Síða 1 af 1

Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Þri 05. Jún 2012 23:21
af capteinninn
Þetta fannst mér alveg frábært, mikið gert úr því að rafbílar séu ekki nógu kraftmiklir og fleira.

Gísli Gíslason að losa þá við það orðspor með þessu, vel tekin mynd líka með fréttinni.

http://www.visir.is/rafbill-tekinn-a-12 ... 2120609627

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Þri 05. Jún 2012 23:30
af Gúrú
Að eiga vini hjá Vísi, sem að þessi gaur á greinilega, getur já verið hentugt.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 00:18
af capteinninn
Gúrú skrifaði:Að eiga vini hjá Vísi, sem að þessi gaur á greinilega, getur já verið hentugt.

Jöbb. Held að stór hluti af "fréttum" í Íslenskum fjölmiðlum sé í gegnum vinakerfi

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 00:25
af Gúrú
Ætla að feitletra allt sem að er ekki hægt að kalla neitt annað en auglýsingu og skáletra það sem að verður það óbeint - það er allavegana er ekki hægt að kalla þetta hlutlausa fréttamennsku.

„Ég gleymdi mér í góða veðrinu," segir Gísli Gíslason, forstjóri Northern Light Energy. Hann var í gær fyrstur allra til að vera tekinn fyrir of hraðan akstur á rafbíl á Íslandi. Hann gerir ekki lítið úr alvarleika atviksins og hvetur aðra ökumenn til að fara varlega í umferðinni.

Gísli ekur á sportlegum Tesla Roadster-rafbíl og segir hann lögreglumennina hafa verið hissa á því að bíll knúinn áfram af íslenskri orku skyldi ná þessum hraða. Þeir mældu hann á 124 km hraða á Reykjanesbrautinni.

Tesla Roadster er tveggja manna sportbíll sem byggður er á Lotus Elise og braut blað þegar hann kom á markað fyrir nokkrum árum. Bíll Gísla er eini sinnar tegundar hér á landi.

Gísli hefur eins og kunnugt er unnið síðustu ár að rafbílavæðingu íslenska bílaflotans. Hann segist finna mikið fyrir auknum áhuga, pöntunum í rafbíla fjölgi stöðugt og innan fárra ára eigi mörg hundruð rafbílar eftir að keyra um götur landsins.

Úps, öll fréttin í heild sinni feitletruð eða skáletruð. :)

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 00:27
af Eiiki
Já flott mynd, voru fréttamenn vísis bara mættir á Reykjanesbrautina til að taka mynd af atvikinu? :lol:

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 02:36
af vikingbay
Eiiki skrifaði:Já flott mynd, voru fréttamenn vísis bara mættir á Reykjanesbrautina til að taka mynd af atvikinu? :lol:

hah þessi vinur hans hjá vísi var sennilega með honum :lol:

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 02:46
af Xovius
Glæsileg markaðssetning.
Finnst þó að hann hefði átt að láta þá taka sig á meiri hraða :D

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 08:52
af intenz
Frábært alveg hreint.

Rafbílavæðum þjóðina og setjum olíufélögin á hausinn. :happy

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 09:09
af hagur
Já, ég skal taka þátt í að knésetja olíufélögin ... reddið mér svona bíl bara ASAP og ég skal byrja strax!

:happy

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 09:18
af Bjosep
Þetta er ein leið.

Önnur leið er að gera femínistafélagið brjálað sbr. "Yorkie - Ekki fyrir kerlingar" og ýmislegt fleira sem vekur mikið umtal.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 11:25
af capteinninn
Kom auga á aðra auglýsingu á Vísi.

http://www.visir.is/keldan-kaupir-vakta ... 2120609408

Spurning um að gera bara sér þráð þar sem maður hendir inn svona augljósum auglýsingum í fjölmiðlum

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 11:36
af ManiO
hannesstef skrifaði:Kom auga á aðra auglýsingu á Vísi.

http://www.visir.is/keldan-kaupir-vakta ... 2120609408

Spurning um að gera bara sér þráð þar sem maður hendir inn svona augljósum auglýsingum í fjölmiðlum

90% af fréttum af fyrirtækjum og opinberum aðilum er nánast hreint copy-pasta frá upplýsingafulltrúum.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 13:20
af capteinninn
ManiO skrifaði:
hannesstef skrifaði:Kom auga á aðra auglýsingu á Vísi.

http://www.visir.is/keldan-kaupir-vakta ... 2120609408

Spurning um að gera bara sér þráð þar sem maður hendir inn svona augljósum auglýsingum í fjölmiðlum

90% af fréttum af fyrirtækjum og opinberum aðilum er nánast hreint copy-pasta frá upplýsingafulltrúum.

