Síða 1 af 2
Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 00:17
af AciD_RaiN
Sælir vaktarar.
Ég var fyrir nokkru að leita af sleeving efni og öllu sem því tilheyrir til að gera framlengingar. Það er alveg ótrúlegt hvað er mikið af ljótum framlengingum seldar með mislöngum heatshrink og sést smá í vírana osfr.
Það hafa nokkrir spurt mig hvar ég fékk mína kapla og það lítur út sem allir séu mjög ánægðir með þjónustuna hjá ShakMods og mig langaði einfaldlega að deila með ykkur ALMENNILEGUM extension cables... Þeir gera hvaða liti og litaraðir sem þú biður um, með heatshrink og án, eru snöggir að senda og svara fyrirspurnum mjög hratt.
Vona að einhverjir geti nýtt sér þennan þráð
Smá brot af framlengingum sem þeir hafa gert
Svo er síðan þeirra
hér og ebay verslunin
hérSvo er best að hafa samband við
christopher@shakmods.com fyrir einhver custom verk
Ef einhver veit um betri gæði eða betri verð þá má hann endilega láta mig vita
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 07:34
af littli-Jake
Djöfull er ég að fara að tékka á þessu. Þoli ekki hvað snúrurnar mína eru tæpar. Sérstakelga 8 og 24 pin. Það er eins og PCU og móðurborð framleiðendur geri sér ekki grein fyrir að í dag eru flestir með aflgjafann niðri.
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 09:07
af AciD_RaiN
littli-Jake skrifaði:Djöfull er ég að fara að tékka á þessu. Þoli ekki hvað snúrurnar mína eru tæpar. Sérstakelga 8 og 24 pin. Það er eins og PCU og móðurborð framleiðendur geri sér ekki grein fyrir að í dag eru flestir með aflgjafann niðri.
Ég var einmitt að senda þeim póst í gær til að fá custom lengd og litaröð á 24pin og 2x 6pin með engu heatshrink. Ef þú skoðar t.d. bitfenix, phobya og fleiri svona tilbúna kapla þá eru svo misjafnar lengdir á herpihólkunum og þeir þola voða lítið hnjask. Sá paracord bitfenix kapla um daginn sem fóru í hakk við að það ver tekið smá í þá...
Edit: Svo ekki sé minnst á þann hrylling sem kemur frá NZXT
Og
hérna má sjá samanburð á nokkrum
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 17:00
af Tiger
Mér finnst þetta bara allt sama ruslið, ég vill ekki fá einhverja FRAMLENGINU, ég vill fá sleeve-aðan kapal í réttri lengd sem tengist beint í afgjafann! Mig vantar ekkert fleirri tengi og snúrur í bakhliðina á turninum mínum.
Þanngað til þeir fara að setja það, þá mega þeir eiga þetta
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 17:07
af worghal
Tiger skrifaði:Mér finnst þetta bara allt sama ruslið, ég vill ekki fá einhverja FRAMLENGINU, ég vill fá sleeve-aðan kapal í réttri lengd sem tengist beint í afgjafann! Mig vantar ekkert fleirri tengi og snúrur í bakhliðina á turninum mínum.
Þanngað til þeir fara að setja það, þá mega þeir eiga þetta
corsair eru nú byrjaðir á þessu, þeir selja kapla frá psu sem eru í fallegri sleeve, en það er samt notaðhita rör í endana, sleevin fara ekki inn í tengin =/
http://www.performance-pcs.com/catalog/ ... 4_804_1030
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 17:11
af Tiger
worghal skrifaði:Tiger skrifaði:Mér finnst þetta bara allt sama ruslið, ég vill ekki fá einhverja FRAMLENGINU, ég vill fá sleeve-aðan kapal í réttri lengd sem tengist beint í afgjafann! Mig vantar ekkert fleirri tengi og snúrur í bakhliðina á turninum mínum.
Þanngað til þeir fara að setja það, þá mega þeir eiga þetta
corsair eru nú byrjaðir á þessu, þeir selja kapla frá psu sem eru í fallegri sleeve, en það er samt notaðhita rör í endana, sleevin fara ekki inn í tengin =/
http://www.performance-pcs.com/catalog/ ... 4_804_1030
Já ég komst að því nýlega. Hefði líklega tekið Corsair í stað Enermax ef ég hefði vitað þetta á þeim tíma sem ég keypti minn.
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 17:12
af worghal
er ekki bara málið að selja enermaxinn og fá sér einn corsair 1200?
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 17:22
af Tiger
worghal skrifaði:er ekki bara málið að selja enermaxinn og fá sér einn corsair 1200?
