Síða 1 af 1

Tækniskólinn

Sent: Sun 06. Maí 2012 22:26
af Leetxor
Hvernig líst fólki í Tækniskólanum á skólann, fólk á tölvubraut sérstaklega? Er eitthvað vit í honum? Pæling að skipta yfir í hann útaf þessu 3 ára plani meðal annars.

Re: Tækniskólinn

Sent: Sun 06. Maí 2012 22:31
af ASUStek
Ekki reyna að stela þessum þræði en ég mundi vilja líka fá að vita hvernig hann er og hvernig væri besta leiðinn að redda manni húsnæði

Re: Tækniskólinn

Sent: Sun 06. Maí 2012 23:45
af J1nX
talar bara við byggingafélag námsmanna og reynir að fá íbúð í gegnum þá ? :P

Re: Tækniskólinn

Sent: Mán 07. Maí 2012 00:22
af ASUStek
J1nX skrifaði:talar bara við byggingafélag námsmanna og reynir að fá íbúð í gegnum þá ? :P

takk æðislega!

Re: Tækniskólinn

Sent: Mán 07. Maí 2012 00:56
af J1nX
no prob :P

Re: Tækniskólinn

Sent: Mán 07. Maí 2012 21:27
af Leetxor
Enginn með neitt komment?

Re: Tækniskólinn

Sent: Mán 07. Maí 2012 21:36
af bixer
ég er á tölvubraut. þetta er fínasti skóli, frekar léttur. En svosem ekkert auðveldasti skólinn. kennararnir eru fínir, ekki strangir, mæting afslöppuð. Ég er allavega hrikalega sáttur þarna. pm-aðu mig bara ef þú ert að pæla í einhverju sérstöku

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 02:52
af Leetxor
Er ekkert að pæla í neinu sértstöku, bara hvernig fólk er að fíla skólann yfirhöfuð, hef heyrt bæði góða og slæma hluti en ég er búinn að ákveða að sækja um, vonandi kemst maður inn :sleezyjoe

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 05:07
af Kobbmeister
Þetta er alveg fínn skóli uppá tölvubrautina að gera, hef ekki reynslu af öðru. Er að klára tölvubrautina núna og hefur það verið gaman.
En ef þú ert að leita eftir skóla með félagslífi þá er minna félagslíf í þessum skóla en í kirkjugarði.

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 11:15
af gissur1
Óþolandi lið á tölvubraut. Afhverju þurfum við sem höfum okkar eigið tungumál að tala ensku? Það eru bókstaflega allir þarna talandi ensku alla daga og skoðandi 9gag og segjandi allskonar quotes sem þau sáu á 9gag eða einhvern memes. Ég allavega gat ekki verið þarna og því færði ég mig í annan skóla.

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 11:33
af Moquai
gissur1 skrifaði:Óþolandi lið á tölvubraut. Afhverju þurfum við sem höfum okkar eigið tungumál að tala ensku? Það eru bókstaflega allir þarna talandi ensku alla daga og skoðandi 9gag og segjandi allskonar quotes sem þau sáu á 9gag eða einhvern memes. Ég allavega gat ekki verið þarna og því færði ég mig í annan skóla.


True, ég kláraði ekki önnina :guy , 35% af þeim í tímum eru á 9gag/facebook.

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 11:55
af DJOli
Var í Tækniskólanum 2007.
Hætti.

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 12:07
af bixer
Moquai skrifaði:
gissur1 skrifaði:Óþolandi lið á tölvubraut. Afhverju þurfum við sem höfum okkar eigið tungumál að tala ensku? Það eru bókstaflega allir þarna talandi ensku alla daga og skoðandi 9gag og segjandi allskonar quotes sem þau sáu á 9gag eða einhvern memes. Ég allavega gat ekki verið þarna og því færði ég mig í annan skóla.


True, ég kláraði ekki önnina :guy , 35% af þeim í tímum eru á 9gag/facebook.


Verð reyndar að vera sammála þessu fyrir utan an það er sirka helmingur en alls ekki alla daga. er þetta skárra í öðrum skólum?

Re: Tækniskólinn

Sent: Fös 11. Maí 2012 20:38
af Frantic
Það eru svo margir sem fara á tölvubraut á röngum forsendum.
Krakkarnir sem villast þangað inn halda að það sé nóg að spila WoW eða EvE til að plumma sig á tölvubraut.
Hef oft ímyndað mér að foreldranir hljóta að ýta þeim þangað inn því þeir eru alltaf í tölvunni.

Hef líka séð svo marga koma þangað inn og droppa út eftir eina eða tvær annir því þeir skilja ekki neitt.
Það er sama fólkið sem biður ekki um hjálp og fer frekar á 9gag eða að finna leiðir til að spila wow á tölvunum í skólanum.

