Síða 1 af 1
Ryðguð grind
Sent: Sun 27. Maí 2012 17:00
af Yawnk
Sælir, ég er með smá spurningu sem tengist grindum í bílum, ég er nefnilega með 1968 Ford Bronco sem ég var nú að spá í að fara að gera upp, helvíti ryðgaður í alla staði, og ég heyrði nefnilega að ef grindin er ryðguð, mætti bara sjóða/gera við hana af viðurkenndum aðila? eða bara eitthvað heimagert? því að þetta er burður bílsins.. Eitthvað líkt
Fyrirfram þakkir
Re: Ryðguð grind
Sent: Sun 27. Maí 2012 17:20
af viddi
Getur mögulega gert við hana sjálfur en þarft mjög líklega að fara með hana í skoðun til viðurkennda aðila, eins og breytingaskoðun sem jeppar fara í eftir breytingu.
Re: Ryðguð grind
Sent: Sun 27. Maí 2012 23:02
af Yawnk
viddi skrifaði:Getur mögulega gert við hana sjálfur en þarft mjög líklega að fara með hana í skoðun til viðurkennda aðila, eins og breytingaskoðun sem jeppar fara í eftir breytingu.
Takk
Re: Ryðguð grind
Sent: Sun 27. Maí 2012 23:22
af biturk
síður bara í hana (ef þþú kannt það) og slípar niður allar suður, grunnar og málar grindina ásamt öllu öðru og þá geta þeir ekkert sannað né séð
Re: Ryðguð grind
Sent: Mán 28. Maí 2012 00:01
af Zorglub
Þetta fer svo algerlega eftir framtíð bílsins, hvort hann á að vera antik eða í fullri notkun. Ekkert mál að stagbæta og mála ef burðurinn er aukaatriði, ef ekki þá er það bara kofinn af og skera og sníða bætur í hana. Ekki flókið fyrir þokkalegan suðumann, aðalmálið með suðuna er að búa ekki til veika punkta sem brotna eftir smátíma.
Skoðunarmenn athuga bara hvort grindin sé heil, nema þeir sjái einhver hræðileg vinnubrögð, þá gætirðu lent í vandræðum.
Margir sem fara í svona stórar aðgerðir láta þá sandblása grindina fyrir viðgerð og senda svo jafnvel á Akureyri í zinkhúðun.
Maður er eiginlega alveg hættur að hugsa þannig að reyna "sleppa" í gegnum skoðun, búinn að sjá margar brotnar jeppagrindur eftir skítamix, það borgar sig að gera þetta almennilega.
Re: Ryðguð grind
Sent: Mán 28. Maí 2012 00:08
af demigod
http://www.jeppaspjall.isFrábærir reynsluboltar á þessarri síðu sem eru pottþétt til í að leiðbeina/hjálpa þér eitthvað með þetta
Re: Ryðguð grind
Sent: Mán 28. Maí 2012 23:24
af elv
Vill benda á með zink-karið á Akureyri, og það er stærðin á því.
Því þó það sé 9m langt, þá er dýptin ekki nema 1,8m ( sem þýðir að það þarf að tvídýfa flestum ef ekki öllum bílun, sem þýðir 40% álag) .
Síðan er breiddinn á karinu ekki nema 0,9m, þannig að öll þök þyrfti að taka af td.
Karið hérna í bænum er svipað að stærð, en reyndar aðeins breiðara ( er sirka 1m)
Er ekki að hvernig hægt sé að zinka bílgrind nema í pörtum og þurfa svo að sjóða saman eftir á ( sjóða í zink er bara viðbjóður )
Re: Ryðguð grind
Sent: Þri 29. Maí 2012 23:15
af Klaufi
elv skrifaði:Vill benda á með zink-karið á Akureyri, og það er stærðin á því.
Því þó það sé 9m langt, þá er dýptin ekki nema 1,8m ( sem þýðir að það þarf að tvídýfa flestum ef ekki öllum bílun, sem þýðir 40% álag) .
Síðan er breiddinn á karinu ekki nema 0,9m, þannig að öll þök þyrfti að taka af td.
Karið hérna í bænum er svipað að stærð, en reyndar aðeins breiðara ( er sirka 1m)
Er ekki að hvernig hægt sé að zinka bílgrind nema í pörtum og þurfa svo að sjóða saman eftir á ( sjóða í zink er bara viðbjóður )
Þetta er grindarbíll
Það eina sem menn eru að "galvanizera" er grindin sem boddýið skrúfast á, og svo hásingar, vél, gírkassi etc.
Ekki sambyggt eins og á flestum fólksbílum.
Þ.e. Það sem er búið að sandblása á þessari mynd:
P.s. Mjööög þreyttur ef ég skyldi vera að misskilja þig ^^
Re: Ryðguð grind
Sent: Mið 30. Maí 2012 08:41
af Benzmann
slípar bara allt ryð í burtu,, Sinkar hana alla svo, og svo málaru hana