Síða 1 af 1
Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Lau 23. Jún 2012 21:35
af Yawnk
Sælir, ég er að leita að fyrirtæki íslenskt/óíslenskt, sem selur annað hvort af þessu, ég veit af Tómstundahúsinu, en það er andskoti dýrt fyrir minn smekk.
Ekki vita Vaktmenn um einhverja enska síðu sem selur þessar vörur og senda til landsins?
Væri Ebay eða Amazon minn besti kostur?
Fyrirfram þakkir!
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Lau 23. Jún 2012 23:17
af lukkuláki
Hef ekkert vit á þessu en veit um eina íslenska
http://tactical.is/
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Lau 23. Jún 2012 23:21
af vesi
minnir að vdo í borgartúni hafi verið að selja eithvað svona dót..
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Lau 23. Jún 2012 23:26
af Yawnk
Takk, ég vissi af Tactical, þeir eru bara með frekar lítið úrval
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Lau 23. Jún 2012 23:29
af AndriKarl
Gætir athugað hér með notaðar flugvélar.
http://frettavefur.net/Forum/
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Sun 24. Jún 2012 00:39
af hagur
Hobbyzone.com og towerhobbies.com senda báðar til Íslands og eru mjög stórar á þessu sviði.
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Sun 24. Jún 2012 01:59
af Klaufi
Skelltu þér frekar á
heimasíðu Smábílaklúbbsins þeir ættu að hafa betri svör.
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Sun 24. Jún 2012 04:38
af MatroX
ég er með eina fjarstýrða flugvél með öllu sem gæti farið ef ég fæ nógu gott tilboð
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Sun 24. Jún 2012 09:36
af audiophile
Verslaðu bara beint af Towerhobbies.
Verðin í Tómstundahúsinu ná bara engri átt. Var að skoða verða á Savage Flux og það er fokking 167þ! Kostar $670 á Towerhobbies.
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Sun 24. Jún 2012 11:35
af Yawnk
Takk fyrir hjálpina, skoða þetta
Re: Fjarstýrðir bátar/flugvélar
Sent: Sun 24. Jún 2012 11:36
af Daz
audiophile skrifaði:Verslaðu bara beint af Towerhobbies.
Verðin í Tómstundahúsinu ná bara engri átt. Var að skoða verða á Savage Flux og það er fokking 167þ! Kostar $670 á Towerhobbies.
Sem að með sendingarkostnaði frá síðunni, vsk, tollskýrslugerð og 10% tolli (ágiskun, nennti ekki að finna réttan tollflokk) er 157 þúsund. Ef tollurinn er 20% þá er orðið dýrara að panta að utan.