Síða 1 af 2
Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 20:52
af Jim
.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 20:58
af KermitTheFrog
Lopapeysur og ógeðslega mikil heimavinna...
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 21:12
af ManiO
Útskrifaðist 2006 af Eðlisfræðibraut I. Fannst hann frábær.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 21:17
af Dagur
Frábær skóli. Fannst svo gaman að ég tók hann á 5 árum
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 21:33
af Eiiki
Eini alvöru menntaskólinn hvað varðar raungreinar
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:28
af vargurinn
var einhver mikil heimavinna?
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:32
af Domnix
KermitTheFrog skrifaði:Lopapeysur og ógeðslega mikil heimavinna...
varst greinilega ekki í honum
. en já mjög ríkt félagslíf, bekkjarkerfið gerir það að verkum að þú kynnist fólkinu mjög vel, námið er nógu krefjandi til að háskólinn sé ekki skref uppávið í áreynslu. Það er stundum mikið að gera, og mikið af prófum, en það er ekki neikvæður hlutur, heldur þjálfar bara þína námstækni. Ég komst upp með að gera lítið sem ekkert í honum, fékk reyndar ekki mjög góða meðaleinkunn en ef þú ætlar í háskóla á íslandi skiptir einkunnin þín úr menntaskóla lítið sem engu, heldur útskriftareinkunnin þín úr háskóla. Fór í Verkfræði í haust og fyrsta önnin var bara upprifjun, og seinni var allt í lagi, hvorug var skref uppávið í álagi.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:37
af Frussi
Var í MR, frábaer skóli og frábaert félagslíf! Hann er erfidur en eins og Domnix sagdi kemst madur alveg upp med ad gera ansi lítid
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:53
af Frost
Mikið nám en örugglega sterkasta félagslíf í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu miðað við það sem ég hef heyrt og séð.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 11:59
af dori
Frost skrifaði:Mikið nám en örugglega sterkasta félagslíf í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu miðað við það sem ég hef heyrt og séð.
rly?
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 12:01
af vesley
dori skrifaði:Frost skrifaði:Mikið nám en örugglega sterkasta félagslíf í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu miðað við það sem ég hef heyrt og séð.
rly?
Með sterkari félagslífum ef þú fylgist aðeins með.
Var ekki nemandi í MR en þekki alveg ágætis fjölda af fólki sem var/er í honum og eru allir alveg ótrúlega ánægðir með skólann.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 12:35
af ManiO
2 nemendafélög. Böll í hverjum mánuði. Innanhúskeppnir reglulega, spurningakeppnir, ræðukeppnir o.fl. Svo voru klúbbar sem sjá um kvöld annað slagið. Bjórkvöld nokkuð reglulega. MR-ví dagurinn. Og svo er pott þétt eitthvað sem ég er að gleyma. Verst er að gangaslagurinn sé liðin tíð.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 12:50
af blitz
Ef þú ætlar að sækja um nám í (góðum) skóla erlendis ásamt því að hugsa um starfsframa erlendis þá getur námsárangur úr menntaskóla skipt (miklu) máli.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 13:14
af JoiMar
Ég er algjörlega sammála því að MR er mjög góður undirbúningur fyrir raungreina nám.
Ég fór sjálfur ekki í MR en þeir Mr-ingar sem ég þekki voru mjög vel undirbúnir( var að klára 3 árið í verkfræði)
Ég held að það séu fáir skólar sem bjóða upp á jafn góðan undirbúning og MR & MA.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 13:33
af jericho
Eiiki skrifaði:Eini alvöru menntaskólinn hvað varðar raungreinar
Svona fullyrðingar eru út í hött. Sjálfur útskrifaðist ég úr Menntaskólanum við Sund af eðlisfræðibraut og það var mjög góður undirbúningur fyrir verkfræðina háskólanum. En vissulega er MR með mjög góðan (ef ekki bestan) undirbúning. Það þýðir samt ekki að aðrir skólar eru ekki með "alvöru" undirbúning fyrir raungreinanám. Svona lagað stuðar mig. Afsakið ef það er bara ég.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 13:46
af Xovius
jericho skrifaði:Eiiki skrifaði:Eini alvöru menntaskólinn hvað varðar raungreinar

Alhæfingar eru ALLTAF rangar!
