Síða 1 af 2

RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 19:12
af tdog
Ég var að taka eftir því að á rás 201 í Sjónvarpi Símans er RÚV í háskerpu. Er þetta eitthvað nýtt eða er ég svona eftir á?

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 19:17
af AntiTrust
Held þetta sé tímabundið vegna Eurovision.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 19:30
af GuðjónR
Ég kemst ekki hærra en 146 ...

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 19:42
af AndriKarl
Er það ekki rétt hjá mér að þeir eru að fara að senda flest ef ekki allt út í HD á næstunni?
En ég kemst ekki á þessa rás

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 19:49
af tdog
Hmm... Ég var að fletta yfir dagskrárlistann, ætlaði að sjá ESC í HD og brá svolítið þegar ég sá þessa rás. En þetta er snilld.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:26
af hagur
997 á Vodafone TV.

Þetta er bara tímabundið. Þessi rás var líka virk í janúar þegar handboltamótið var, EM eða HM, man ekki.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:30
af Tbot
Ég hef meiri áhuga á að losna við rúv kjaftæðið og þurfa að borga skatt vegna þess.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:40
af Bjosep
Tbot skrifaði:Ég hef meiri áhuga á að losna við rúv kjaftæðið og þurfa að borga skatt vegna þess.


http://www.youtube.com/watch?v=4gO7uemm6Yo

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:40
af Moldvarpan
Tbot skrifaði:Ég hef meiri áhuga á að losna við rúv kjaftæðið og þurfa að borga skatt vegna þess.


Þú munt draga þessi orð tilbaka eftir 50 ár haha.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:49
af gutti
þarf vera með hd afrugla til ná í hd rúv ég næ ekki hd grrr :crying

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:53
af Jimmy
Moldvarpan skrifaði:Þú munt draga þessi orð tilbaka eftir 50 ár haha.


Hvað er hann þá búinn að borga mikið fyrir þetta drasl?

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:14
af arons4
Veit ekki en það kom í útvarpinu í gær held ég að það væri verið að skitpa út eitthverju þór 5 fyrir þór 6 eða eitthvað, hef hinsvegar enga hugmynd um hvað það er.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:24
af Moldvarpan

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:54
af mundivalur
Ég næ bara Ruv :face en þeir voru eitthvað að tala um að það verði komið Ruv HD "allstaðar" eftir 2 ár(var í fréttum fyrir 1-2mán)
,ég man ekki hvaða leið þetta átti að fara í jörð eða loft !

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 22:53
af appel
RÚV HD er komin í Sjónvarp Símans. En þetta er aðeins tilraunastöð, og Eurovision var fyrsti viðburðurinn sem var sýndur í HD, allt annað er í SD.

Þetta átti ekki að vera opinber stöð, en svo virðist sem hún hafi slæðst inn :-" :-k

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 22:59
af bAZik
Rúv HD var líka á vodafone sjónvarpinu, mjög gaman að því.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 23:31
af Tbot
Moldvarpan skrifaði:
Tbot skrifaði:Ég hef meiri áhuga á að losna við rúv kjaftæðið og þurfa að borga skatt vegna þess.


Þú munt draga þessi orð tilbaka eftir 50 ár haha.


Mun aldrei draga þau til baka. Er með gervihnattadisk og næ slatta af rásum.

Að þurfa að borga undir rassgatið á svokölluðum útvarpsstjóra, hlutdrægri fréttastofu sem segir aldrei neitt illt um "samspillinguna", evrópusamband og Evru.
Að ónefndum Agli einhvað.

Re: RÚV HD

Sent: Lau 26. Maí 2012 23:45
af appel
Hvar annarsstaðar færð þú textað guiding light? :sleezyjoe

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 00:07
af tdog
appel skrifaði:Hvar annarsstaðar færð þú textað guiding light? :sleezyjoe


Talandi um texta… Er ekkert á dagskránni að bæta við Textavarpi í Sjónvarp Símans? T.d þegar þú ýtir á græna aðgerðahnappinn þá fái maður upp textavarpið.

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 01:37
af DJOli
Hvað þá með að bæta við Teletext 2.5?

Samanburður á Teletext 1.0 (sem rúv notar ennþá, eftir öll þessi ár) og Teletext 2.5.
Mynd

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 03:39
af urban
DJOli skrifaði:Hvað þá með að bæta við Teletext 2.5?

Samanburður á Teletext 1.0 (sem rúv notar ennþá, eftir öll þessi ár) og Teletext 2.5.
MYND


og hver á munurinn þarna á milli að vera ?

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 04:00
af DJOli
urban skrifaði:
DJOli skrifaði:Hvað þá með að bæta við Teletext 2.5?

Samanburður á Teletext 1.0 (sem rúv notar ennþá, eftir öll þessi ár) og Teletext 2.5.
MYND


og hver á munurinn þarna á milli að vera ?


A new graphic standard found its way to the European market around 2000: Level 2.5 or HiText. With Level 2.5 it is possible to set a background colour and have higher resolution text and images. However, very few television stations transmit their teletext in this new standard. One of the problems with Level 2.5 is that it often takes several transmission cycles before the higher resolution items show on the screen. In order to watch Level 2.5 teletext, a rather recent television set with a special decoder chip is required.
However, the system has not been widely implemented, with only a handful of European state broadcasters supporting it. Television stations which are known to transmit teletext in Level 2.5 include
the Dutch public broadcaster NOS (background colour on all pages, and a test page with hi-res graphics),
the French France 3 and
the German
ZDF (some pages),
3sat (some pages) and
SWR Fernsehen (completely backwards-compatible Level 2.5 teletext, with higher quality text and graphics on nearly all pages), as well as
Bayerisches Fernsehen,
BR-alpha, and
Phoenix on some pages.

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 04:18
af urban
DJOli skrifaði:
urban skrifaði:
DJOli skrifaði:Hvað þá með að bæta við Teletext 2.5?

Samanburður á Teletext 1.0 (sem rúv notar ennþá, eftir öll þessi ár) og Teletext 2.5.
MYND


og hver á munurinn þarna á milli að vera ?


hellings texti...


semsagt basicly...
þetta uppfærir textavarpið úr 8bit í 16bit...
eitthvað sem að skiptir alveg nákvæmlega engu máli í textavarpi, þar sem að jú lets face it, við erum ekki að fara skoða myndir þarna..
okkur vantar aðalega einhverjar alveg gersamlega basic upplýsingar sem að skipta engu máli hvernig þær eru settar fram, bara að þær komi.

allavega er ég sáttur fyrir mitt leiti að rúv sé ekki að eyða peningunum "mínum" í það að uppfæra hjá sér textavarpið bara til að gera það "aðeins flottara"

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 04:34
af appel
Teletext er mjög gamaldags, og er að hverfa. Málið er að það heljarinnar vandamál að senda út teletext með stöðvum í stafrænni útsendingu. Teletext þarf c.a. 10% af bandvídd af hverri stöð, þannig að fórna þarf myndgæðum fyrir það. Þar að auki er teletext stuðningur á hdmi ansi mikið vandamál á myndlyklum, og þarf að notast við OSD.

Re: RÚV HD

Sent: Sun 27. Maí 2012 07:24
af DJOli
já ókei, þá þarf ekkert að pæla í því.

Hinsvegar dauðlangar mig að sjá hvernig það fer með rúv.
Ætla þeir að upscale-a allt myndefni sem þeir eru með í sd til að senda út í hd?
hættum við þá að sjá gamla þætti á rúv?, kemur "rúv gull?"