Síða 1 af 1
Lítil loftkæling?
Sent: Fös 01. Jún 2012 23:32
af Yawnk
Ég var að spá hvort að það væri hægt að fá eitthvað lítið tæki sem kælir loftið í herberginu, líkt og hitari, nema blæs köldu lofti.. það er búið að vera ólíft inni hjá mér síðustu viku, 2 viftur í gangi alla daga og opnir gluggar.. ekkert virkar.
(Þá væri ég að tala um eitthvað sem maður stingur í samband í rafmagn t.d)
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Fös 01. Jún 2012 23:40
af playman
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Fös 01. Jún 2012 23:42
af AntiTrust
Verst að þetta kostar flestallt 100.000 og vel uppúr.
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Fös 01. Jún 2012 23:50
af playman
AntiTrust skrifaði:Verst að þetta kostar flestallt 100.000 og vel uppúr.
stundum vildi ég óska þess að verð eru sett á vefsíður -.-
Maður sér eithvað sniðugt svo hringir maður eða fer á staðinn og hluturinn kostar handlegg og hálfan fót
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 09:29
af fedora1
Yawnk skrifaði:Ég var að spá hvort að það væri hægt að fá eitthvað lítið tæki sem kælir loftið í herberginu, líkt og hitari, nema blæs köldu lofti.. það er búið að vera ólíft inni hjá mér síðustu viku, 2 viftur í gangi alla daga og opnir gluggar.. ekkert virkar.
(Þá væri ég að tala um eitthvað sem maður stingur í samband í rafmagn t.d)
Svona tæki framleiða líka hita. Ef þú hefur ekki einhverja leið til að koma þeim hita út, þá verður nettó kæling ekki svo mikil.
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 15:58
af Yawnk
Hmmmm... Er semsagt ekkert til sem kostar ekki hönd og fót? Ef til vill í Elko, eða HT?
Sárvantar þetta
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 16:08
af AntiTrust
Ekki nema bara kaupa þér ágætis viftu, smá hreyfing á loftið getur gert mikið.
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 16:11
af worghal
það hefur virkað ágætlega fyrir mig að setja bara viftu við opinn glugga og láta hana draga loft að utan.
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 16:12
af MrIce
Áttu USB snúru sem þú ert hættur að nota og 3 pin viftu ?
http://9gag.com/gag/4336331Solution!
ég prófaði að skítamixa svona hjá mér, virkar fínt fyrir 2 viftur ^^
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 17:35
af Yawnk
Heheh, takk allir
Ég finn út úr einhverju
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 18:47
af AciD_RaiN
Ég keypti einhvarja "drasl" USB tengda borðviftu í tölvutek í gær á undir 3þús kall og ég er ekkert smá hissa hvað hún kælir mig vel
Annars hef ég líka verið með 3x 120mm tölvuviftur sem blása inn um gluggann og það virkar líka alveg helvíti vel
Re: Lítil loftkæling?
Sent: Lau 02. Jún 2012 21:58
af flottur
Ég tók 8X92mm tölvukassaviftur tengdi þær saman með svona strips(held að það heitir það) og stakk þeim í samband við tölvuaflgjafa og tróð út í glugga....alveg þræl sniðugt og svínvirkar. mæli með svoleiðis.