Síða 1 af 1

The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:14
af GuðjónR
Mjög áhugaverð grein.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:21
af enypha
N-á-k-v-æ-m-l-e-g-a-!

Gæti ekki hafa sagt það betur sjálfur.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:30
af Bjosep
Þarf alltaf að vera með svona dónaskap þegar menn skrifa greinar? Þetta orð F*ck, ég kann ekki að meta það! :nono

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:30
af GuðjónR
Bjosep skrifaði:Þarf alltaf að vera með svona dónaskap þegar menn skrifa greinar? Þetta orð F*ck, ég kann ekki að meta það! :nono

Þetta er bara samsæri ...

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:33
af ZiRiuS
Bjosep skrifaði:Þarf alltaf að vera með svona dónaskap þegar menn skrifa greinar? Þetta orð F*ck, ég kann ekki að meta það! :nono

Fokk hvað ég er sammála þér...

:troll

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:41
af Daz
Fólk sem kemur nálægt mér hefur oft lent í því að ég básúni svipaðir skoðun. Ég er algerlega tilbúinn til að greiða fyrir hitt og þetta, að því gefnu að það sé aðgengilegt og sanngjarnt verð. T.d. að borga fyrir tónlist, ef ég gæti hlustað á hvað sem ég vildi, hvar sem er, þá væri örugglega hægt að finna verð sem ég er tibúinn til að greiða. 2000 á mánuði? 3000 kr á mánuði? Þetta mál með verðið, sérstaklega þegar það er enginn físíkur hlutur sem bætir alltaf föstum kostnaði við söluna (s.s. digital dreifing), mjög skemmtileg grein um hvernig Steam fiktar í verðum

If you launch a game at $20, and the price goes down to $5, you need to sell four times as many games to make the same money, right? Surprisingly, developers see sales an order of magnitude higher than they expected after severely cutting the price of the game after launch. They don’t just sell four times as many games, they may sell 20 times as many, or more.

Valve’s Gabe Newell once spoke about a series of pricing experiments on Steam, and stated that a price reduction of 75 percent should mean gross revenue remains constant, based on their prior experience. “Instead what we saw was our gross revenue increased by a factor of 40,” he said. “Not 40 percent, but a factor of 40. Which is completely not predicted by our previous experience with silent price variation.”

Afhverju gæti það sama ekki átt við um t.d. kvikmyndir og tónlist?

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:42
af appel
Amen. :happy

Þessi stúdío, eða framleiðendur á kvikmynda/sjónvarpsefni, eru ekki í takti við tímann þegar kemur að dreifingu á efninu sem þeir framleiða.

Lausnin er einföld. Gott verð, og birta/dreifa efninu á sama tíma á hvaða formati sem neytandinn vill. Ég nenni ekki í bíó, ég vil bara horfa á góðar myndir heima hjá mér. Ég vil t.d. horfa á Prometheus í 50" sjónvarpinu heima í HD gæðum, en nei, stúdióin vilja að ég fari í bíó, og svo einhverntímann eftir hálft ár get ég séð hana heima hjá mér á örugglega DVD, því Blu-Ray á eftir að kosta morðfé.

Ég vil akkúrat núna fara inn á löglega vefsíðu, downloada Prometheus löglega, borga kannski $3-4 dollara fyrir, og horfa á hana bara í raun strax núna eftir 20 mín því ég er með 50mbit download hraða! Ef fólk getur þetta ekki, þá augljóslega eru "sjóræningjar" til og ræna efninu og dreifa ólöglega á netinu, og fólk sækir ólöglega.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:42
af appel
Bjosep skrifaði:Þarf alltaf að vera með svona dónaskap þegar menn skrifa greinar? Þetta orð F*ck, ég kann ekki að meta það! :nono

Búið að reyna nota rök á þetta lið.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:51
af appel
Vitiði annars hvar er hægt að kaupa löglega á netinu kvikmyndir/sjónvarpsefni, þ.e. digital formi og downloada, og þarf ekki að nota VPN eða álíka til að rugla kerfið svo það haldi að ég sé í BNA?

