Síða 1 af 2
Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:26
af GuðjónR
Giskið nú!
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:30
af GoRkz
Nonnabiti?
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:41
af Frost
Ógirnilegur matur
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:44
af CendenZ
Bacon, steiktur laukur,rauðkál, smá kál, pickles og majo ?
Hver pantar sér svona, er þetta í boði á Kjalarnesi ?
..ekki skrítið að fólki nenni ekki að búa þar..
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:53
af Eiiki
Ég sé ekki betur en að þetta sé hinn geisivinsæli Pinnabátur á hlölla! Besta sem maður fær eftir gott kvöld í bænum
Á þeim bát er reyndar lambakjöt en ekki bacon.. en það er alls ekkert síðra
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:55
af Olli
Eiiki skrifaði:Ég sé ekki betur en að þetta sé hinn geisivinsæli Pinnabátur á hlölla! Besta sem maður fær eftir gott kvöld í bænum
og eitt versta sem maður fær edrú
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 16:55
af CendenZ
Eiiki skrifaði:Ég sé ekki betur en að þetta sé hinn geisivinsæli Pinnabátur á hlölla! Besta sem maður fær eftir gott kvöld í bænum
Á þeim bát er reyndar lambakjöt en ekki bacon.. en það er alls ekkert síðra
Þetta er náttúrulega ógeðslegt, plús það er soðið brauðið... bara eins og að veiða upp brauð úr tjörninni í RVK..
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:14
af GuðjónR
Ég fór á "Hlölla" í Faxafeni sem er víst ekki Hlölli samkvæmt eiganda Hlölla, pantaði mér rifjabát og fékk þennan viðbjóð!
Sýnist það vera EIN ofsteikt bacon sneið í bitum þarna en ekki hefðbundna kjötið í rifjabátunum.
Þegar ég skellti þessu í sméttið á stelpunni sem var að afgreiða þá sagði hún...ó má bjóða þér súkkulaði köku
Ég henti þessu ógeði.
p.s. ég ætlaði að sýna eiganda Hlölla þetta ógeð og hringdi
í númer af já.is þar svaraði kona og sagði að það væri bara einn Hlölla staður og hann væri í hennar eigu og staðsettur uppá höfða. Hún hefði átt nafnið í 26 ár.
Hinir væru ekki Hlöllabátar þó svo að lógóið væri, það væri bara allt í leyfisleysi.
Og þegar ég sagði við hana að ég hefði haldið að þetta væri skrásett vörumerki þá var svarið "ég hélt það líka".
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:16
af worghal
Guðjón, ekki fara á hlölla, þeir sökka.
farðu frekar extra vegalengdina og fáðu þér Nonnabita, bara snilldar bátar
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:26
af coldcut
GuðjónR skrifaði:p.s. ég ætlaði að sýna eiganda Hlölla þetta ógeð og hringdi
í númer af já.is þar svaraði kona og sagði að það væri bara einn Hlölla staður og hann væri í hennar eigu og staðsettur uppá höfða. Hún hefði átt nafnið í 26 ár.
Hinir væru ekki Hlöllabátar þó svo að lógóið væri, það væri bara allt í leyfisleysi.
Og þegar ég sagði við hana að ég hefði haldið að þetta væri skrásett vörumerki þá var svarið "ég hélt það líka".
Ég stóð í þessum misskilningi þangað til fyrir svona 1-2 árum og fór þá og fékk mér bát á Höfða þegar ég komst að þessu. Hafði alltaf fundist Nonnabiti betri þangað til ég fór uppá Höfða, þvílíkur unaður sem Höfða-Hlölli er...hef samt heldur aldrei haft neitt að setja út á Austurstrætis-Hlölla.
En já Nonnabiti er líka góður þó ég sé hættur að fara þangað. Framvegis fer ég bara á Nonna ef ég get sett fötin mín strax í þvott og kemst strax í sturtu, þvílík stybba þarna inni!
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:27
af GuðjónR
worghal skrifaði:Guðjón, ekki fara á hlölla, þeir sökka.
farðu frekar extra vegalengdina og fáðu þér Nonnabita, bara snilldar bátar
Ég prófa það næst, en þessi eina litla sneið í 12" bát var ekki einu sinni bacon, heldur ofeldað/brennt svínakjöt.