Já en það gæti samt verið gaman að búa til lista með öllum þessum auglýsingum, kannski gæti þetta haft áhrif á fréttamiðlana að vinna fréttirnar eitthvað

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 13:23
af ManiO
hannesstef skrifaði:
ManiO skrifaði:
hannesstef skrifaði:Kom auga á aðra auglýsingu á Vísi.

http://www.visir.is/keldan-kaupir-vakta ... 2120609408

Spurning um að gera bara sér þráð þar sem maður hendir inn svona augljósum auglýsingum í fjölmiðlum

90% af fréttum af fyrirtækjum og opinberum aðilum er nánast hreint copy-pasta frá upplýsingafulltrúum.

Já en það gæti samt verið gaman að búa til lista með öllum þessum auglýsingum, kannski gæti þetta haft áhrif á fréttamiðlana að vinna fréttirnar eitthvað

Listar finnast á mbl.is, visir.is og fleiri síðum undir frekar blekkjandi titli sem kallast 'fréttir' af einhverjum ástæðum :-k En auðvelt væri að búa til síðu sem að safnar þeim saman á eina.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 13:37
af SolidFeather

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 15:54
af rubey
SolidFeather skrifaði:http://www.dv.is/frettir/2012/6/6/forstjori-tekinn-124-km-hrada-rafbil-reykjanesbrautinni/

"Tilvonandi geimfari
Gísli er mikill ofurhugi en í mars í fyrra var greint frá því að hann ætli sér úti í geim á vegum flugfélagsins Virgin. Ferðin mun kosta Gísla um 23 milljónir króna en hann á von á því að styrktaraðilar muni greiða þá upphæð. Vonast Gísli til að komast út í geim með Virgin eftir tvö til þrjú ár en hann hittir tilvonandi geimfara í London í júlí en í nóvember síðastliðnum var hann viðstaddur opnun geimstöðvar Virgin í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. "

Já hann er einn af þessum.. Ekki slæmt ef hann getur vælt og komist frítt út í geim..

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 16:39
af chaplin
Ein pæling við þessa rafmagnsbíla, hvernig er þetta að endurvinna rafhlöðuna í þeim? Hef heyrt að það sé meiri umhverfisspilling en olían, er eitthvað til í því?

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 16:45
af Gúrú
chaplin skrifaði:Ein pæling við þessa rafmagnsbíla, hvernig er þetta að endurvinna rafhlöðuna í þeim? Hef heyrt að það sé meiri umhverfisspilling en olían, er eitthvað til í því?

Gríðarlega mikið til í því, ekki bara úrvinnslan heldur framleiðslan á þessum batterýum er gríðarlega slæm fyrir umhverfið.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 18:58
af Bjosep
Það fer kannski eftir því á hvernig málið er litið. Nú veit ég að Nikkel-ið sem var/er notað í rafgeymana í Prius kom úr einhverri námu í Kanada og nánasta umhverfi þeirrar námu var bara algerlega lífvana. Síðan þarf væntanlega að hreinsa málminn og vinna, og ég reyndar er ekki viss hvernig það er með nikkel en því getur vissulega fylgt verulegur sóðaskapur. Ég held hinsvegar að ég sé ekki að ljúga því að áhrifin af vinnslu málms eru meira eða minna staðbundin. Meðan kannski áhrifin af bruna olíu eru það náttúrulega ekki.