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:52
af GuðjónR
appel skrifaði:Vitiði annars hvar er hægt að kaupa löglega á netinu kvikmyndir/sjónvarpsefni, þ.e. digital formi og downloada, og þarf ekki að nota VPN eða álíka til að rugla kerfið svo það haldi að ég sé í BNA?

uhhhh....nei?
:)

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:56
af DJOli
appel skrifaði:Vitiði annars hvar er hægt að kaupa löglega á netinu kvikmyndir/sjónvarpsefni, þ.e. digital formi og downloada, og þarf ekki að nota VPN eða álíka til að rugla kerfið svo það haldi að ég sé í BNA?

Það er ekki til vegna þess að smáís leyfa það ekki.
Þetta með tónlist, það er bannað vegna þess að stef leyfa það ekki án þess að þeir fái borgað.
Grooveshark, Bandcamp, Soundcloud, þetta verður allt orðið óaðgengilegt hérlendis innan skamms fái Stef að ráða því.

Edit: annars gætirðu prufað Filma.is, en þar færðu bara aðgang að myndinni í 24klst, ekki til að sækja þó, heldur til að horfa á í gegnum streymi, og ekki einusinni í háskerpu.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Mið 06. Jún 2012 23:58
af MatroX
appel skrifaði:Vitiði annars hvar er hægt að kaupa löglega á netinu kvikmyndir/sjónvarpsefni, þ.e. digital formi og downloada, og þarf ekki að nota VPN eða álíka til að rugla kerfið svo það haldi að ég sé í BNA?

itunes gerir usa account og kaupir inneignarkort hjá buy.is eða ebay eða eitthvað

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 00:15
af Manager1
Ég stofnaði Steam account seint á síðasta ári og keypti þá minn fyrsta tölvuleik í mörg ár, því Steam er vettvangur þar sem ég get borgað fyrir og sótt tölvuleikina mína með minni fyrirhöfn en ef ég sæki þá af torrent síðu með tilheyrandi bið eftir nothæfri útgáfu sem leyfir þó ekki netspilun.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 00:37
af appel
Manager1 skrifaði:Ég stofnaði Steam account seint á síðasta ári og keypti þá minn fyrsta tölvuleik í mörg ár, því Steam er vettvangur þar sem ég get borgað fyrir og sótt tölvuleikina mína með minni fyrirhöfn en ef ég sæki þá af torrent síðu með tilheyrandi bið eftir nothæfri útgáfu sem leyfir þó ekki netspilun.

Ég myndi ekki downloada rippuðum tölvuleikjum, allskyns vírusar og ógeðisviðbjóður í því, og svo er betra að vera með löglega útgáfu upp á netspilun og svona. Ég kaupi bara leiki í dag. Reyndar er verðið á þeim ansi hátt, kaupi því öööörfáa. Prófa steam.

Svo hlusta ég bara á tónlist á netinu, streymi, löglegt. Allt fullt af góðri tónlist í streymi. Ég bara nenni ekki að halda utan um eitthvað tónlistarsafn, og svo veit ég ekkert hvað allir þessir tónlistarmenn heita og lögin þeirra.

Dreifing á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum er enn á steinaldarstigi.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 02:24
af Orri
Eins og appel sagði, amen !

80-90% af því sem ég hef niðurhalað "ólöglega" hefði ég glaður verið til í að borga fyrir hefði það verið ódýrara og einfaldara (ekki alveg algilt, stundum er verðið ágætt en flókið á nálgast efnið eða öfugt).
Hin 10-20% eru hlutir sem ég náði í annaðhvort fyrir aðra eða þá bara til að sjá/prófa, t.d. nokkra þætti af nýrri sjónvarpsseríu, plötu með hljómsveit sem mér fannst spennandi eða tölvuleikir sem mig langaði að prófa áður en ég keypti.