Spurning........viltu einn 1350W
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 01. Jún 2012 17:58
af AciD_RaiN
Tiger skrifaði:Mér finnst þetta bara allt sama ruslið, ég vill ekki fá einhverja FRAMLENGINU, ég vill fá sleeve-aðan kapal í réttri lengd sem tengist beint í afgjafann! Mig vantar ekkert fleirri tengi og snúrur í bakhliðina á turninum mínum.
Þanngað til þeir fara að setja það, þá mega þeir eiga þetta
Sendu póst á Chris og tékkaðu hvort þeir geti ekki bara reddað því
Ég var að enda við að borga fyrir nýja kapla sem ég var að panta og bað um sérstaka litaröðun og spes lengd á þessu og vesen en ekkert mál
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:00
af AciD_RaiN
Hann var að senda mér mynd. Hann er semsagt byrjaður á þessu en á eftir að bræða endana fasta
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:29
af Tiger
Ég sendi á hann mail í fyrradag, ekkert svar.
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:36
af AciD_RaiN
Tiger skrifaði:Ég sendi á hann mail í fyrradag, ekkert svar.
Þeir eru ennþá að bíða eftir vélunum í að getað gert gert alveg full custom PSU kapla og eru að vonast til að fá það allt í næsta mánuði. Eins og er þá eru þetta bara framlengingar. Biðst afsökunar ef ég kom þessu eitthvað vitlaust á framfæri
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:39
af Gunnar Andri
ég sendi á hann mail að spurja um custom kapla fyrir corsair hx 650w og hann sendi mér til baka að hann hefði sent það á einhvern annan
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:41
af AciD_RaiN
Gunnar Andri skrifaði:ég sendi á hann mail að spurja um custom kapla fyrir corsair hx 650w og hann sendi mér til baka að hann hefði sent það á einhvern annan
Já hann sendi báða póstana áfram á Shak því hann var ekki viss hvenær vélarnar kæmu en ég var að tala við hann og hann bað mig að koma því til skila að vélarnar kæmu vonandi í næsta mánuði en á meðan eru þeir bara með framlengingar...
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:43
af Gunnar Andri
ég ætti að geta beðið í einn mánuð
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Sun 03. Jún 2012 23:44
af AciD_RaiN
Ég skal bara láta ykkur vita um leið og þeir eru komnir með græjurnar í þetta
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:06
af AciD_RaiN
Jæja þá eru kaplarnir mínir tilbúnir... Djöfull er ég sáttur
Hvað finnst ykkur?
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:16
af mundivalur
Glæsilegt
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:24
af halli7
Mjög töff
Hvað kostaði þetta?
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:35
af AciD_RaiN
halli7 skrifaði:Mjög töff
Hvað kostaði þetta?
£40 og svo fékk ég 8pin í kaupbæti því í síðustu pöntun þá var 1 heatshrink aðeins of illa fest. Þeim er líka búið að fara mikið fram síðan
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:54
af Tiger
Þetta er hrikalega flott og vel gert sýnist mér.
Hlakka til að vita hvenær þeir geta gert complete kapla.
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Mán 04. Jún 2012 23:59
af AciD_RaiN
Tiger skrifaði:Þetta er hrikalega flott og vel gert sýnist mér.
Hlakka til að vita hvenær þeir geta gert complete kapla.
Já ég er með þá báða á facebook þannig Chris lætur mig vita um leið og þeir geta byrjað á því... Hendi svo inn myndum af þeim köplum þegar þeir byrja
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 15. Jún 2012 14:30
af AciD_RaiN
ShakMods kaplarnir komnir í vélina og ég er að fíla þá helvíti vel
Hvað finnst ykkur??
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 15. Jún 2012 14:37
af Tiger
AciD_RaiN skrifaði:Tiger skrifaði:Þetta er hrikalega flott og vel gert sýnist mér.
Hlakka til að vita hvenær þeir geta gert complete kapla.
Já ég er með þá báða á facebook þannig Chris lætur mig vita um leið og þeir geta byrjað á því... Hendi svo inn myndum af þeim köplum þegar þeir byrja
Takk en ég efast að ég þurfi þess, fæ mér örugglega þenann nýja frá EVGA sem er 1,5KW og með allt single sleeved........straumsnúran á honum er eins og það eigi að tengja hann beint við Blönduvirkun.
http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=Ca4GE-nyx6Y
Re: Framlengingar á 24pin, 6pin, 8pin ofl
Sent: Fös 15. Jún 2012 14:47
af AciD_RaiN
Ætli verði hægt að fá liti á köplunum eftir óskum? Held að þessi gæti litið vel út í næstu uppfærslu hjá mér