Ástæðan fyrir því að ég opnaði bátinn og tékkaði var sú að ég fann ekkert kjöt, hélt það hefði gleymst.
En fyrr má nú vera sparnaðar ráð McDonalds, og bjóða mér súkkulaði köku í sárabætur!
Hefði bara viljað fá þetta ógeð endurgreitt.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:33
af Ulli
Rifja bátur á Höfða...ástæða til að koma heim til Íslands..
Olsen Olsen kef er líka með frábæra báta!
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:36
af Domnix
Skrýtið þetta með að þessi kona eigi nafnið hlöllabátar en reki bara 1 stað og svo eru
http://www.hlollabatar.is með 9 staði.
btw
já.is linkur fyrir hina staðina
hringdu og kvartaðu, btw bara einn Hlöðver Sigurðsson skráður fyrir Hlöllabátum skv fyrirtækjaskrá en fann ekki hvor staðurinn það væri.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 18:59
af ZiRiuS
Eftir mikla uppbyggingu ásamt því að hafa opnað á fleiri stöðum í gegnum tíðina ákváðu hjónin árið 1998 að minnka við sig og selja frá sér Hlöllabáta við Ingólfstorg. Sjálf héldu þau áfram rekstri Hlöllabáta við Bíldshöfða þar sem þau standa nú vaktina ásamt dætrum sínum þremur. Einnig keyrir Hlölli Hlöllavagninn niður í bæ um hverja helgi.
Mér hefur alltaf fundist Ingólfstorgið best, ég fór þarna einu sinni upp á Höfða og þá var eins og staðurinn hefði ekki verið þrifinn í viku og báturinn ógeðslegri en á þessari mynd...
P.s. þessi kelling er greinilega bara einhver bölvaður lygari... Kannast ekki við neitt haha...
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 19:05
af vesley
Það er smá áhætta að fá sér bát á Hlölla
Stundum eru þeir alveg óætir og með þeim ógeðslegustu. Og svo í hin skiptin eru þeir þessi alvöru Hlölli , feitur,fitugur en samt drullugóður.
Ég hef reyndar ekki borðað Hlölla í 1+ ár núna því ég nenni ekki að fá viðbjóð í 3hvert skipti
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 19:41
af kubbur
hvernig væri nú að fara að hugsa aðeins um heilsuna...
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 19:44
af AciD_RaiN
kubbur skrifaði:hvernig væri nú að fara að hugsa aðeins um heilsuna...
Eru ekki allir að "hugsa" um heilsuna þó þeir séu ekkert í kanínufóðrinu??
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 19:45
af SolidFeather
Staðurinn uppá höfða heitir Hlölli, hinir heita hlöllabátar og eru drasl. Hlunkurinn uppá höfða er snilld.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 19:53
af kubbur
AciD_RaiN skrifaði:kubbur skrifaði:hvernig væri nú að fara að hugsa aðeins um heilsuna...
Eru ekki allir að "hugsa" um heilsuna þó þeir séu ekkert í kanínufóðrinu??
ekki með því að láta svona ofan í sig
æ veit ekki hvað er í gangi, varð veikur um daginn og fékk viðurstyggð á öllum fitugum mat eftir það, fékk mér boxmaster eftir veikindin og náði ekki að klára helminginn áður en ég byrjaði að kúgast
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 20:49
af intenz
Til að fyrirbyggja allan misskilning þá opnaði Hlölli Hlöllabáta árið 1986 og er enn með rekstur í dag.
Hann fór út í einhverja sölu fyrir nokkrum árum síðan sem varð til þess að hann missti nafnið "Hlöllabátar" (þekki það samt ekki alveg)
Þessir
9 staðir sem eru víðsvegar um landið eru EKKI Hlöllabátar sem voru stofnaðir árið 1986.
Eini staðurinn sem er
ALVÖRU HLÖLLI er Hlölli uppi á höfða!
Það sem skilur þennan stað frá öðrum Hlöllabátastöðum er bragðið og gæðin.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 21:44
af GuðjónR
intenz skrifaði:Til að fyrirbyggja allan misskilning þá opnaði Hlölli Hlöllabáta árið 1986 og er enn með rekstur í dag.
