Síða 1 af 2
Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:05
af GuðjónR
Hvað finnst mönnum um
þetta?
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:11
af worghal
djöfull vona ég að þeir gleimi ekki að sveifla nokkrum krystölum í kringum blóðið
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:11
af hagur
Síðasti vitleysingurinn er ekki ennþá fæddur ....
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:17
af Bjosep
kukl ...
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:25
af Daz
Mér finnst þetta frábært. Það veitir ekki af að hirða pening af fólki sem er nógu vitlaust til að kaupa þetta. Það er þá ekki að senda peningana til Nígeríu á meðan. Spara gjaldeyri skiljiði.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:27
af GuðjónR
Núna eru 87 búnir að gleypjast af þessu og borga alls: 652.500.- miðað við að allir kaupi á 7500 .... fyrir tíma hjá töfralækni sem ráðleggur mataræði með því að skoða blóð í smásjá
Hópkaup tekur 30% eða 195.750.
Ekki veit ég hvernig fólk lætur glepjast af svona löguðu, hugsanlega þroskahamlaðir eða veikir einstaklingar....ég veit það ekki.
En það sem kemur mér á óvar er að Hópkaup skuli taka þátt í svona vitleysu, ætli fólk sem hefur eytt í þetta pening í góðri trú en séð hið rétta í fréttunum geti fengið endurgreitt?
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:31
af Daz
Ég held ég hafi séð einhver svona blóðskoðunartilboð á flestum þessara hópkaupsíðna, þetta er reyndar í fyrsta skipti sem ég sé svona marga taka því. En þetta er svosem ekkert það eina, það er alveg ótrúlegustu hlutir sem fólk er að kaupa því að það heldur að það sé svo gott fyrir það. (Nei, ég er ekki að meina fæðubótarefni
, þau gera flest EITTHVAÐ meira en veita bara lyfleysuáhrif).
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:34
af Klemmi
Held að fólk láti aðallega glepjast útaf hræðsluáróðrinum í þessari auglýsingu:
Við vöknum ekki skyndilega upp einn daginn og þjáumst af vefjagigt, sykursýki o.fl. Þetta getur tekið mörg ár að gerast í líkamanum og vísbendingarnar koma oft fram í blóði þínu löngu áður en þú getur fengið greiningu á sjúkdómum.
Sem er sérstaklega ljótt.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:35
af AciD_RaiN
Minnir mann bara einna helst á myndband sem félagi minn póstaði á vegginn hjá mér um daginn
http://www.youtube.com/watch?v=-MM0Z_jCrGo
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:36
af GuðjónR
Spurning um að senda póst á Hópkaup og segjast vera "Töfralæknir með pendúl" ... rétt verð sé 20þús tilboð 10þús 50% afls!!!!
Fyrstur kemur fyrstur fær!!! ekki missa af þessu!!!!!
Segja svo við fólk sem er nógu grunnhyggið að kaupa að pendúllinn mæli með góðri hreyfingu og hollu mataræði!
Allir vinna
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:38
af hagur
GuðjónR skrifaði:Núna eru 87 búnir að gleypjast af þessu og borga alls: 652.500.- miðað við að allir kaupi á 7500 .... fyrir tíma hjá töfralækni sem ráðleggur mataræði með því að skoða blóð í smásjá
Hópkaup tekur 30% eða 195.750.
Ekki veit ég hvernig fólk lætur glepjast af svona löguðu, hugsanlega þroskahamlaðir eða veikir einstaklingar....ég veit það ekki.
En það sem kemur mér á óvar er að Hópkaup skuli taka þátt í svona vitleysu, ætli fólk sem hefur eytt í þetta pening í góðri trú en
séð hið rétta í fréttunum geti fengið endurgreitt?
