Síða 1 af 1

Finna password á Skype

Sent: Lau 23. Jún 2012 16:46
af IL2
Ég er með notendanafn á Skype sem ég vil helst halda. Vandamálið er að ég man ekki eða finn ekki út úr því hvaða e-mail ég notaði á sínum tíma og því getur eða vill Skype ekki hjálpa mér.

Ég er búinn að reyna þau password sem mér dettur í hug og ekkert gengur. Einhverjar hugmyndir?

Re: Finna password á Skype

Sent: Lau 23. Jún 2012 16:51
af hfwf
Soldið mikið vandamál, auðveldast væri að stofna nýjan aðgang.

Re: Finna password á Skype

Sent: Lau 23. Jún 2012 16:57
af rattlehead
Getur skoðað profílinn þinn á öðrum aðgangi. þar að segja ef þú hafðir gert email sýnilegt öðrum.

Re: Finna password á Skype

Sent: Lau 23. Jún 2012 17:16
af Gúrú
rattlehead skrifaði:Getur skoðað profílinn þinn á öðrum aðgangi. þar að segja ef þú hafðir gert email sýnilegt öðrum.


Helst að þú rifjir upp hverjum þú hefur addað og færð þá til að skoða hann. Ólíklegt að það sé á alveg 'public' en mjög líklegt að það sé á 'friends'.

Re: Finna password á Skype

Sent: Lau 23. Jún 2012 19:38
af agust1337
Þú getur reynt að skrifa inn þau email sem þú heldur að þú hafir notað við Skypeið þitt,

https://login.skype.com/account/password-reset-request?mode=user

https://login.skype.com/account/password-reset-request

Þar til að Skype segir að það sé í servernum þeirra.

Re: Finna password á Skype

Sent: Sun 24. Jún 2012 16:06
af IL2
hfwf. Ég á nýja aðganga.

rattelhead. Klikkaði á því

agust1337 gerði það


Kom í ljós að þetta var á eldgömlu símnet e-maili. Ég talaði við síman og ætla að stofna nýtt e-mail með sama nafni þar sem það er laust. Þá ætti ég að geta fengið póst frá Skype á það.

Það ætti að virka. Þetta er svo sem of mikið vandamál en ég vil halda þessu notendanafni ef ég get

Ég var svona að leita meira að einhverju ólöglegu héðan en ef þetta reddast svona þá er ég ánægður.

Re: Finna password á Skype

Sent: Mán 25. Jún 2012 16:46
af Selurinn
IL2 skrifaði:Ég var svona að leita meira að einhverju ólöglegu héðan en ef þetta reddast svona þá er ég ánægður.


Why?

Til þess að vera hipp og kúl? :skakkur

Re: Finna password á Skype

Sent: Mán 25. Jún 2012 16:51
af jericho
IL2 skrifaði:Ég var svona að leita meira að einhverju ólöglegu héðan...


þá ertu ekki á réttum stað félagi

Re: Finna password á Skype

Sent: Mán 25. Jún 2012 18:00
af IL2
Nei, ég veit að það er ekki verið að mæla fyrir einhverju ólöglegu hérna á Vaktinni. Það er hinsvegar erfitt, ef ekki ómulegt að finna sitt eigið password hjá Skype ef maður af einhverjum ástæðum týnir því. Einfalda lausnin er að stofna nýjan aðgang en ég vill halda þessum.

Re: Finna password á Skype

Sent: Mán 25. Jún 2012 19:27
af Frost
IL2 skrifaði:Nei, ég veit að það er ekki verið að mæla fyrir einhverju ólöglegu hérna á Vaktinni. Það er hinsvegar erfitt, ef ekki ómulegt að finna sitt eigið password hjá Skype ef maður af einhverjum ástæðum týnir því. Einfalda lausnin er að stofna nýjan aðgang en ég vill halda þessum.


Ekki ef þú manst emailið þitt ;)

Re: Finna password á Skype

Sent: Þri 26. Jún 2012 00:05
af IL2
En ef það klikkar líka?