Hann fór út í einhverja sölu fyrir nokkrum árum síðan sem varð til þess að hann missti nafnið "Hlöllabátar" (þekki það samt ekki alveg)
Þessir
9 staðir sem eru víðsvegar um landið eru EKKI Hlöllabátar sem voru stofnaðir árið 1986.
Eini staðurinn sem er
ALVÖRU HLÖLLI er Hlölli uppi á höfða!
Það sem skilur þennan stað frá öðrum Hlöllabátastöðum er bragðið og gæðin.
Samt auglýsa þessir 9 staðir " Ávalt ferskir síðan 1986 "
Fyrst þetta er ekki sama batteríið þá er þetta meira en villandi auglýsing.
Hvað sem því líður þá var þetta einhver sá mesti viðbjóður sem ég hef keypt.
Myndin talar sínu máli.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 21:56
af Daz
Djö, núna langar mig í Nonnabita! Ég hef ekki fengið mér svoleiðis síðan á einhverju fylleríi í miðbænum og þau eru langt í fortíðinni
Hef líklega farið einu sinni eftir að hann flutti yfir götuna. Er hann kannski fluttur aftur??
MMMM fyllerísbiti. Maður ætti að skella sér á fyllerí snöggvast til að hafa afsökun fyrir að fá sér Nonnabita.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 22:04
af GuðjónR
Daz skrifaði:Djö, núna langar mig í Nonnabita! Ég hef ekki fengið mér svoleiðis síðan á einhverju fylleríi í miðbænum og þau eru langt í fortíðinni
Hef líklega farið einu sinni eftir að hann flutti yfir götuna. Er hann kannski fluttur aftur??
MMMM fyllerísbiti. Maður ætti að skella sér á fyllerí snöggvast til að hafa afsökun fyrir að fá sér Nonnabita.
Ekki ég heldur, hef ekki verslað þar í 15-20 ár .... eða síðan hann var ný byrjaður, man hvað hann var eitthvað svo uber gay.
Í minningunni voru þetta góðir bátar.
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 22:14
af Daz
GuðjónR skrifaði:Daz skrifaði:Djö, núna langar mig í Nonnabita! Ég hef ekki fengið mér svoleiðis síðan á einhverju fylleríi í miðbænum og þau eru langt í fortíðinni
Hef líklega farið einu sinni eftir að hann flutti yfir götuna. Er hann kannski fluttur aftur??
MMMM fyllerísbiti. Maður ætti að skella sér á fyllerí snöggvast til að hafa afsökun fyrir að fá sér Nonnabita.
Ekki ég heldur, hef ekki verslað þar í 15-20 ár .... eða síðan hann var ný byrjaður, man hvað hann var eitthvað svo uber
gay.
Í minningunni voru þetta góðir bátar.
Annars var ég alltaf Nonnabitamaður, ekki af neinni sérstakri ástæðu annari en ég vandist bara á að fara þangað. Það var líka eitthvað dáleiðandi við hvernig maður horfði á bátana verða til. Engin svoleiðis stemming á ingólfstorgi eða í Hlöllabílnum
Re: Spurning dagsins, hvað er á þessari mynd?
Sent: Fös 27. Apr 2012 22:15
af GuðjónR
Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Daz skrifaði:Djö, núna langar mig í Nonnabita! Ég hef ekki fengið mér svoleiðis síðan á einhverju fylleríi í miðbænum og þau eru langt í fortíðinni
Hef líklega farið einu sinni eftir að hann flutti yfir götuna. Er hann kannski fluttur aftur??
MMMM fyllerísbiti. Maður ætti að skella sér á fyllerí snöggvast til að hafa afsökun fyrir að fá sér Nonnabita.
Ekki ég heldur, hef ekki verslað þar í 15-20 ár .... eða síðan hann var ný byrjaður, man hvað hann var eitthvað svo uber
gay.
Í minningunni voru þetta góðir bátar.
Annars var ég alltaf Nonnabitamaður, ekki af neinni sérstakri ástæðu annari en ég vandist bara á að fara þangað. Það var líka eitthvað dáleiðandi við hvernig maður horfði á bátana verða til. Engin svoleiðis stemming á ingólfstorgi eða í Hlöllabílnum
Sammála...
Já gaurinn sem bjó til bátana á kvöldin var kvenlegri en kona .... hef ekki hugmynd um hvort það var eigandinn eða ekki...