Þar liggur kannski munurinn einna helst.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 19:52
af worghal
Bjosep skrifaði:Það fer kannski eftir því á hvernig málið er litið. Nú veit ég að Nikkel-ið sem var/er notað í rafgeymana í Prius kom úr einhverri námu í Kanada og nánasta umhverfi þeirrar námu var bara algerlega lífvana. Síðan þarf væntanlega að hreinsa málminn og vinna, og ég reyndar er ekki viss hvernig það er með nikkel en því getur vissulega fylgt verulegur sóðaskapur. Ég held hinsvegar að ég sé ekki að ljúga því að áhrifin af vinnslu málms eru meira eða minna staðbundin. Meðan kannski áhrifin af bruna olíu eru það náttúrulega ekki.

Þar liggur kannski munurinn einna helst.

ekki má gleima að þetta nikkel var flutt með stórum fragt skipum sem tóku þó nokkuð af olíu og fermt eitthvert út í rassgat, svo var það aftur flutt eftir að það var unnið með skipi eitthvert annað og því mengun vegna flutnings orðin gríðarleg.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 20:00
af Gúrú
Það er samt ekki spurning með það að þegar að við erum að tala um að fylla á þá með hreinni, endurnýjanlegri orku eins og að við gerum hér á Íslandi
þá er það umhverfinu gríðarlega í hag að vera á rafbíl í stað þessa hefðbundnu olíubíla, sama hvað batterýið er "slæmt".

Það er hinsvegar þegar að sambærilega aflmiklir olíubílar eru komnir í 3-4L/100km/klst og rafmagnið fyrir rafmagnsbílana er framleitt með óhreinni orku hvort eð er sem að þetta er tæpt.

The main finding of this study is that the impact of a Li-ion battery used in BEVs for transport service is relatively small. In contrast, it is the operation phase that remains the dominant contributor to the environmental burden caused by transport service as long as the electricity for the BEV is not produced by renewable hydropower.[src](BEV = Batterýknúnir rafmagnsbílar)

Sem það er á Íslandi.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 20:27
af dori
Bjosep skrifaði:Það fer kannski eftir því á hvernig málið er litið. Nú veit ég að Nikkel-ið sem var/er notað í rafgeymana í Prius kom úr einhverri námu í Kanada og nánasta umhverfi þeirrar námu var bara algerlega lífvana. Síðan þarf væntanlega að hreinsa málminn og vinna, og ég reyndar er ekki viss hvernig það er með nikkel en því getur vissulega fylgt verulegur sóðaskapur. Ég held hinsvegar að ég sé ekki að ljúga því að áhrifin af vinnslu málms eru meira eða minna staðbundin. Meðan kannski áhrifin af bruna olíu eru það náttúrulega ekki.

Þar liggur kannski munurinn einna helst.

Það eru helst notuð lithium rafhlöður í þetta. Þau hafa miklu hærra afl/umfang hlutfall. Hins vegar er ekkert rosalega mikið til af lithium málminum (eins og staðan er í dag og í náinni framtíð) þannig að það verður aldrei hægt að keyra bílaflota heimsins með þeim rafhlöðum.

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Mið 06. Jún 2012 22:54
af CendenZ
dori skrifaði:

Það er m.a. ástæðan fyrir vetnisbílum, þá er vetnið notað sem geymsla fyrir orku í stað li-ions battería
Ég hef reyndar ekki fundið mjög áreiðanlega heimild fyrir því að aðgengi að Lithium sé takmarkað, bara svona á rafhjóla-forumum og hist og her:) Það eru aðalega kínverjarnir sem liggja á þessu, enda klárlega framtíðin og þeir hugsa í áratugum en ekki ársfjórðungum ;)

Re: Frábær leið til að markaðsetja

Sent: Fim 07. Jún 2012 11:42
af dori
Já, ég hef aðallega heyrt og lesið eitthvað smá um þetta. En m.v. wiki...
Wikipedia skrifaði:There are widespread hopes of using lithium ion batteries in electric vehicles, but one study concluded that "realistically achievable lithium carbonate production will be sufficient for only a small fraction of future PHEV and EV global market requirements", that "demand from the portable electronics sector will absorb much of the planned production increases in the next decade", and that "mass production of lithium carbonate is not environmentally sound, it will cause irreparable ecological damage to ecosystems that should be protected and that LiIon propulsion is incompatible with the notion of the 'Green Car'"

Þeir benda í þessa skýrslu sem heimild fyrir þessu texta.