. Ég tryggi húsið mitt, því ég á ekki fyrir því að leggja út 20-30 milljónir.
Augljóslega eru tryggingar lottó sem þú tapar í, s.s. í heildina litið þá græðir tryggingarfélagið peninga og viðskiptavinirnir tapa peningum. En þú getur "unnið" (lent í tjóni) í þessu lottói og ef þú keyptir ekki miða (tryggingu) er það frekar leiðinlegt.

bulldog skrifaði:í heimilistryggingunni sem ég er með þá er hvert einstakt tjón að hámarki 412 þús en tölvan mín ásamt fylgihlutum er mun meira virði...

Þannig að ef það er brotist inn hjá þér, þá færðu ekki hærri bætur en 412 þúsund? Eða er það hver einstakur hlutur? Tölvukassinn og skjárinn eru mismunandi hlutir t.d. Þú telur tjónið fram í pörtum.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 15:38
af AntiTrust
Ertu samt viss um að þetta sé að borga sig hjá þér?

Sýnist í fljótu bragði vélin þín vera í kringum 450þ.kr. virði m.v. að þú kaupir mestallt hjá buy.is (sem mig grunar að þú gerir). Á 6 mánaða fresti fellur vélin um 10% í tryggingarverðmæti, og því þarf ekki nema að líða hálft ár þar til tryggingarnar bæta þér líklega vélina að mestu leyti, og þá á eftir að taka tillit til aukakostnaðar vegna tryggingarinnar sjálfrar.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 15:52
af Daz
AntiTrust skrifaði:Ertu samt viss um að þetta sé að borga sig hjá þér?

Sýnist í fljótu bragði vélin þín vera í kringum 450þ.kr. virði m.v. að þú kaupir mestallt hjá buy.is (sem mig grunar að þú gerir). Á 6 mánaða fresti fellur vélin um 10% í tryggingarverðmæti, og því þarf ekki nema að líða hálft ár þar til tryggingarnar bæta þér líklega vélina að mestu leyti, og þá á eftir að taka tillit til aukakostnaðar vegna tryggingarinnar sjálfrar.

Gæti snúist um sjálfsábyrgð + iðgjöld. Ef sjálfsábyrgðin er há í í heimilistryggingunni og iðgjöldin á tölvunni lægri en það sem það myndi kosta að lækka sjálfsábyrgðina, þá gæti þetta svosem verið möguleiki.

Ég tryggði fartölvuna mína meðan ég var í skóla og mikið á ferðinni, sá ekki eftir því þegar hún brotnaði. Sé enga sérstaka ástæðu til að tryggja tölvubúnaðinn minn núna þar sem ég er lítið á ferðinni með minn eiginn búnað og þjáist ekki af þeirri kvöl að eiga tölvu sem kostar meira en hámarksbótafjárhæðin mín.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 18:47
af bulldog
antitrust :

ég held að þú þurfir að reikna það aðeins betur .....

Dell 30" ultrasharp skjárinn kostar einn og sér 250 þús.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 18:50
af worghal
bulldog skrifaði:antitrust :

ég held að þú þurfir að reikna það aðeins betur .....

Dell 30" ultrasharp skjárinn kostar einn og sér 250 þús.

en hann er ekki partur af tölvunni og er því einn og sér og ætti að vera undir heimilistryggingunni

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 18:52
af bulldog
þetta er tölvan með mikið af aukabúnaði þetta er metið sem heild.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 18:54
af worghal
þetta ætti ekki að vera metið sem heild þar sem þetta er jaðarbúnaður sem getur einnig tilheyrt öðrum hlutverkum...

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 18:55
af bulldog
ég tryggði þetta samt allt saman, lét tölvuverslun meta tölvuna mína.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 20:35
af jonbk
bulldog skrifaði:antitrust :

ég held að þú þurfir að reikna það aðeins betur .....

Dell 30" ultrasharp skjárinn kostar einn og sér 250 þús.

TVÖHUNDRUÐOGFIMMTÍUÞÚSUND !?!?! heilagur andskoti !

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 20:44
af Daz
bulldog skrifaði:þetta er tölvan með mikið af aukabúnaði þetta er metið sem heild.

Ekki fyrir heimilistrygginguna. Þá er þetta:
Skjár
tölvukassi
lyklaborð
mús
hátalarar
aðrir aukahlutir.
(Þessvegna gæti þetta fallið undir heimilstrygginguna hvert fyrir sig).

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 21:10
af appel
Gaman að vera með svona dýra hluti og auglýsa á netinu.

Og hvar býrðu aftur?

:face

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 21:28
af urban
dori skrifaði:
bulldog skrifaði:það þarf að vera með verðmat frá fagmönnum s.s. tölvufyrirtæki sem er með verkstæði og það eru engin mörg heldur bara hvað það er metið hátt og svo fer það eftir sjálfsábyrgð hvað tryggingin er há.

Er það skynsamlegt að tryggja svona hluti? Ég hélt að líkindafræðilega borgaði sig aldrei að tryggja.

líkindafræðilega borgar sig náttúrulega alls ekki að tryggja.
en það borgar sig líkindafræðilega heldur ekki að vera til :D

en svona án gríns, þá hef ég aldrei séð eftir krónu sem að ég hef borgað í tryggingar.
hef lennt í einu stóru tjóni hjá mér sem að hefur borgað líklegast 80 - 90 % af öllu því sem að ég hef borgað í tryggingar hingað til.

versta er finnst mér þegar að fólk er ótryggt, lendir í bruna og fer síðan jafnvel að væla í fjölmiðlum og það er hafin söfnun fyrir því.
mér dettur líka ekki til hugar að gefa í svoleiðis safnanir.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 21:45
af AntiTrust
bulldog skrifaði:antitrust :

ég held að þú þurfir að reikna það aðeins betur .....

Dell 30" ultrasharp skjárinn kostar einn og sér 250 þús.

Held ég geti alveg fullyrt að allur jaðarbúnaður er tryggður sér, svo mikið veit ég eftir að hafa verið að meta ónýta hluti fyrir tryggingarfélög.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 21:59
af appel
Maður tryggir það sem maður getur ómögulega bætt sjálfur.

Maður tryggir húsnæði sitt, innbú sitt, og bílinn, og svo ef maður er með fjölskyldu sem reiðir sig á innkomu manns, þá tryggir maður líf sitt.

Að tryggja tölvuskjá... svolítið pointless. Ef honum er stolið þá ertu pissed, en það er tjón sem þú getur bætt sjálfur. Færð þér annan ódýran 19" skjá á meðan þú safnar þér fyrir nýjum stórum og flottum.

Re: Tölvutryggingar

Sent: Mán 09. Júl 2012 23:01
af bulldog
það er þitt mat Árni en ekki mitt.