Hversu margir hérna eru með forrit eins og SickBeard til að ná í þættina sem maður vill sjá um leið og þeir koma "ólöglega" á netið ? Og svo annað forrit til að ná í enskann texta fyrir efnið ? Og svo annað forrit til að ná í kvikmyndir og texta fyrir þær, o.s.fv... ?
Væru ekki allir þeir sem stóðu í þessu "veseni" að ná í og setja upp þessi forrit til í að borga sanngjarnt gjald fyrir þessa þjónustu löglega ?
Fá þættina kvöldið sem þeir eru sýndir á sjónvarpstöðvunum með enskum texta (hugsanlega íslenskum?) og í háskerpu (lægri gæðum ef þú kýst..) ?

Með bíómyndirnar þá held ég að þær verði alltaf að vera sýndar fyrst í bíó, annars myndi bíó líklegast leggjast niður.. Það og að kvikmyndaframleiðendur vilja eflaust sýna myndirnar sýnar ("listaverkin sín") til að byrja með á stóra tjaldinu :)
Ég veit að mér fannst alltaf lang skemmtilegast að sýna stuttmyndirnar sem ég gerði í grunn- og framhaldsskóla fyrst á skjávarpa :)

Til að fá fólk til að hætta að ná í heilu sjónvarpsseríurnar eða tölvuleikina bara til að prófa með því að bjóða uppá fría prufu (t.d. einn sjónvarpsþátt, nokkur lög af plötu, demó af leik) eða láta tímalás á t.d. heilann tölvuleik (klukkutími frítt svo þarftu að kaupa til að spila meira t.d.).

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 02:37
af GullMoli
Manager1 skrifaði:Ég stofnaði Steam account seint á síðasta ári og keypti þá minn fyrsta tölvuleik í mörg ár, því Steam er vettvangur þar sem ég get borgað fyrir og sótt tölvuleikina mína með minni fyrirhöfn en ef ég sæki þá af torrent síðu með tilheyrandi bið eftir nothæfri útgáfu sem leyfir þó ekki netspilun.

Nákvæmlega, þökk sé Steam (og Humblebundle) kaupi ég alla leikina mína í dag. Flestir leikir sem mig langar virkilega til að spila eru annaðhvort ódýrir indie leikir eða þá fjölspilunarleikir sem ég get oftast nálgast í gegnum Steam. Þar fæ ég þá töluvert ódýrari en út í búð og þarf ekki að nota einhverja úrelta diska. Svo er eina "DRM'ið" er bara Steam forritið sjálft.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 11:56
af jericho
Vá hvað þessi mynd segir margt

Mynd

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 14:27
af Xovius
Ég er svo 100% sammála þessu. Algjört rugl að gera þetta svona óþarflega flókið.
Eins og hann sagði í greininni, Steam gerði tilraunir með verðlækkanir og bjóst við því að þó þeir gæfu um 75% afslátt af leik þá yrði gróðinn sá sami. Þeir komust að því að gróðinn 40 faldaðist!
Kaupi alla mína leiki af þeim :)

Svo fannst mér þessi mynd æðisleg:
Mynd

and this http://penny-arcade.com/report/editoria ... pers-and-p :D

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 17:29
af GrimurD
Efa að það muni eitthvað að ráði gerast fyrr en gömlu kallarnir í stjórnunum á þessum fyrirtækjum hætta og yngra meðvitaðra fólk tekur við. Þá neyðast t.d. þessir wannab's í smáís til að endurskoða hvað þeir eru að gera.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fim 07. Jún 2012 18:29
af appel
GrimurD skrifaði:Efa að það muni eitthvað að ráði gerast fyrr en gömlu kallarnir í stjórnunum á þessum fyrirtækjum hætta og yngra meðvitaðra fólk tekur við. Þá neyðast t.d. þessir wannab's í smáís til að endurskoða hvað þeir eru að gera.

