Síða 1 af 1
hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 01:34
af kubbur
er að skoða svona hvað er til á markaðnum
er að gefa pedigree núna en finnst hundarnir alltaf vera með svo mjúkar og ljósar hægðir, fá samt næga hreyfingu(annan hvern dag í langan göngutúr, hjólatúr þegar veður leyfir
hef stundum gefið þeim afgang af hafragraut (bara haframjöl og vatn) og af og til bæti ég lýsi útá
finnst pedigree bara alltaf fá svo slæma umfjöllun svo mig langar að prufa eitthvað nýtt
er einnig spenntur fyrir uppskriftum af heimatilbúnum hundamat
hvað ertu að gefa hundinum þínum, hvernig hund ertu með og hvernig hreyfingu fær hann?
also, einhver hérna sem kannast við "go to ground" hundafimi ?
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 01:47
af coldcut
Við mig hefur alltaf verið sagt að Pedigree sé ruslfæði hunda.
Ég er sjálfur með Bichon Frise og hef prófað Regal, Royal Canin og Hills fóður. Allt mjög gott fóður en 95% af fóðrinu sem hann hefur fengið er Regal og það virkar mjög vel. Þú getur séð hversu góður maturinn er á því hversu miklu hundurinn skítur. Góður matur --> minni skítur því maturinn nýtist betur, samkvæmt því er Hills besti maturinn en málið með hann er að hann er ÓGEÐSLEGA dýr! Regal er mjög svipaður og hundinum mínum finnst hann líka betri.
Ætli hundurinn minn fái ekki svona 45-60mín hreyfingu á dag sem er nokkuð mikið fyrir svona hund, miðað við aðra eins hunda sem ég veit um, en hann kvartar ekki og er mjög sáttur.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 02:13
af Manager1
Eg er að þjálfa björgunarhund. Border Collie og er mjög aktívur, hann þarf mikla hreyfingu og fær hana líka :-)
Björgunarhundasveit íslands er með samning við
http://www.bendir.is sem selja mjög gott sænskt fóður. Minn hefur verið á þessu fóðri í þrjú ár og engin vandamál komið upp. Hann var á Hills fóðri en eftir að ég skipti þá fór hann miklu minna úr hárum.
ég hef aldrei heyrt um þessa go to ground hundafimi.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 02:45
af kubbur
Manager1 skrifaði:Eg er að þjálfa björgunarhund. Border Collie og er mjög aktívur, hann þarf mikla hreyfingu og fær hana líka :-)
Björgunarhundasveit íslands er með samning við
http://www.bendir.is sem selja mjög gott sænskt fóður. Minn hefur verið á þessu fóðri í þrjú ár og engin vandamál komið upp. Hann var á Hills fóðri en eftir að ég skipti þá fór hann miklu minna úr hárum.
ég hef aldrei heyrt um þessa go to ground hundafimi.
http://www.youtube.com/watch?v=H1Q7SU58HCo hér er myndband af svoleiðis æfingu
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 03:08
af AciD_RaiN
Þegar við vorum að rækta hunda þá vorum við alltaf með royal canin og í dag erum við með maine coon ræktun og notum líka royal canin handa þeim og þó að þetta sé kannski dýrara en annað fóður þá er það bara einfaldlega best punktur
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 03:33
af kubbur
AciD_RaiN skrifaði:Þegar við vorum að rækta hunda þá vorum við alltaf með royal canin og í dag erum við með maine coon ræktun og notum líka royal canin handa þeim og þó að þetta sé kannski dýrara en annað fóður þá er það bara einfaldlega best punktur
spurning um að prufa það, en ég VERÐ að skipta um fóður hjá border terrierinum, hann rekur svo hrottalega við af þessu
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 03:45
af AciD_RaiN
Ég var að reyna að hljóma rosa harður sko
En royal canain hefur oft lagað meltinguna og feldinn hjá hundum sem ég veit um... Veit ekkert hvort ég er að meika sense er eitthvað voða búinn á því
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 09:33
af Halli25
Er með minn á Nordic Ferskfóðri frá hundahreysti, finnst hann nýta fæðið mun betur og ekki eins rosaleg lykt af hægðunum. Feldurinn á honum er rosalega flottur og fær alltaf hrós frá þeim sem hitta hann útá götu, er að hreyfa hann ca. 3x 15 mín á dag og reynum að fara með hann alla vega 1x í viku í lengri göngur.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 11:51
af SolidFeather
Ef ég ætti hund þá myndi ég bara gefa honum kjöt að borða, sleppa þessum drasl hundamat sem aðal uppistaðan í er korn.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 11:55
af GuðjónR
SolidFeather skrifaði:Ef ég ætti hund þá myndi ég bara gefa honum kjöt að borða, sleppa þessum drasl hundamat sem aðal uppistaðan í er korn.
