Síða 1 af 1

Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:32
af GuðjónR
Ótrúlegt video ... það þýðir ekkert að selja síma sem hafa ekki lyklaborð, hvernig á fólk að senda SMS :face

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:34
af Bjosep
Myndi það ekki vera Steve Ballmer ... þar sem Steve Jobs er hættur að hlæja :guy

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:38
af AntiTrust
Hata þennan mann. Mesta cocky fífl sem ég hef horft upp á.

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:39
af GuðjónR
Bjosep skrifaði:Myndi það ekki vera Steve Ballmer ... þar sem Steve Jobs er hættur að hlæja :guy

Steve Jobs var ekki í þessu myndbandi ;)
Skrítið að sjá 5 ára gamalt myndband og svona svakalega þröngsýni.

Og líka skrítið að sjá svona afneitun.

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:43
af dori
Ég fílaði reyndar T9 á Symbian OS. Ég var svona 10x fljótari að skrifa á það en á Android símann með Scandinavian Keyboard+orðabók og 20x fljótari en ég er að skrifa á iPad (hef aldrei prufað iPhone almennilega).

Ef stærri hluti af því sem ég gerði væri að skrifa hluti. Tölvupóst, textaskilaboð eða jafnvel blogga eða eitthvað álíka faggy þá myndi ég án efa reyna að finna mér Android síma með niðurdraganlegu T9 lyklaborði.

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:51
af chaplin

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:51
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:
Og líka skrítið að sjá svona afneitun.


Ekkert lítið. Vera partur af einu stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi og með þvílíkt ríkjandi vörur á markaðnum, en geta ekki viðurkennt lítinn sigur hjá andstæðingnum. Ætla ekki að segja að það vanti auðmýkt í kallinn því helling hefur hann og er að gefa af sínum auðæfum, en þetta er spes.

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 10:58
af upg8
lol ættir að horfa á það sem Steve Jobs hefur sagt...

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 11:27
af coldcut
Þar sem ég hata bæði fyrirtækin þá er hérna mín sýn á þetta...

Appl€
Steve Jobs - snillingur og "visionary" sem gerði Apple að þekktasta og mesta hip fyrirtæki sem er uppi í dag. Jobs væri samt ekkert án Wozniak og Xerox...
Wozniak - þvílíkur snillingur.

Micro$oft
Gates - MJÖG klár en má líka þakka scare-tactics, lögfræðingum og Ballmer fyrir hvað M$ komst langt.
Ballmer - Trúður sem hefur ekki hundsvit á tækni og er búinn að sýna það aftur og aftur hvað hann er ófær um að stjórna einu stærsta tæknifyrirtæki heims.

...vona að Ballmer verði við stjórnvölin fram á dauðadag ef það þýðir að M$ fari áfram niður á við.

Málið með þessa gaura eins og Jobs og Gates er að þeir eru öðruvísi en annað fólk útaf sínum gáfum og þess vegna skal ekki alltaf taka öllu því sem þeir segja sem heilögum sannleik.
Ballmer er hins vegar bara þurs!

Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 11:28
af GuðjónR
AntiTrust skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Og líka skrítið að sjá svona afneitun.


Ekkert lítið. Vera partur af einu stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi og með þvílíkt ríkjandi vörur á markaðnum, en geta ekki viðurkennt lítinn sigur hjá andstæðingnum. Ætla ekki að segja að það vanti auðmýkt í kallinn því helling hefur hann og er að gefa af sínum auðæfum, en þetta er spes.


Nákvæmlega.
Hann er ekki bara "partur" heldur höfuð og herðar stærsta tæknirisa heims. Hann varð líka aulalegur þegar hann áttaði sig á ruglinu... NO COMMENT og ríghélt sér í sófann hehehe

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 11:28
af ZiRiuS
upg8 skrifaði:lol ættir að horfa á það sem Steve Jobs hefur sagt...


Man nú bara að hann var ekki sáttur að Google væru að troða sér á farsímamarkaðinn... afar þröngsýnt comment...

Apple... Microsoft... Google... þetta eru allir sömu hræsnararnir...

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 21:33
af KermitTheFrog
Æj hann Steve Ballmer er ekki alveg að gera sig.

Hef aldrei fílað þennan mann. Hann er allt of cocky og þröngsýnn...

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fim 21. Jún 2012 21:59
af braudrist
Ég væri nú alveg til í að vinna hjá Google miðað við öll fríðindin sem starfsmenn fá þar.

Re: Sá hlær best sem síðast hlær

Sent: Fös 06. Júl 2012 12:17
af GuðjónR
Góð viðbót við þessa umræðu:

Microsoft’s Downfall