Síða 1 af 1
Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 20:24
af vesley
Nú er stefnan að fara á bestu útihátíðina á dodge ram van.
Bíllinn er í skoðunarhæfu ástandi og virkar eins og hann á að gera.
Þar sem mótorinn er að fara í annan bíl í sumar/haust þá er hann ekki á númerum.
Ég og vinir mínir vorum hinsvegar að spá í að fara með hann á Bestu og borgar það sig ekki að setja hann beint á númer. (50þús kall ca)
En ég sá að það er hægt að skrá bíl á skammtímanúmer.
Ég veit hinvegar ekki alveg hvernig þau númer virka .
Er hægt að fara með bílinn hvert sem er í umferðinni ? eins og á Bestu.
Hvernig er það með tryggingar fyrir tjóni ?
Er eitthver önnur leið að fá bílinn á Bestu á löglegann máta sem er ódýrari en 50þús kall?. (ekki séns að draga þetta flykki )
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 20:43
af Klaufi
Dafuq, sundurliðaðu þennan 50þús kall plox.
Skammtímaskráning, áttu þá við rauð númer?
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 20:44
af vesley
Klaufi skrifaði:Dafuq, sundurliðaðu þennan 50þús kall plox.
Erum 3 á bíl með 360 mótor. sem gerir ca 15þús í bensín að minnsta kosti.
Og hann fer strax í niðurrif eftir hátíðina þannig þessi 50þús kall hljómar ekki spennandi
http://www.us.is/page/3_10_10
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 20:45
af Klaufi
Fannst eins og þú værir að segja að það kostaði 50k á að koma honum á númer aftur
*edit*
Stórefa að þú fáir að setja hann á rauð númer.
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 20:49
af vesley
Klaufi skrifaði:Fannst eins og þú værir að segja að það kostaði 50k á að koma honum á númer aftur
*edit*
Stórefa að þú fáir að setja hann á rauð númer.
Ég efast um það líka en hef heyrt sögur af fólki að keyra ótrúlegustu bíla á þessum númerum langar vegalengdir án vesens.
Bíllinn verður nefnilega að vera tryggður ef hann fer á þessi númer.
Ef hann ætti að vera á númerum eftir hátíðina þá væri maður löngu búinn að punga þessum 50þús kall út.
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 20:58
af Danni V8
Rauð númer eru aðeins fyrir nýskráða bíla á tímabilinu á meðan númeraplötur eru ekki tilbúnar. Það eru engin skammtímanúmer í boði fyrir bíla sem eru nú þegar með skráningu og hafa verið á númerum, þá er það algjörlega vandamál eigandans ef að númeraplöturnar eru ekki til lengur.
En það er ekkert mál að setja bílinn á númer aftur. Hringir í tryggingarfélagið og biður þá um að skrá hann tryggðan. Ef að númeraplöturnar eru ennþá til, farðu þá bara og sæktu þær. Ef þú sækir þær fyrir lokun á morgun þá ættirðu ekki að þurfa að borga næsta tímabil heldur bara út þetta tímabil, sem eru 3 dagar ss. klink.
Síðan ferðu á bílnum á Bestu. Þegar þú kemur heim leggurðu númerin inn, hringir í tryggingarfélagið og lætur taka trygginguna af aftur og þú ert golden. Síðan muntu fá rukkun á þig frá ríkinu fyrir bifreiðagjöld þann tíma sem að bíllinn sem var í notkun, ekki meira en það.
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 21:24
af vesley
Danni V8 skrifaði:Rauð númer eru aðeins fyrir nýskráða bíla á tímabilinu á meðan númeraplötur eru ekki tilbúnar. Það eru engin skammtímanúmer í boði fyrir bíla sem eru nú þegar með skráningu og hafa verið á númerum, þá er það algjörlega vandamál eigandans ef að númeraplöturnar eru ekki til lengur.
En það er ekkert mál að setja bílinn á númer aftur. Hringir í tryggingarfélagið og biður þá um að skrá hann tryggðan. Ef að númeraplöturnar eru ennþá til, farðu þá bara og sæktu þær. Ef þú sækir þær fyrir lokun á morgun þá ættirðu ekki að þurfa að borga næsta tímabil heldur bara út þetta tímabil, sem eru 3 dagar ss. klink.
Síðan ferðu á bílnum á Bestu. Þegar þú kemur heim leggurðu númerin inn, hringir í tryggingarfélagið og lætur taka trygginguna af aftur og þú ert golden. Síðan muntu fá rukkun á þig frá ríkinu fyrir bifreiðagjöld þann tíma sem að bíllinn sem var í notkun, ekki meira en það.
Mér var sagt að bifreiðagjöldin myndu vera rukkuð fullu gjaldi og svo endurreiknuð í lok árs.
Það sagði allavega eigandinn á Dodge-inum eftir símtal í Umferðastofu.
Re: Skammtímaskráning á bíl?
Sent: Fim 28. Jún 2012 23:05
af Danni V8
vesley skrifaði:Danni V8 skrifaði:Rauð númer eru aðeins fyrir nýskráða bíla á tímabilinu á meðan númeraplötur eru ekki tilbúnar. Það eru engin skammtímanúmer í boði fyrir bíla sem eru nú þegar með skráningu og hafa verið á númerum, þá er það algjörlega vandamál eigandans ef að númeraplöturnar eru ekki til lengur.
En það er ekkert mál að setja bílinn á númer aftur. Hringir í tryggingarfélagið og biður þá um að skrá hann tryggðan. Ef að númeraplöturnar eru ennþá til, farðu þá bara og sæktu þær. Ef þú sækir þær fyrir lokun á morgun þá ættirðu ekki að þurfa að borga næsta tímabil heldur bara út þetta tímabil, sem eru 3 dagar ss. klink.
Síðan ferðu á bílnum á Bestu. Þegar þú kemur heim leggurðu númerin inn, hringir í tryggingarfélagið og lætur taka trygginguna af aftur og þú ert golden. Síðan muntu fá rukkun á þig frá ríkinu fyrir bifreiðagjöld þann tíma sem að bíllinn sem var í notkun, ekki meira en það.
Mér var sagt að bifreiðagjöldin myndu vera rukkuð fullu gjaldi og svo endurreiknuð í lok árs.
Það sagði allavega eigandinn á Dodge-inum eftir símtal í Umferðastofu.
Jæja, fyrst þau verða rukkuð að fullu þá borgar þú bara á fullu. Það sem ég gerði þegar ég átti inni Bifreiðagjöld var að eftir að ég lagði inn númerin og það var komin inneign á kennitöluna mína í ökutækjaskrá þá fór ég til Sýslumannsins í Keflavík og fékk mismuninn endurgreiddan. Umferðarstofa getur ekki endurgreitt þetta enda fer peningurinn beint frá þeim og í ríkið. Þess vegna verður að fara til Sýslumanns til að fá þetta endurgreitt áður en þetta er endureiknað í lok tímabilsins.