Síða 1 af 1

Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 15:41
af playman
Prufið þetta.
1. Á meðan þú situr við tölvuna, liftu þá hægri fætinum upp af gólfinu og hreyfðu hann í hringi réttsælis.
2. Á meðan að þú ert að snúa fætinum teiknaðu þá töluna 6 í loftið með hægri hendi.

Fóturinn þinn mun skipta um snúnings átt, alveg sama hvað þú reynir :snobbylaugh

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 16:27
af Arnzi
helvítis heilahvolf

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 17:09
af beggi90
Hvur djöf...

Hvert á ég að senda "bug report"?

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 17:16
af ORION
beggi90 skrifaði:Hvur djöf...

Hvert á ég að senda "bug report"?


kirkjan@kirkjan.is

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 17:22
af Nördaklessa
Profile myndin mín segjir allt sem segja þarf...

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 18:24
af Bjosep
Getið prufað þetta mjög mjög hægt ... að gera hringi með hægri fæti og hringi með hægri hendi, í sitthvora áttina það er.

Veit ekki alveg hverju 6 formið breytir í þessu samhengi.

Mér finnst ég endilega hafa náð þessu, tók samt engar myndir ... :troll

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 18:27
af Gúrú
Finnst ég líka alveg vera að ná þessu; en ég er með sterkt muscle memory á þessa lappahreyfingu, veit ekki hvort að það skiptir einu sinni máli. :catgotmyballs

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 18:32
af psteinn
Dafuq þetta er ekki erfitt... :wtf

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 20:08
af playman
Það er án efa einhver sem getur gert þetta, og það er örugglega hægt að "forrita" heilan til þess að getað þetta.
En mér fynst svo spes hvað þetta er gríðarlega stór hópur sem getur ekki haldið snúningsátt :sleezyjoe

Hef ekki hitt nein sem náði þessu, en örfáa sem næstum því geta þetta, en það kemur alltaf eithvað hik í fótin.

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 21:41
af Xovius
Gat þetta í smá stund, svo fór allt í klessu :D
Viss um að það er hægt að þjálfa þetta upp :P

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 23:11
af braudrist
:D

Er þetta ekki svipað eins og þetta dæmi:

1) Setjið báðar hendurnar á magan.

2) Reynið svo að strjúka einni hendinni í hringi réttsælis um kviðinn en hinni rangsælis(?) (hina áttina).

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Þri 29. Maí 2012 23:15
af Halli13
braudrist skrifaði::D

Er þetta ekki svipað eins og þetta dæmi:

1) Setjið báðar hendurnar á magan.

2) Reynið svo að strjúka einni hendinni í hringi réttsælis um kviðinn en hinni rangsælis(?) (hina áttina).


Annaðhvort er þetta það auðveldasta sem ég hef gert í dag eða ég er eitthvað að misskilja þetta... :-k

Re: Hver hérna hefur næga stjórn á líkamanum sínum?

Sent: Mið 30. Maí 2012 00:04
af Hj0llz
Eitt gamalt líka: Byrjaðu að raula Indiana Jones lagið.. eftir smá skaltu skipta yfir í star wars intro lagið
Margir sem hreinlega frjósa þegar þeir reyna það