Held að þessi iðnaðar muni fyrr líða undir lok en að þessir menn átti sig á raunveruleikanum og breyti um stefnu. Málið er að gömlu kallarnir ráða yngri kalla og þjálfa þá upp í að halda sömu stefnu áfram. Svo þegar við erum allir oðrnir 60 þá eru barnabörnin að fara í fangelsi fyrir að downloada sjónvarpsþætti af netinu. Því miður stefnir þetta í það, því vald þekkir bara eitt, meira vald.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fös 08. Jún 2012 15:05
af Orri
appel skrifaði:Held að þessi iðnaðar muni fyrr líða undir lok en að þessir menn átti sig á raunveruleikanum og breyti um stefnu. Málið er að gömlu kallarnir ráða yngri kalla og þjálfa þá upp í að halda sömu stefnu áfram. Svo þegar við erum allir oðrnir 60 þá eru barnabörnin að fara í fangelsi fyrir að downloada sjónvarpsþætti af netinu. Því miður stefnir þetta í það, því vald þekkir bara eitt, meira vald.

Hefðirðu ekki sagt það sama um tölvuleikjaiðnaðinn áður en Steam kom til sögunnar ?

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fös 08. Jún 2012 15:13
af dori
Orri skrifaði:

Málið er samt að það eru komnir svo rosalegir lagabálkar um tónlistar IP. Það þarf að berjast gegn þeirri vitleysu þannig að völdin þeirra minnki. Þá fyrst verður vettvangur fyrir einhverja sem vilja bylta tónlistariðnaðinum eins og Steam hefur gert með leikjaiðnaðinn.

Þessir menn átta sig ekki á því að við viljum neyta tónlistar og viljum borga fyrir það. Bara hóflegt verð. Með þetta gríðarlega framboð er $10 fyrir "plötu" eða $1 fyrir lag ekki hóflegt verð.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fös 08. Jún 2012 15:44
af ManiO
Það sem þarf er risa PR herferð um hvernig Steam sölurnar hafa haft áhrif á sölu. Lækka verðið um fimmfalt og sjá oft yfir 20-falt hærri sölutölur, ásamt því að aðgengi er rosalega mikilvægur þáttur.

Re: The Piracy Threshold

Sent: Fös 08. Jún 2012 18:38
af appel
dori skrifaði:
Orri skrifaði:
appel skrifaði:Held að þessi iðnaðar muni fyrr líða undir lok en að þessir menn átti sig á raunveruleikanum og breyti um stefnu. Málið er að gömlu kallarnir ráða yngri kalla og þjálfa þá upp í að halda sömu stefnu áfram. Svo þegar við erum allir oðrnir 60 þá eru barnabörnin að fara í fangelsi fyrir að downloada sjónvarpsþætti af netinu. Því miður stefnir þetta í það, því vald þekkir bara eitt, meira vald.

Hefðirðu ekki sagt það sama um tölvuleikjaiðnaðinn áður en Steam kom til sögunnar ?

Málið er samt að það eru komnir svo rosalegir lagabálkar um tónlistar IP. Það þarf að berjast gegn þeirri vitleysu þannig að völdin þeirra minnki. Þá fyrst verður vettvangur fyrir einhverja sem vilja bylta tónlistariðnaðinum eins og Steam hefur gert með leikjaiðnaðinn.

Þessir menn átta sig ekki á því að við viljum neyta tónlistar og viljum borga fyrir það. Bara hóflegt verð. Með þetta gríðarlega framboð er $10 fyrir "plötu" eða $1 fyrir lag ekki hóflegt verð.

Það er ekki hægt að bera saman distribution-módelið á tölvuleikjum saman við distribution-módelið á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Keðjan af hagsmunaðilum er mun flóknari á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þú ert með bíóhús, myndbandaleigur, dvd sölur, sjónvarpsstöðvar o.fl. o.fl.

Tölvuleikir fara bara beint til viðskiptavinarins og því skiptir ekki máli fyrir tölvuleikjaframleiðendurnar hvort þeir eru seldir online eða í kassa í búð.