Það sorglega við þetta er að þeir einstaklingar sem láta glepjast af þessu eru svo staðfastir í vitleysisganginum að þeir taka engum rökum og halda áfram að trúa á þetta sama hvað "einhver læknir" eða "blóðmeinasérfræðingur" segir. Trúin á þessa vitleysu er svo sterk í sumum og vantrú á læknavísindin sömuleiðis.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:41
af ZiRiuS
Þetta er alveg jafn mikið kjaftæði og balance böndin og hómópatískar lækningar. Fer ekkert smá í taugarnar á mér...
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:42
af GuðjónR
hagur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Núna eru 87 búnir að gleypjast af þessu og borga alls: 652.500.- miðað við að allir kaupi á 7500 .... fyrir tíma hjá töfralækni sem ráðleggur mataræði með því að skoða blóð í smásjá
Hópkaup tekur 30% eða 195.750.
Ekki veit ég hvernig fólk lætur glepjast af svona löguðu, hugsanlega þroskahamlaðir eða veikir einstaklingar....ég veit það ekki.
En það sem kemur mér á óvar er að Hópkaup skuli taka þátt í svona vitleysu, ætli fólk sem hefur eytt í þetta pening í góðri trú en
séð hið rétta í fréttunum geti fengið endurgreitt?
Það sorglega við þetta er að þeir einstaklingar sem láta glepjast af þessu eru svo staðfastir í vitleysisganginum að þeir taka engum rökum og halda áfram að trúa á þetta sama hvað "einhver læknir" eða "blóðmeinasérfræðingur" segir. Trúin á þessa vitleysu er svo sterk í sumum og vantrú á læknavísindin sömuleiðis.
Já...enda líklega veikt fólk eins og ég sagði áður.
Ég hef verslað mikið af Hópkaup síðunni og líkað flest vel, en verð að segja að í þessu tilfelli ættur þeir að sjá sóma sinn í að loka á þetta "svindl" og endurgreiða fólki.
Þó það kunni að valda þeim 200k "tapi" þetta er bara of gróft.
Þeir myndu koma sterkari út fyrir vikið.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 21:58
af gardar
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:17
af arons4
gardar skrifaði:http://www.visir.is/-eg-maeli-med-thvi-ad-folk-fai-naeringarradgjof-hja-foreldrum-sinum-/article/2012120419266
Viðtalið tekið svoldið mikið úr contexti með þessari fyrirsögn...
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:27
af Manager1
Er þetta ekki bara asnalega orðað hjá hopkaup.is og sýrustigið, kólesterólið og allt hitt er mælt en ekki skoðað í blóðinu eins og textinn gefur í skyn?
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:30
af oskar9
Manager1 skrifaði:Er þetta ekki bara asnalega orðað hjá hopkaup.is og sýrustigið, kólesterólið og allt hitt er mælt en ekki skoðað í blóðinu eins og textinn gefur í skyn?
akkúrat það sem ég hugsaði
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:30
af Daz
Manager1 skrifaði:Er þetta ekki bara asnalega orðað hjá hopkaup.is og sýrustigið, kólesterólið og allt hitt er mælt en ekki skoðað í blóðinu eins og textinn gefur í skyn?
Það breytir því ekki að þú ert að fá spámiðil með diplóma frá bréfaskóla í Fjarskanistann til að lesa í blóðið þitt. Þá væri ég frekar til í að fá hann til að lesa í kaffibollann minn, ég er þó ekki í sýkingarhættu eftir puttastungu við það.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:37
af sfannar
Freistandi en ég held ég bíði frekar eftir næsta hamborgaratilboði.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:38
af GuðjónR
sfannar skrifaði:Freistandi en ég held ég bíði frekar eftir næsta hamborgaratilboði.
Ég líka
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:43
af capteinninn
Klemmi skrifaði:Held að fólk láti aðallega glepjast útaf hræðsluáróðrinum í þessari auglýsingu:
Við vöknum ekki skyndilega upp einn daginn og þjáumst af vefjagigt, sykursýki o.fl. Þetta getur tekið mörg ár að gerast í líkamanum og vísbendingarnar koma oft fram í blóði þínu löngu áður en þú getur fengið greiningu á sjúkdómum.
