Síða 1 af 3
Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 15:13
af tlord
Jibb loksins.
ætlar einhver að mæta kl 7?
Tími til kominn að eitthvað gerist á þessum markaði. Það hefur ekki verið alveg að virka
að það séu bara 2 aðilar að skipta þessu á milli sín.
td: ein f**** spíta 3m x 5 x 10 cm kostar fleiri þús, nóg komið, velkomin Bauhaus
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 15:20
af lukkuláki
tlord skrifaði:Jibb loksins.td: ein f**** spíta 3m x 5 x 10 cm kostar fleiri þús, nóg komið, velkomin Bauhaus
Hmmmm fleiri þúsundir ? dæmi ?
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 15:23
af AciD_RaiN
Ég hef alltaf fengið frábært verð á timbri í húsasmiðjunni í hafnarfirði og grunar að það muni ekkert verða mikið lægra verð hjá bauhaus miðað við hvað ég er með góðan afslátt í hfj...
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 15:48
af vesley
Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 16:06
af dabbiso
vesley skrifaði:Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
HEILDSÖLUR! Og hver notar krónutengi í dag? WAT
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 16:13
af vesley
dabbiso skrifaði:vesley skrifaði:Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
HEILDSÖLUR! Og hver notar krónutengi í dag? WAT
Rafvirkjar
Mig vantaði bara örfá stykki og var á hraðferð.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 16:33
af Arnarr
vesley skrifaði:dabbiso skrifaði:vesley skrifaði:Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
HEILDSÖLUR! Og hver notar krónutengi í dag? WAT
Rafvirkjar
Mig vantaði bara örfá stykki og var á hraðferð.
Krónutengi??????? Meinaru sex víra tengi ?
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 16:38
af Xberg
Arnarr skrifaði:vesley skrifaði:dabbiso skrifaði:vesley skrifaði:Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
HEILDSÖLUR! Og hver notar krónutengi í dag? WAT
Rafvirkjar
Mig vantaði bara örfá stykki og var á hraðferð.
Krónutengi??????? Meinaru sex víra tengi ?
Sumir kalla þetta krónutengi þvi það kostaði krónu fyrir 20.árum eða svo, ætli að stikkjaverðið í Ískraft sé ekki svona um 50.kr+ í dag
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 16:39
af vesley
Arnarr skrifaði:vesley skrifaði:dabbiso skrifaði:vesley skrifaði:Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
HEILDSÖLUR! Og hver notar krónutengi í dag? WAT
Rafvirkjar
Mig vantaði bara örfá stykki og var á hraðferð.
Krónutengi??????? Meinaru sex víra tengi ?
Sami hluturinn
Var alltaf kallað krónutengi en flestir reyndar farnir að kalla þetta sex víra tengi í dag.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 17:02
af dori
AciD_RaiN skrifaði:Ég hef alltaf fengið frábært verð á timbri í húsasmiðjunni í hafnarfirði og grunar að það muni ekkert verða mikið lægra verð hjá bauhaus miðað við hvað ég er með góðan afslátt í hfj...
Þetta er einmitt málið. Sumir eru með fáránlegan afslátt en meðaljón þarf að borga uppí topp. Ég vona að þessir viðskiptahættir komi til með að breytast með tilkomu Bauhaus.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 17:04
af Klaufi
dori skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Ég hef alltaf fengið frábært verð á timbri í húsasmiðjunni í hafnarfirði og grunar að það muni ekkert verða mikið lægra verð hjá bauhaus miðað við hvað ég er með góðan afslátt í hfj...
Þetta er einmitt málið. Sumir eru með fáránlegan afslátt en meðaljón þarf að borga uppí topp. Ég vona að þessir viðskiptahættir komi til með að breytast með tilkomu Bauhaus.
Það er einmitt bara fáránlegt að geta gengið inn í sum fyrirtæki og með því einu að biðja um afslátt, þá fær maður allt að 30% afslátt.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 17:07
af dori
Klaufi skrifaði:Það er einmitt bara fáránlegt að geta gengið inn í sum fyrirtæki og með því einu að biðja um afslátt, þá fær maður allt að 30% afslátt.
Nákvæmlega. Svo heldur maður að það sé verið að gera sjúklega vel við sig en þá veit maður ekki að aðrir aðilar fá kannski vel yfir 50% afslátt. Ég skil það að gera vel við fastakúnna en það er bara fáránlegt.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 18:11
af Arnarr
vesley skrifaði:Arnarr skrifaði:vesley skrifaði:dabbiso skrifaði:vesley skrifaði:Vona að verðið á skrúfum og tengjum muni lækka.
Borgaði 800 kall fyrir 10 krónutengi sem er alveg fáránlegt.
HEILDSÖLUR! Og hver notar krónutengi í dag? WAT
Rafvirkjar
Mig vantaði bara örfá stykki og var á hraðferð.
Krónutengi??????? Meinaru sex víra tengi ?
