Síða 1 af 1

Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 05:25
af sveik
Hvernig hefur ykkur vökturum að finna sumarvinnu?
Er að læra rafeindavirkjun og er að leita mér að samning. Hefur lítið gengið...

Var að spá í hvort þið hafið einhverjar uppástungur hvar maður getur prufað að sækja um? allar ábendingar velkomnar :)

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 06:53
af DJOli
ef þú ert ekkert á móti því að fara út á land myndi ég skoða ísafjörð eða reyðarfjörð, eitthvað í þeim dúr.

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 09:32
af Bjosep
Það er nú fullseint í rassinn gripið að vera að fara að leita núna en það er eflaust eitthvað í boði svosem.

Það er örugglega einfaldast fyrir þig að út á land að vinna á einhverju hóteli eða tjaldsvæði. Það er oft auglýst seint þar eftir starfsfólki og mig grunar að stöður þar séu ekki fylltar fyrr en rétt í upphafi sumars í mörgum tilfellum.

En síðan var vinnumálastofnun að auglýsa 900 sumarstörf.

http://www.vinnumalastofnun.is/sumarstorf/jobslist.aspx

Gætir athugað þetta mögulega.

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 10:00
af tdog
sveik skrifaði:Hvernig hefur ykkur vökturum að finna sumarvinnu?
Er að læra rafeindavirkjun og er að leita mér að samning. Hefur lítið gengið...

Var að spá í hvort þið hafið einhverjar uppástungur hvar maður getur prufað að sækja um? allar ábendingar velkomnar :)


Veit það fyrir víst að Norðuráli vantar rafeindavirkja til vinnu á verkstæði.

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 11:45
af jobbzi
Sæll
ég skal tala við frænda minn hann er meistari og hann þarf fólk sumarvinnu vegna margir að fara í sumarleyfi :happy
ef þú vilt skal ég tala við hann og sjá hvað hann hefur í boði fyrir þig ef þú hefur áhuga þar af segja :popp

-Jobbzi

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 19:47
af sveik
Kannski ekki fullseint í rassin gripið, byrjaði að sækja um störf í byrjun árs... Hef bara fengið nei, eða mun algengara, bara ekkert svar frá fyrirtækjum. Er lítið spenntur fyrir að fara út á land. Kem utan af landi og held ég gæti fengið vinnu ef ég vildi í mínum heimabæ. Langar aftur á móti mikið að vera í höfuðborginni.

@tdog takk fyrir ábendinguna :)

@jobbzi já það væri frábært. Endilega spyrðu eða settu mig í samband við hann :happy

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 20:05
af Bjosep
sveik skrifaði:Kannski ekki fullseint í rassin gripið, byrjaði að sækja um störf í byrjun árs... Hef bara fengið nei, eða mun algengara, bara ekkert svar frá fyrirtækjum. Er lítið spenntur fyrir að fara út á land. Kem utan af landi og held ég gæti fengið vinnu ef ég vildi í mínum heimabæ. Langar aftur á móti mikið að vera í höfuðborginni.


Ég skil þig svo sem alveg, er sjálfur í svipaðri stöðu og sótti um fullt af störfum tengt menntun minni og önnur almenn störf í höfuðborginni. En þetta er bara alltaf spurning hvaða gjaldi maður er tilbúinn að gjalda það að geta hangið í borg óttans.

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 20:19
af vesley
tdog skrifaði:
sveik skrifaði:Hvernig hefur ykkur vökturum að finna sumarvinnu?
Er að læra rafeindavirkjun og er að leita mér að samning. Hefur lítið gengið...

Var að spá í hvort þið hafið einhverjar uppástungur hvar maður getur prufað að sækja um? allar ábendingar velkomnar :)


Veit það fyrir víst að Norðuráli vantar rafeindavirkja til vinnu á verkstæði.



Get staðfest þetta og það hefur vantað í smá tíma.

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 20:20
af Domnix
Búinn að kynnast því að maður fær ekki eina einustu vinnu nema hafa tengsl, sumir fá þvílíkar vinnur í bönkum og fyrirtækjum gegnum foreldra sína og ég rétt náði vinnu í afgreiðslu á n1 í fyrra.

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 20:56
af jobbzi
Will do ég heyri í honum á morgun :)

Re: Sumarstarf

Sent: Mán 30. Apr 2012 21:11
af Nördaklessa
Getur tjékkað um sumarvinnu hjá Tandraberg á Eskifirði, vantar oft hrausta menn í frystilandanir og aðrar afleysingar :happy

Re: Sumarstarf

Sent: Þri 01. Maí 2012 14:15
af Black
veit að það er verið að óska eftir fólki á KFC og 10/11 :)