Þú færir fljótt á hausinn ef þú gæfir honum kjöt í öll mál.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 11:56
af addifreysi
GuðjónR skrifaði:SolidFeather skrifaði:Ef ég ætti hund þá myndi ég bara gefa honum kjöt að borða, sleppa þessum drasl hundamat sem aðal uppistaðan í er korn.
Þú færir fljótt á hausinn ef þú gæfir honum kjöt í öll mál.
Þá byrjar rólega að fækka fólki í nágreninu
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 11:58
af SolidFeather
GuðjónR skrifaði:SolidFeather skrifaði:Ef ég ætti hund þá myndi ég bara gefa honum kjöt að borða, sleppa þessum drasl hundamat sem aðal uppistaðan í er korn.
Þú færir fljótt á hausinn ef þú gæfir honum kjöt í öll mál.
Það yrði reyndar eini gallinn.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 12:39
af emmi
Er með mína á fæði frá Hundahreysti, langbesti maturinn. Svo kaupi ég frosin hjörtu í bónus og læt nokkra bita útá matinn með.
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 13:32
af playman
Í gvuðana bænum hættu að gefa honum pedigree, ég var með tíkinna á pedigree og hún fékk gríðarlegan tannstein eftir þetta rusl.
Og ég er búin að heyra í fleyrum að hundarnir þeirra séu að fá tannstein eftir pedigree.
Ég prufaði fóður sem fæst í Nettó, man ekki hvað það heitir, held að það sé frá Purina. Þetta er í Bláum pokum.
Ég sá rosalegan mun á tíkinni eftir að ég setti hana á þetta fóður, feldurinn miklu betri og hún náði að "fitna" aðeins.
Svo er eitt líka rosalega gott að gera, sérstaklega þar sem að það er að koma sumar,
versla sér smá súpukjöt og setja það í fristinn, henda svo einum frosnum bita með hundinum út og leifa honum að naga þetta,
mín var ílla ánægð að fá svona til að naga, og tannsteinninn minkaði aðeins við þetta.
Ég hef heirt að sumir hundar fá í magann að fá svona hrátt kjöt, þannig að ég myndi gefa honum það
þegar að það er ekkert planað hjá þér t.d. um helgi, ef að hann skildi fá í magan
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 15:17
af Gunnar Andri
Ég er með rottweiler tík og hef prófað ýmsar tegundir af fóðri.
Halla Foder (frá bendi) virkaði ekki fyrir okkur vegna þess að hún virtist ekki fá næga næringu frá fóðrinu.
Hills virkaði vel en hárlos var svolítið og líka dýrt.
Erum núna með hana á belcando og allt gengur vel eins og er.
Belcando fæst í dýragarðinum síðumúla.
Svo hef ég líka heyrt góðar sögur af Arden Grange sem fæst í dýralandi
Re: hundar og hundamatur ?
Sent: Sun 20. Maí 2012 18:16
af kubbur
Jà, þarf eitthvað að skoða þetta, væri alveg til i að gera heimatilbùinn hundamat fyrir þà