Síða 1 af 1
Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 14:26
af AciD_RaiN
Sælir vaktarar.
Ég er búinn að vera í mestu makindum að reyna að finna hvað gæti verið að tölvunni hjá pabba. Málið er að það er eins og viftan á örgjörvanum sé að fara að taka á loft og þó er hitinn ekkert rosalegur.
Þetta var ekkert vandamál fyrsta hálfa árið eða svo en svo byrjuðu þessi svakalegu læti og hitinn var að fara í 60°C idle þannig ég ákvað að skipta um hitaleiðandi krem og tók eftir því að heatsincið náði ekki yfir allan örgjörvan sem mér þótti heldur undarlegt en svo veit ég ekkert hvort það sé bara normal á AMD. Þetta er semsagt AMD Phenom II 555.
Lætin hættu í svona korter þannig ég skipti um kælingu og setti stock kælingu af Bulldozer en lætin halda samt áfram en örgjörvinn er samt ekkert að fara mikið hærra en 30°C idle.
Mér fannst eins og það væri svona ljósbrúnn litur á öllum endum á örgjörvanum þar sem heatsinkið náði ekki yfir upprunalega.
Ég skipti um hitaleiðandi krem og kælingu.
Ég restore-aði BIOS því pabbi sagðist hafa verið að fikta eitthvað þar og ekkert vitað hvað hann gerði.
Er búinn að fara yfir BIOS til að athuga hvort það sé eitthvað þar en t.d. þá er stilling cool and quiet á Auto og getur bara verið þannig eða Disabled.
Hvað er næsta skref?
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 14:41
af methylman
Athuga stillingar í BIOS
Hvaða kælimarkmið eru sett er óskakæling er 30°C þá er viftan á fullu
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 14:56
af AciD_RaiN
methylman skrifaði:Athuga stillingar í BIOS
Hvaða kælimarkmið eru sett er óskakæling er 30°C þá er viftan á fullu
Búinn að athuga stillingar í BIOS. Það stendur svo að 69°C sé max og viftan er á svona 3000rpm við þennan hita en fer ennþá hraðar ef ég skelli prime í gang... Er damt ekkert að fara yfir 54°C í fullri vinnslu...
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 17:04
af Bjosep
Gæti forrit eins og speedfan mögulega hjálpað þér?
http://www.almico.com/speedfan.php
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 17:08
af Garri
Lenti í því þegar ég setti nýja viftu í tölvu að viftan festist á mesta hraða. Vélin keyrði ísköld en viftan snerist samt á mestum hraða. Einasta ráðið var að tvíka stillingar í Bios fram og til baka sem höfðu með hraðann á viftunni að gera (man ekki lengur hvaða), eftir það datt hraðinn niður í mjög svo hóflegan hraða og hitinn fór upp í 35°c sem hann hefur haldið sér í síðan.
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 17:16
af AciD_RaiN
Ég var búinn að prófa þetta forrit en breytti engu
Garri skrifaði:Lenti í því þegar ég setti nýja viftu í tölvu að viftan festist á mesta hraða. Vélin keyrði ísköld en viftan snerist samt á mestum hraða. Einasta ráðið var að tvíka stillingar í Bios fram og til baka sem höfðu með hraðann á viftunni að gera (man ekki lengur hvaða), eftir það datt hraðinn niður í mjög svo hóflegan hraða og hitinn fór upp í 35°c sem hann hefur haldið sér í síðan.
Ég finn engan stað í þessum BIOS til að breyta neitt hraðanum á viftunni
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 17:46
af mundivalur
Settir þú 3-4pin tengið á réttan stað , getur prufað að setja tengið á annan stað
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 18:07
af AciD_RaiN
mundivalur skrifaði:Settir þú 3-4pin tengið á réttan stað , getur prufað að setja tengið á annan stað
Ég double checkaði á því en ætla samt að athuga aftur
Edit: Tékkaði á því og það er bara eitt viftutengi á móðurborðinu þannig það er í réttu...
Edit2: Er ekki hægt að fá viftulausa örgjörvakælingu einhversstaðar á góðu verði?? Þessi vél sem hann er með er náttúrulega bara til skammar en hann vill ekki fá sér almennilega tölvu
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 19:11
af Bjosep
Svona sem síðasta ráð, finnst eins og ég hafi nefnt þetta við þig áður. Ef þú ert ekki búinn að því, prufaðu að taka rafhlöðuna úr móðurborðinu og setja þær aftur í eftir einhverjar sekúndur og athugaðu hvort það breytir einhverju.
