Síða 1 af 1
hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:28
af djvietice
ég reiknaði á 500$, en ég skil ekki þegar þetta kemur!??
Samtals gjöld kr:66.078 ISKHeildarverð:130.568 ISK
og hvað er CC Netfang*???
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:32
af Frantic
CC er væntanlega eins og í póstforritunum þar sem þú vilt senda afrit af póstinum á.
Hvaða flokk valdiru í reiknivélinni?
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:33
af valdij
Inn í aukagjöldum er VSK sem er oftast 25.5%, vörugjöld, svo allskonar stimpilgjöld og hvað þeir kalla þetta. Oft betri útskýringar á sundurliðun á reiknivélinni á
http://www.tollur.isCC netfang þýðir held ég bara að sami póstur er sendur í afriti á CC netfangið, ef þú ert með tvær e-mail addressur og villt láta senda á báðar. Eða þú ert að kaupa fyrir einhvern annan og villt að hann fá CC af kvittuninni.
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:38
af djvietice
þegar ég fékk vöruna, verð er 66þ eða 130þ?
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:39
af tdog
CC þýðir carbon copy. Dregið af því að þegar fólk skrifaði bréf í tvíriti þá var kalkípappír settur á milli blaða í ritvél og síðan skrifað. Carbon copy er því bara hreint afrit af bréfinu sem sent er. BCC, eða blind carbon copy er síðan afrit sem sent er, nema bara að sá sem fær póstinn upphaflega, sér ekki að það hefur verið sent blint afrit.
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:40
af corflame
Heildarverð: 130.568 ISK
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:42
af Frantic
Ef maður ætlar að kaupa sér hlut á $500 en kostar 130þús kominn hingað heim, þá held ég að maður eigi að íhuga bara að fljúga út eftir hlutnum og hlaupa í gegnum tollinn...
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:50
af djvietice
corflame skrifaði:Heildarverð: 130.568 ISK
ok, skil alveg núna
takk allir
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 16:51
af ORION
Ef þú villt lækka þetta aðeins, + Fá innlenda ábyrgð þá máttu alveg íhuga buy.is
Re: hvernig að kaupa frá shopusa.is?
Sent: Fim 03. Maí 2012 17:41
af aaxxxkk
Ég myndi ekki nota shopusa nema í algjörri neyð , sýnist þeir vera að taka slatta fyrir þessa þjónustu