Síða 1 af 1
Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 09:25
af Victordp
Er alltaf að lenda í svona þegar að ég er að spila myndbönd í stærri glugganum og ef að ég spila næsta video á playlist í fullscreen.
Hefur einhver lent í svona, ef já HVERNIG LAGA ÉG ?
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 09:35
af Xovius
Ég lenti mikið í þessu líka, virðist bara tengjast þessari World of Tanks auglýsingu sem poppar upp. Ég náði bara í adblocker (
https://chrome.google.com/webstore/deta ... kkbiglidom) og notaði það til þess að loka á auglýsingar á youtube, fannst það nú samt leiðinleg lausn því að ég hef svosem ekkert á móti auglýsingum sem styðja eigendur síðna :/ (enda er ég bara með þetta í gangi á youtube.com)
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 09:49
af capteinninn
Ég skrolla alltaf bara upp eða niður og þá lagast þetta, gerist nánast alltaf þegar ég stækka youtube gluggann
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 12:31
af vikingbay
Gerist stundum hjá mér líka sama hvort ég nota minnsta, mid eða fullscreen..
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 12:49
af Varasalvi
Gerist hjá mér líka. Þetta gerist bara ef World of Tanks auglýsingin kemur, hef fylgst með því til að staðfesta það.
Annars næ ég að komast framhjá þessu með því að hægri clicka á myndbandið og velja "Pop out". Það er ekki beint lausn, en þú getur notað það á meðan þú finnur alvöru lausn. Annars er ég bara býða eftir að þessi auglýsing hætti að koma.
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 14:55
af Xovius
Maður gæti svosem hreinsað cookies allt og farið að leita að smella á svona 30 síður um eitthvað allt annað til þess að fá aðrar auglýsingar en ég held reyndar að það gæti verið að google tengji öll þessi myndbönd sem ég horfi á um tölvur og leiki við þessa auglýsingu
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 15:15
af upg8
Kemur þetta í hvaða browser sem er? Ég hef aldrei lent í þessu :/
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 15:17
af dori
upg8 skrifaði:Kemur þetta í hvaða browser sem er? Ég hef aldrei lent í þessu :/
Hefur verið að bögga mig í nokkrar vikur í Chrome á OSX. Hef ekki fundið neina leið til að laga þetta. Þessi auglýsing sem aðrir hafa bent á virðist tengjast þessu. Ég veit ekki hvort það sé það eina sem kallar þennan bögg fram samt.
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 15:18
af Xovius
upg8 skrifaði:Kemur þetta í hvaða browser sem er? Ég hef aldrei lent í þessu :/
Ekki viss, er að nota chrome...
En færð þú einhvertíman þessa World of Tanks auglýsingu?
Annars hefur adblock fixið mitt virkað hingað til
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 15:34
af Varasalvi
upg8 skrifaði:Kemur þetta í hvaða browser sem er? Ég hef aldrei lent í þessu :/
Er að gerast fyrir mig í Firefox.
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 16:47
af darkppl
leikurinn var of frekur við youtube svo að hann hirti sitt svæði á myndbandinu... djók en þegar ég lendi í þessu exita ég chrome og fer aftur á myndbandið og þetta lagast
Re: Tillt á youtube
Sent: Fös 22. Jún 2012 20:09
af Victordp
Xovius skrifaði:Ég lenti mikið í þessu líka, virðist bara tengjast þessari World of Tanks auglýsingu sem poppar upp. Ég náði bara í adblocker (
https://chrome.google.com/webstore/deta ... kkbiglidom) og notaði það til þess að loka á auglýsingar á youtube, fannst það nú samt leiðinleg lausn því að ég hef svosem ekkert á móti auglýsingum sem styðja eigendur síðna :/ (enda er ég bara með þetta í gangi á youtube.com)
Setti bara upp adblocker nuna kemur aldrei upp comercial