Sami hluturinn
Var alltaf kallað krónutengi en flestir reyndar farnir að kalla þetta sex víra tengi í dag.
piff, fyrir mér hljómar þetta jafn asnalega og að kalla dragbönd strappabönd
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Mið 02. Maí 2012 18:27
af GuðjónR
Það verður gaman að sjá hvering verðin verða hjá þeim.
Ég er samt hæfilega bjartsýnn á að þetta þýði betri verð.
Þar sem tvö eða þrjú ráðandi fyrirtæki eru á markaði er nú yfirleitt lítið um samkeppni og hvatinn til að lækka sig enginn.
Sjáið t.d.
Bankana, olíufélögin, tryggingafélögin, flugfélögin, símafélögin, byggingarvöruverslanir, já og matvöruverslanir, það munar ekki nema 2-3% á bónus/fjarðakaupum/krónunni og verðmunur á Bónus og Nóatúni er kominn niður í 21% sem er grín!
Eftir að Bónus (hagar) fóru á markað í jan/feb þá hefur allt hækkað svívirðilega þar.
Bauhaus opnar á laugard
Sent: Fim 03. Maí 2012 15:47
af GuðjónR
Jæja, var að fá Bauhaus bæklinginn og það er eins og ég var búinn að spá fyrir um.
Sömu verð og hjá Húsa/Byko.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Fim 03. Maí 2012 16:21
af vesley
GuðjónR skrifaði:Jæja, var að fá Bauhaus bæklinginn og það er eins og ég var búinn að spá fyrir um.
Sömu verð og hjá Húsa/Byko.
Það kemur mér alls ekki á óvart en núna er hinsvegar kominn 3 samkeppnisaðilinn á markað og það merkir að eitthverjir sem hafa verið að beina sínum viðskiptum til Húsa/Byko munu versla hjá Bauhaus sem leiðir vonandi til allavega smávægilegra lækkana.
Væri gaman að sjá góðann verðsamanburð á vörum.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 10:40
af lukkuláki
Jæja hverjir eru mættir á staðinn ?
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 10:55
af GuðjónR
lukkuláki skrifaði:Jæja hverjir eru mættir á staðinn ?
Not me, ætlaði að fara en eftir að hafa flett bæklingnum þá er ég ekkert spenntur.
Kíki þarna við einhverntíman þegar ég verð á ferðinni. Annars finnst mér stórar verslanir leiðinlegar.
T.d. forðast ég IKEA eins og heitan eldinn.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:05
af tdog
Mér finnst þeir góða svo flottann prís á 2x36W flúrlömpum, ~ 4 þúsund kall. Held að Ískraft sé að selja svoleiðis lampa á 11 þúsund og Reykjafell á 10. Held ég kaupi 20 stykki.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:12
af GuðjónR
tdog skrifaði:Mér finnst þeir góða svo flottann prís á 2x36W flúrlömpum, ~ 4 þúsund kall. Held að Ískraft sé að selja svoleiðis lampa á 11 þúsund og Reykjafell á 10. Held ég kaupi 20 stykki.
Hvað ertu að rækta?
p.s. það er talið að 2% af þjóðinni séu mætt í Bauhaus á opnunina....hvað er AÐ fólki?
http://www.dv.is/frettir/2012/5/5/ertu- ... a-verslun/
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:24
af lukkuláki
Mér finnst alveg eðlilegt að það sé smá spenna fyrir þessu en eins og venjulega fara Íslendingar vel yfir strikið
Ég bý hérna ekki langt frá og sé Bauhaus heiman frá mér það er haugur af bílum þarna sé ekki fólksmergðina en ekki dettur mér í hug að skoða þetta bákn fyrr en það fer að fækka verulega fólkinu þarna.
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:27
af tdog
GuðjónR skrifaði:tdog skrifaði:Mér finnst þeir góða svo flottann prís á 2x36W flúrlömpum, ~ 4 þúsund kall. Held að Ískraft sé að selja svoleiðis lampa á 11 þúsund og Reykjafell á 10. Held ég kaupi 20 stykki.
Hvað ertu að rækta?
Tengdapabbi ræktar sauðfé, og honum fyndist skemmtilegra að sjá skepnurnar yfir vetrartímann
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:32
af blitz
Var að frétta af gasgrilli sem var c.a. 80.000 ódýrara í Bauhaus vs Garðheimar/Húsasmiðjan
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:38
af coldcut
blitz skrifaði:Var að frétta af gasgrilli sem var c.a. 80.000 ódýrara í Bauhaus vs Garðheimar/Húsasmiðjan
Hvað er að frétta af því og hvað var það að gera?
Re: Bauhaus opnar á laugard
Sent: Lau 05. Maí 2012 11:42
af blitz
coldcut skrifaði:blitz skrifaði:Var að frétta af gasgrilli sem var c.a. 80.000 ódýrara í Bauhaus vs Garðheimar/Húsasmiðjan
Hvað er að frétta af því og hvað var það að gera?