Ef það virkar ekki ...
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 19:18
af AciD_RaiN
Bjosep skrifaði:Svona sem síðasta ráð, finnst eins og ég hafi nefnt þetta við þig áður. Ef þú ert ekki búinn að því, prufaðu að taka rafhlöðuna úr móðurborðinu og setja þær aftur í eftir einhverjar sekúndur og athugaðu hvort það breytir einhverju.
Ef það virkar ekki ...
Veistu á þessu stigi málsins eru engin ráð slæm... Prófa þetta
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 19:30
af Garri
Gúglaðu BIOS gerðina og Fan speed
Fann þetta sem efsta leitaratriði:
http://www.ehow.com/how_7609205_adjust-fan-speeds-bios.html
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 19:43
af AciD_RaiN
Ég var einmitt búinn að googla þetta í tætlur
Það er engin leið að breyta fan speed í þessum bios.
Það sem ég tók eftir núna eftir að hafa tekið batterýið úr (og þar með breytt klukkunni á kirkjunni í leiðinni
) var að þó að engin vinnsla sé í gangi þá hoppar CPU úr 1% í 60% og aftur niður í lítið og upp og niður eins og skopparabolti... Svo er harði diskurinn að vinna ENDALAUST... Er ekki bara málið að fá sér nýjan AM3 örgjörva ef maður finnir hann ódýrt??
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 19:46
af beatmaster
Hvaða móðurborð er þetta?
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Mið 09. Maí 2012 19:56
af AciD_RaiN
beatmaster skrifaði:Hvaða móðurborð er þetta?
Gigabyte GA-MA78LMT-S2 socket M2 með AMD Phenom II X2 555
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 08:56
af Daz
AciD_RaiN skrifaði:Ég var einmitt búinn að googla þetta í tætlur
Það er engin leið að breyta fan speed í þessum bios.
Það sem ég tók eftir núna eftir að hafa tekið batterýið úr (og þar með breytt klukkunni á kirkjunni í leiðinni
) var að þó að engin vinnsla sé í gangi þá hoppar CPU úr 1% í 60% og aftur niður í lítið og upp og niður eins og skopparabolti... Svo er harði diskurinn að vinna ENDALAUST... Er ekki bara málið að fá sér nýjan AM3 örgjörva ef maður finnir hann ódýrt??
Að taka batteríið úr hreinsar allar stillingar í BIOS, í þínu tilfelli hefði verið allt eins einfalt að fara í BIOSinn og velja "restore factory default". Ekki að það skipti öllu. En augljóslega voru stillingar í BIOSinum sem létu tölvuna hegða sér betur. Þó þú fáir þér nýjan örgjörva þá hættir þetta vesen með harða diskinn ekkert. Sama með CPU usage sveiflurnar, þær breytast ekkert með nýjum CPU. Er ekki málið að googla þetta móðurborð og CPU combo bara betur og finna réttar stillingar?
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 14:38
af methylman
Og þú ert örugglega með nýjasta BIOS kóðann fyrir borðið er það ekki ?
Það er eitthvað að í BIOS ég hallast að því að þú flassir BIOS´inn aftur ef þú gerðir það í Windows og notir floppy drive
Og passaðu að fá BIOS fyrir . sömu útgáfu (rev.) af móðurborði
Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 15:23
af GuðjónR
Vírus?
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 16:01
af methylman
GuðjónR skrifaði:Vírus?
Nei ég held að þetta sé ekki Mac
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 18:22
af AciD_RaiN
methylman skrifaði:Og þú ert örugglega með nýjasta BIOS kóðann fyrir borðið er það ekki ?
Það er eitthvað að í BIOS ég hallast að því að þú flassir BIOS´inn aftur ef þú gerðir það í Windows og notir floppy drive
Og passaðu að fá BIOS fyrir . sömu útgáfu (rev.) af móðurborði
Gætir þú eða einhver annar útskýrt aðeins fyrir mér hvernig maður gerir þetta? Ég er reyndar ný búinn að henda öllum floppy drifunum mínum þannig ég verð að nota bara USB lykil ef það er hægt...
