Síða 1 af 2

Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 09:22
af GuðjónR
Varð að deila þessu með ykkur.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 09:25
af kubbur
klárlega

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 13:30
af Bjosep
Uhhh þetta er beinir?

Er ekki einn slíkur á flestum heimilum? :sleezyjoe

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:10
af GuðjónR
Bjosep skrifaði:Uhhh þetta er beinir?

Er ekki einn slíkur á flestum heimilum? :sleezyjoe


Nei ekki alveg, þetta tæki er notað til að hakka sig inn á Wi-Fi netkerfi.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:18
af MatroX
eitthver til í hóppöntun af þessu? :)

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:25
af Aravil
Er ég sá eini sem finnst skorta upplýsingar á síðuna um hvað þetta gerir í basics?
En eins og ég best skil þetta (sem er ekki mjög vel) þá líkist þetta access point sem loggar traffic?

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:30
af zedro
http://www.youtube.com/watch?v=ckxzUWGZ0DU
Reyndar útgáfa 3 en helv gott myndband :japsmile

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:48
af playman
Þetta eru algerir snillingar hjá HAK5 er búin að horfa á alla þættina og bíð alltaf eftir næsta :happy

Uppáhaldið mitt er án efa Rubber Ducky


Aravil skrifaði:Er ég sá eini sem finnst skorta upplýsingar á síðuna um hvað þetta gerir í basics?
En eins og ég best skil þetta (sem er ekki mjög vel) þá líkist þetta access point sem loggar traffic?

Þau hjá HAK5 eru með nokkra þætti sem útskíra og sína hverninn þetta tæki virkar.
Hérna er aðeins farið í þetta. http://hak5.org/episodes/hak5-1013
Og hérna er Pinapple WIKI https://github.com/sebkinne/wifipineapple/wiki

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:54
af AciD_RaiN
Aravil skrifaði:Er ég sá eini sem finnst skorta upplýsingar á síðuna um hvað þetta gerir í basics?
En eins og ég best skil þetta (sem er ekki mjög vel) þá líkist þetta access point sem loggar traffic?

Ég hélt að ég væri bara svona lélegur í að lesa ensku að ég skyldi þetta ekki :catgotmyballs

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:58
af tdog
Eini ananasinn sem mig langar í núna!

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 15:01
af dandri
Hver ætlar að vera fyrstur að skilja þetta eftir í kringlunni og logga?

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 15:09
af Ulli
Tæki til að hakka aðra?

Eins gott að Orion sjái ekki þennan þráð :megasmile

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 17:45
af ORION
Ulli skrifaði:Tæki til að hakka aðra?

Eins gott að Orion sjái ekki þennan þráð :megasmile


Too late!

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 20:53
af Akumo
Mmm.. mér langar í ananas.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:48
af zedro
Eftir að hafa horft á videóið sem ég linka hér að ofan er ég orðinn frekar óöruggur með
mína tengingu.... mér finnst það sérkennilegt að enginn sem búinn að bera það fram...

Hvað getur maður gert til að tryggja betur netið sitt heima? :-k

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 01:10
af playman
Zedro skrifaði:Eftir að hafa horft á videóið sem ég linka hér að ofan er ég orðinn frekar óöruggur með
mína tengingu.... mér finnst það sérkennilegt að enginn sem búinn að bera það fram...

Hvað getur maður gert til að tryggja betur netið sitt heima? :-k

Horfa á HAK5 og læra af þeim, þau koma oft með hugmyndor hverninn best er að verja sig.
Ein besta lausnin er að slökkva bara á þráðlausa netinnu, eða bara registration requirement og aðeins leyfa vissar MAC addressur á WIFI netið.
En það sosum stoppar ekki man in the middle attack.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 01:31
af SIKk
Akumo skrifaði:Mmm.. mér langar í ananas.

fyndið að ég fór og skar mér ananas útaf þessum þræði :happy

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 09:20
af Hjaltiatla
In order to help you keep your web browsing away from prying eyes, the Electronic Frontier Foundation has produced plug-in called HTTPS Everywhere
http://www.eff.org/https-everywhere

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 13:37
af coldcut
Hjaltiatla skrifaði:In order to help you keep your web browsing away from prying eyes, the Electronic Frontier Foundation has produced plug-in called HTTPS Everywhere
http://www.eff.org/https-everywhere


því miður þá virkar https everywhere ekki nema að vefsíðan sjálf styðji það :/

@playman: mac-address filtering gerir ekki neitt fyrir þig ef crackarinn er "determined" og í rauninni tefur þetta hann bara örlítið.

@zedro: routerarnir og það öryggi sem kemur frá þeim er drasl. (http://www.youtube.com/watch?v=_npU_5tyJ5w)
Málið í dag er bara að vera með nógu andskoti "mikið" security (safety in numbers). T.d. hjá Vodafone:
1. Slökkva á easy wifi.
2. "Setja upp" nýtt wifi með wpa-dulkóðun, falið SSID sem erfitt er að uppgötva og lykilorð með 16+ bók/tölu/sérstöfum blandað saman.
3. MAC-address filtering.