Þetta fólk síast út eftir nokkrar annir og þá er þetta bærilegt.
Þegar ég var á tölvubraut þarna voru snillingar að kenna en það hefur aðeins fækkað.
Sumir kennararnir virðast læra það sem þeir eru að kenna kvöldið áður.
En það eru alls ekki allir svoleiðis.

Re: Tækniskólinn

Sent: Lau 12. Maí 2012 02:44
af braudrist
Hvers konar rusl skóli er þetta? Af hverju er ekki bara lokað á Facebook, YouTube og allt þetta drasl?

Re: Tækniskólinn

Sent: Lau 12. Maí 2012 11:20
af AncientGod
Það er stór hluti sem hættir líka því það hélt að tölvubraut væri meira um tölvur en ekki forritun, þetta skiptist svona 5% tölvu vélbúnaður, 95% forritun.

Re: Tækniskólinn

Sent: Lau 12. Maí 2012 16:38
af Kobbmeister
AncientGod skrifaði:Það er stór hluti sem hættir líka því það hélt að tölvubraut væri meira um tölvur en ekki forritun, þetta skiptist svona 5% tölvu vélbúnaður, 95% forritun.

EKki endilega, getur líka farið í meira af kerfisstjórn ef þú villt, ræður hvaða áfanga þú tekur eftir fyrstu 2 eða 3 annirnar, man ekki eftir hvaða önn það er. En já það er rétt hjá þér, það er lagt of mikla áherslu á forritun. Það er líka soldið vesen að hafa marga áfanga í vélbúnað.

Re: Tækniskólinn

Sent: Lau 12. Maí 2012 16:49
af Frantic
Kobbmeister skrifaði:
AncientGod skrifaði:Það er stór hluti sem hættir líka því það hélt að tölvubraut væri meira um tölvur en ekki forritun, þetta skiptist svona 5% tölvu vélbúnaður, 95% forritun.

EKki endilega, getur líka farið í meira af kerfisstjórn ef þú villt, ræður hvaða áfanga þú tekur eftir fyrstu 2 eða 3 annirnar, man ekki eftir hvaða önn það er. En já það er rétt hjá þér, það er lagt of mikla áherslu á forritun. Það er líka soldið vesen að hafa marga áfanga í vélbúnað.


Já það er rétt að maður getur ráðið seinna hvort maður leggur meiri áherslu á en hvaða kerfisstjóri þarf ekki að kunna að skrifa batch forrit eða reddað sér í einhverjum forritunarmálum?

Re: Tækniskólinn

Sent: Sun 13. Maí 2012 05:08
af Leetxor
gissur1 skrifaði:Óþolandi lið á tölvubraut. Afhverju þurfum við sem höfum okkar eigið tungumál að tala ensku? Það eru bókstaflega allir þarna talandi ensku alla daga og skoðandi 9gag og segjandi allskonar quotes sem þau sáu á 9gag eða einhvern memes. Ég allavega gat ekki verið þarna og því færði ég mig í annan skóla.


Vissi nú reyndar af þessu og ég tel mig getað höndlað það þó að ég gjörsamlega hata svona fólk af því að þeir eru hreint út sagt fávitar og ég er ekki að leitast eftir félagslífi er í Kvennó þar sem að það er mjög mikið félagslíf og ég tek engan þátt í því, ef mig langar á ball þekki ég fólk í öðrum skólum.


JoiKulp skrifaði:Það eru svo margir sem fara á tölvubraut á röngum forsendum.
Krakkarnir sem villast þangað inn halda að það sé nóg að spila WoW eða EvE til að plumma sig á tölvubraut.
Hef oft ímyndað mér að foreldranir hljóta að ýta þeim þangað inn því þeir eru alltaf í tölvunni.

Hef líka séð svo marga koma þangað inn og droppa út eftir eina eða tvær annir því þeir skilja ekki neitt.
Það er sama fólkið sem biður ekki um hjálp og fer frekar á 9gag eða að finna leiðir til að spila wow á tölvunum í skólanum.

Þetta fólk síast út eftir nokkrar annir og þá er þetta bærilegt.
Þegar ég var á tölvubraut þarna voru snillingar að kenna en það hefur aðeins fækkað.
Sumir kennararnir virðast læra það sem þeir eru að kenna kvöldið áður.
En það eru alls ekki allir svoleiðis.


Ég er að fara þangað af því að mig langar til þess að læra það að forrita og mögulega eitthvað í kerfisstjórnun.

Endilega komið með fleiri svör.

Re: Tækniskólinn

Sent: Sun 13. Maí 2012 12:58
af MCTS
Var á tölvubraut árið 2006 þegar maður var nýbúinn með grunnskólann hætti svo eftir eina önn enda ekki alveg það nám sem ég átti von á
en gæti vel verið að maður skelli sér þarna í nám aftur fyrst maður er ekki búinn með neitt nám