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 19:43
af Daz
AciD_RaiN skrifaði:methylman skrifaði:Og þú ert örugglega með nýjasta BIOS kóðann fyrir borðið er það ekki ?
Það er eitthvað að í BIOS ég hallast að því að þú flassir BIOS´inn aftur ef þú gerðir það í Windows og notir floppy drive
Og passaðu að fá BIOS fyrir . sömu útgáfu (rev.) af móðurborði
Gætir þú eða einhver annar útskýrt aðeins fyrir mér hvernig maður gerir þetta? Ég er reyndar ný búinn að henda öllum floppy drifunum mínum þannig ég verð að nota bara USB lykil ef það er hægt...
Ef þú ert ekki að kljást við "þekkt" vandamál sem BIOS uppfærsla lagar, þá held ég að þú sért ekki að fara að græða neitt á því veseni. Til að sjá hvað er að valda CPU usage og hard disk access, þá mæli ég með process explorer eða Resource Manager í Win7(vista?). Var ekki einhverntíman þekkt vandamál á AMD örgjörvum að þeir voru í 100% usage í Windows þegar Windows sagðist vera bara vera að keyra "System Idle processes". Eða var það kannski eldra.
Í það minnsta, byrjaðu á að finna hvaða process eru að nota diskinn og CPU. Svo finna útúr því hvað er að halda örgjörvaviftunni í gangi.
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 21:06
af AciD_RaiN
Daz skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:methylman skrifaði:Og þú ert örugglega með nýjasta BIOS kóðann fyrir borðið er það ekki ?
Það er eitthvað að í BIOS ég hallast að því að þú flassir BIOS´inn aftur ef þú gerðir það í Windows og notir floppy drive
Og passaðu að fá BIOS fyrir . sömu útgáfu (rev.) af móðurborði
Gætir þú eða einhver annar útskýrt aðeins fyrir mér hvernig maður gerir þetta? Ég er reyndar ný búinn að henda öllum floppy drifunum mínum þannig ég verð að nota bara USB lykil ef það er hægt...
Ef þú ert ekki að kljást við "þekkt" vandamál sem BIOS uppfærsla lagar, þá held ég að þú sért ekki að fara að græða neitt á því veseni. Til að sjá hvað er að valda CPU usage og hard disk access, þá mæli ég með process explorer eða Resource Manager í Win7(vista?). Var ekki einhverntíman þekkt vandamál á AMD örgjörvum að þeir voru í 100% usage í Windows þegar Windows sagðist vera bara vera að keyra "System Idle processes". Eða var það kannski eldra.
Í það minnsta, byrjaðu á að finna hvaða process eru að nota diskinn og CPU. Svo finna útúr því hvað er að halda örgjörvaviftunni í gangi.
Það virðast engin merkileg process vera í gangi. Bara dropbox sem er með ca 25.000 k í vinnslu
Mér er búið að finnast svo hæpið að þetta sé eitthvað hugbúnaðartengt en ætti maður að prófa að strauja vélina?
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 21:52
af playman
Af því að þú nefndir þetta með harðadiskinn sé að láta eins og skopparabolti þá getur það bent til þess að
eithvað sé að harðadiskinum, prófaðu að scanna hann með forriti frá framleiðandanum.
Ég veit að þér vantar hjálp með hávaða á viftuni, en ég var með eina ferða vél hérna
sem var með ónítum disk, hann lét svona eins og skoppara bolti og vélin var alltaf rosalega heit.
Eftir að ég skipti um diskinn þá varð hitin normal og allt í gúddí.
Re: Vantar hjálp með hávaða í örgjörvaviftu
Sent: Fim 10. Maí 2012 22:00
af Daz
AciD_RaiN skrifaði:Það virðast engin merkileg process vera í gangi. Bara dropbox sem er með ca 25.000 k í vinnslu
Mér er búið að finnast svo hæpið að þetta sé eitthvað hugbúnaðartengt en ætti maður að prófa að strauja vélina?
Mér finnst það líka mjög hæpið, þar sem þú segir að breytingin hafi komið um leið og þú resettaðir biosinn. Spurning um að fara bara nákvæmlega í gegnum allar stillingar í biosinum og googla þær. Það myndi í það minnsta ólíklega nokkurt lagast við að skipta um CPU, ekkert af þeim vandamálum sem þú hefur lýst í það minnsta.