Þetta hægir aðeins á en ef einhver VILL brjótast inn þá gerir hann það. Mitt net er t.d. ekki nógu safe fyrir mína parta, get ekki falið SSID og wpa2-passinn má ekki vera með sértáknum af einhverjum ástæðum. Ekki routernum að kenna því þetta virkar á á OS X, iOS, Android og Ubuntu en neeeeeeiiiiiii að sjálfsögðu þarf Winblows 7 að skemma þetta fyrir mér og neita að tengjast. DRASL!

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 13:50
af Pandemic
coldcut skrifaði:2. "Setja upp" nýtt wifi með wpa-dulkóðun, falið SSID sem erfitt er að uppgötva og lykilorð með 16+ bók/tölu/sérstöfum blandað saman.


Það er mjög léleg hugmynd að fela SSID því þú ert í raun að brjóta staðalinn með því og að auglýsa út í loftið netið sem þú vilt tengjast sem gerir þig enn viðkvæmari fyrir Rouge AP árásum.

Besta lausnin er bara sú að slökkva á öllu sem heitir WEP og hafa WPA2-PSK(fyrir heimilisnotendur) með góðu 16-18 stafa lykilorði og engu sem gæti komið fyrir í orðabók.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 13:58
af coldcut
Pandemic skrifaði:
coldcut skrifaði:2. "Setja upp" nýtt wifi með wpa-dulkóðun, falið SSID sem erfitt er að uppgötva og lykilorð með 16+ bók/tölu/sérstöfum blandað saman.


Það er mjög léleg hugmynd að fela SSID því þú ert í raun að brjóta staðalinn með því og að auglýsa út í loftið netið sem þú vilt tengjast sem gerir þig enn viðkvæmari fyrir Rouge AP árásum.

Besta lausnin er bara sú að slökkva á öllu sem heitir WEP og hafa WPA2-PSK(fyrir heimilisnotendur) með góðu 16-18 stafa lykilorði og engu sem gæti komið fyrir í orðabók.


já ókeiiii ekki vissi ég það enda alls enginn sérfræðingur í þessum málum :sleezyjoe En af hverju í ósköpunum er þetta þá eitt af því fyrsta sem er oft mælt með í svona "secure your *" greinum? Furðulegt...

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 14:00
af Hjaltiatla
Líka ein leið til að athuga hvort passwordið manns sé gott er að nota John the Ripper og athuga hvort það er auðvelt að cracka það.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 14:10
af coldcut
16 stafir af há og lágstöfum með númerum inná milli verða að nægja mér því W7 er með vesen en...
Mig minnir að það hafi verið í umræðunni hérna einhvertímann user og pass inná administrator aðganginn á vodafone-routerunum, ef einhver man það þá endilega sendið mér PM, þarf að geta komist inná hann með telnet ef ég er ekki heima þegar t.d. bæta þarf við MAC-addressu. Þoli ekki að ég kaupi þjónustu af fyrirtæki og fæ svo ekki að stjórna búnaðinum sem ég er með...

(af hverju minnir mig að pw á voda-routerana sé e-ð landbúnaðartengt...)

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 14:17
af Pandemic
Veit ekki af hverju er alltaf mælt með því að fela SSID-ið þar sem þú getur séð það á núll einni með hvaða network sniffer sem er. Flestar árásirnar í dag ganga út á að ná handshake á milli AP og notanda og svo reyna annaðhvort dictionary árás eða bruteforce.
Önnur árás væri að ráðast á notandan eins og Pineapple gerir og býr til fake ap með sama SSID og mac addressu og einhver AP sem clientinn þekkir og sniffa svo upplýsingarnar þar á milli.

Það er mjög erfitt að verjast þeirri síðarnefndu í heimanetum þar sem þú þarft einhverskonar wireless lan controller til að ráðast á clientinn og/eða vonda AP-inn.
Flest fyrirtæki á landinu sem hafa eitthvað vit á öryggi eru með græjur sem geta áttað sig á svona árás og taka ráðstafanir og jafnvel geta kortlagt hvar "hackarinn" er.

Lokaorð eru þau að það er líka mjög sniðugt að breyta SSID nafninu því það er partur af hashinu ásamt lykilorðinu.

Re: Nauðsynlegt tæki á hvert heimili

Sent: Sun 13. Maí 2012 14:36
af coldcut
Já, en málið með SSID-ið er svolítið "Security through obscurity". Ég er mjög á móti þeirri hugsun en málið er að það eru 99% líkur á því að ef einhver ætlar að sniffa mitt network þá er hann amateur cracker að missa sig í u83r1337-skapnum og nýkominn með backtrack á usb kubb sem hann keyrir upp í staðinn fyrir windows XP-ið sitt. Þegar svoleiðis er á ferð þá hugsar maður svolítið: "æji ég þarf ekki frábærar varnir en ef ég set sem flestar þá eru mestar líkur á að hann klikki á einhverju eða gefist upp".

En eftir því sem ég er búinn að lesa síðasta kortérið þá er masked SSID ekki að valda neinum "skaða"...eða hvað?