Síða 1 af 1

Tollur á heyrnatólum

Sent: Þri 12. Jún 2012 14:08
af hfwf
Efnið segir sig sjálft. Vitiði hvernig heyrnatól eru flokkuð hjá tollinum?.

Re: Tollur á heyrnatólum

Sent: Þri 12. Jún 2012 14:18
af appel
hfwf skrifaði:Efnið segir sig sjálft. Vitiði hvernig heyrnatól eru flokkuð hjá tollinum?.


Munaðarvara.

1000% skattur.

Re: Tollur á heyrnatólum

Sent: Þri 12. Jún 2012 14:19
af Blackbone
Því miður eru frekar mikil gjöld á heyrnatólum, 7,5% almennur tollur, 25,5% VSK og 25% vörugjald.. :/
Þetta er allavega það sem ég fann út á tollur.is þegar ég verslaði mín og lét koma með heim fyrir mig.

Re: Tollur á heyrnatólum

Sent: Þri 12. Jún 2012 14:30
af hfwf
OK takk fyrir þetta.

Alveg út í kú þessir tollar! :thumbsd :thumbsd

Re: Tollur á heyrnatólum

Sent: Þri 12. Jún 2012 15:15
af Tbot
Einhvern vegin verður ríkið að ná í peninga svo Jóhanna og Steingrímur geti átt 200 millur í eftirlaunasjóðum sínum.