Sem er sérstaklega ljótt.
Alveg sammála þarna.
Mér fannst þetta samt frábært þegar ég sá þetta á sínum tíma, maður er alltaf að sjá fólk með svona Power Balance bönd um hendina.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:43
af Gúrú
Gaman að sjá að herra Yong er ennþá að hafa áhrif á hálfvita.
Hann er búinn að vera að því í langan tíma.
http://www.vantru.is/2010/04/09/09.00/EDIT: Kemur samt einhver í keppni um allra heimskulegustu (íslensku) kuklsetninguna?
Ég ætla að gera ráð fyrir því að þetta sigri þá keppni, akkúrat frá pH-gildis (m.fl.) kjána.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:47
af chaplin
Alltaf þegar ég sé e-h með balance band, að þá veit ég að ég get sagt hvað sem er við fólkið og þau munu trúa því.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 22:51
af Manager1
Daz skrifaði:Manager1 skrifaði:Er þetta ekki bara asnalega orðað hjá hopkaup.is og sýrustigið, kólesterólið og allt hitt er mælt en ekki skoðað í blóðinu eins og textinn gefur í skyn?
Það breytir því ekki að þú ert að fá spámiðil með diplóma frá bréfaskóla í Fjarskanistann til að lesa í blóðið þitt. Þá væri ég frekar til í að fá hann til að lesa í kaffibollann minn, ég er þó ekki í sýkingarhættu eftir puttastungu við það.
Viltu þá ekki bara vera í rúminu allan daginn fyrst þú ert hræddur við smá stungu í puttann.
Þó forsprakki fyrirtækisins sé ekki hámenntaður blóðtæknifræðingur eða eitthvað álíka flott þá þýðir það ekki endilega að hann kunni ekki til verka. Það er ekki verið að tala um heilaskurðlækningar, það er bara tekið smá blóð úr puttanum á þér og sett í tæki sem mæla hitt og þetta... ekki flókið.
En svo gæti ég auðvitað haft rangt fyrir mér og þetta verið hinn versti skottulæknir... maður veit aldrei. Mér er bara illa við sjálfskipaða internetriddara sem taka menn, fyrirtæki og bara hvað sem er af lífi á internetinu án þess að kynna sér málið almennilega.
Re: Að skoða blóð í smásjá og sjá ljósið
Sent: Mán 16. Apr 2012 23:00
af Gúrú
Manager1 skrifaði:Daz skrifaði:Manager1 skrifaði:Er þetta ekki bara asnalega orðað hjá hopkaup.is og sýrustigið, kólesterólið og allt hitt er mælt en ekki skoðað í blóðinu eins og textinn gefur í skyn?
Það breytir því ekki að þú ert að fá spámiðil með diplóma frá bréfaskóla í Fjarskanistann til að lesa í blóðið þitt. Þá væri ég frekar til í að fá hann til að lesa í kaffibollann minn, ég er þó ekki í sýkingarhættu eftir puttastungu við það.
Viltu þá ekki bara vera í rúminu allan daginn fyrst þú ert hræddur við smá stungu í puttann.
Þó forsprakki fyrirtækisins sé ekki hámenntaður blóðtæknifræðingur eða eitthvað álíka flott þá þýðir það ekki endilega að hann kunni ekki til verka. Það er ekki verið að tala um heilaskurðlækningar, það er bara tekið smá blóð úr puttanum á þér og sett í tæki sem mæla hitt og þetta... ekki flókið.
En svo gæti ég auðvitað haft rangt fyrir mér og þetta verið hinn versti skottulæknir... maður veit aldrei. Mér er bara illa við sjálfskipaða internetriddara sem taka menn, fyrirtæki og bara hvað sem er af lífi á internetinu án þess að kynna sér málið almennilega.
Það
er sýkingarhætta við það að taka blóð úr einhverjum með puttastungu við nánast hvaða aðstæður sem er.
Það er ekki sýkingarhætta falin í því að fá einhvern til að lesa í kaffibollann sinn.