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:19
af Klemmi
jericho skrifaði:Eiiki skrifaði:Eini alvöru menntaskólinn hvað varðar raungreinar
Svona fullyrðingar eru út í hött. Sjálfur útskrifaðist ég úr Menntaskólanum við Sund af eðlisfræðibraut og það var mjög góður undirbúningur fyrir verkfræðina háskólanum. En vissulega er MR með mjög góðan (ef ekki bestan) undirbúning. Það þýðir samt ekki að aðrir skólar eru ekki með "alvöru" undirbúning fyrir raungreinanám. Svona lagað stuðar mig. Afsakið ef það er bara ég.
Einkennir reyndar bara MR-inga
Kærastan mín og einn af mínum betri vinum útskrifuðust úr MR og mennta-hrokinn varðandi MR lekur af þeim, enginn skóli kemst í hálfkvist við menntunina og jarí jarí.
Sjálfur var ég í MH og fannst raunvísindin bara mjög fín þar, get ekki sagt að mér finndist ég óundirbúinn undir verkfræðinámið þó svo að það hafi liðið 3 ár á milli þess að ég útskrifaðist úr menntaskóla og drattaðist í háskóla.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 16:25
af Magneto
engar flottar skvísur....
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 16:27
af ManiO
Magneto skrifaði:engar flottar skvísur....
Hefuru komið nálægt MR?
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 16:38
af Gúrú
Skyndilega stereótýpunar-, leiðinda- og barnaníðingssvipur kominn á þennan þráð.
Margir af vinum mínum eru í MR og líkar stórvel við, og námslega er þetta að sjálfsögðu langbesta menntastofnun landsins.
Ég veit líka að það er heill hellingur af nemendum í skólum öðrum en MR sem að hafa ekkert nema gott um hann að segja og jafnvel betra en eigin skóla hvað varðar t.d. andrúmsloft og félagslíf.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 17:28
af Eiiki
jericho skrifaði:Eiiki skrifaði:Eini alvöru menntaskólinn hvað varðar raungreinar
Svona fullyrðingar eru út í hött. Sjálfur útskrifaðist ég úr Menntaskólanum við Sund af eðlisfræðibraut og það var mjög góður undirbúningur fyrir verkfræðina háskólanum. En vissulega er MR með mjög góðan (ef ekki bestan) undirbúning. Það þýðir samt ekki að aðrir skólar eru ekki með "alvöru" undirbúning fyrir raungreinanám. Svona lagað stuðar mig. Afsakið ef það er bara ég.
Nei ég byðst afsökunar, þetta var kannski ekki rétt orðað hjá mér. En MR er samt besti menntaskólinn hvað varðar raungreinarnar og undirbýr mann betur fyrir þannig framhaldsnám heldur en aðrir skólar þó svo að þú getir nánast komið eins vel undirbúinn fyrir það nám sem þú ætlar í og þú vilt og er það algjörlega undir þér komið. Ath. að ég kem ekki úr MR.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 17:31
af jericho
Þakka þér Eiiki.
Sorry hvað ég er anal með þetta. En ég tek undir að MR er býr mann mjög vel undir raungreinatengt framhaldsnám.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 18:52
af Jim
.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 19:03
af CurlyWurly
Léttari stærðfræði, meiri danska, latína... það er það sem ég get sagt um málabrautina, og stúdentspróf úr efn og eðl eftir 1. árið. Held það sé svosem fínt en skilst að fólk fari aðallega á málabraut ef það ætlar í lögfræði.
Re: Menntaskólinn í Reykjavík
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:30
af KermitTheFrog
Magneto skrifaði:engar flottar skvísur....
Engar tággrannar, ljósabekkjabrúnar blondínur með risastór bjróst...
En sætar stelpur er að finna í MR.