Síða 1 af 1
Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:10
af emmi
Hefur einhver séð svona til sölu hérlendis? Virðist vera mun sniðugara að splæsa í svona en að kaupa þessa venjulegu loftbrúsa.
http://www.amazon.co.uk/Datavac-Electri ... 264&sr=8-1
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:14
af Klaufi
Myndi sjálfur frekar kíkja á ódýra loftpressu úr europris
Þó svo að ég sé með fóbíu fyrir ódýrum verkfærum.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:19
af GuðjónR
Ég er með tvær "alvöru" lofpressur í bílskúrnum, nota þær fyrir loftverkfærin mín. Hef blásið úr pc tölvum með þeim og þær verða gjörsamlega eins og nýjar að innan. Maður verður samt að passa sig þar sem þrýstingurinn er mikill og það er líka "raki" sem kemur með. En það er svo sem í lagi ef maður gefur tölvunni tíma eftir að maður blæs út rykinu.
Þessi hobby pressa er frekar dýr, tek undir þetta með klaufa að kíkja á ódýra pressu í europris eða verkfæralagernum.
Eða bara lofbrúsa ef þú gerir þetta sjaldan.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:26
af Klaufi
GuðjónR skrifaði: Maður verður samt að passa sig þar sem þrýstingurinn er mikill og það er líka "raki" sem kemur með. En það er svo sem í lagi ef maður gefur tölvunni tíma eftir að maður blæs út rykinu.
Rakaskilja með þrýstijafnara og þú er laus við bæði vandamálin, eða tappa bara undan kútnum eftir þörfum.
GuðjónR skrifaði:Eða bara lofbrúsa ef þú gerir þetta sjaldan.
Mæli frekar með að kaupa pressu á 6-8k, frekar en loftbrúsa nokkrum sinnum.
Þetta er enginn peningur og mögulega nýtist þér í eitthvað annað síðar..
Nema náttúrulega þú hafir ekki pláss fyrir litla pressu og/eða ætlar bara að nota þetta í að rykhreinsa á nokkura mánað fresti.
Ég er með 300 lítra pressu í skúrnum og það er fáránlegt hvað maður notar þetta mikið í allan andskotan, maður er ekki bundin við að nota hana bara í að rykhreinsa tölvuna
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:31
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:Ég er með 300 lítra pressu í skúrnum og það er fáránlegt hvað maður notar þetta mikið í allan andskotan, maður er ekki bundin við að nota hana bara í að rykhreinsa tölvuna
Nákvæmlega, ég keypti 750 lítra plast sundlaug fyrir krakkana og er að blása hana upp daglega núna yfir páskana með pressunni.
Endalaus not fyrir svona pressur.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:36
af gardar
Að ekki sé minnst á öll loftverkfærin sem hægt er að kaupa
Það er hægt að gera allt með loftpressu
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:37
af GuðjónR
Já, ég er líka með spes slöngu með stút fyrir bíldekkin. Fer aldrei á bensínstöðvar til að jafna lofþrýstingin í dekkjunum, geri það bara á planinu mínu.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:41
af AciD_RaiN
Ég keypti mér svona loftbrúsa fyrir dálitlu síðan og þvílík waste of money!!! Nú nota ég bara gamla stanley loftpressu sem afi átti
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:42
af gardar
Eini ókosturinn við þessar pressur er bara ef maður er með þær í sambandi 24/7 úti í skúr og svo missa þær þrýsting á nóttunni og byrja að draga inn á sig loft með tilheyrandi látum.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:46
af lukkuláki
gardar skrifaði:Eini ókosturinn við þessar pressur er bara ef maður er með þær í sambandi 24/7 úti í skúr og svo missa þær þrýsting á nóttunni og byrja að draga inn á sig loft með tilheyrandi látum.
Tímarofar eru ódýrir
En hvar fær maður loftpressu undir 10.000 kalli ég hef aldrei séð svoleiðis þetta kostar alltaf tugi þúsunda þar sem ég hef skoðað.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:50
af Klaufi
lukkuláki skrifaði:gardar skrifaði:Eini ókosturinn við þessar pressur er bara ef maður er með þær í sambandi 24/7 úti í skúr og svo missa þær þrýsting á nóttunni og byrja að draga inn á sig loft með tilheyrandi látum.
Tímarofar eru ódýrir
En hvar fær maður loftpressu undir 10.000 kalli ég hef aldrei séð svoleiðis þetta kostar alltaf tugi þúsunda þar sem ég hef skoðað.
Ég held ég sé ekki að ljúga að europrís hafi verið að auglýsa þær á eitthvað í kringum 8k.
Eftir að ég vaknaði einu sinni við pressuna fara í gang þá breytti ég þrýstingsrofanum þannig að hann keyri pressuna ekki upp ef það er meira en klukkutími síðan pressan fór í gang eða það hefur verið ýtt á takkan.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:53
af AciD_RaiN
Ég plugga minni bara í gang og hún er svona 4 mínútur að keyra sig upp til notkunar
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:57
af gardar
lukkuláki skrifaði:gardar skrifaði:Eini ókosturinn við þessar pressur er bara ef maður er með þær í sambandi 24/7 úti í skúr og svo missa þær þrýsting á nóttunni og byrja að draga inn á sig loft með tilheyrandi látum.
Tímarofar eru ódýrir
En hvar fær maður loftpressu undir 10.000 kalli ég hef aldrei séð svoleiðis þetta kostar alltaf tugi þúsunda þar sem ég hef skoðað.
Pressan er tengd við ljósrofann núna, þannig að hún fer ekki í gang nema ég kveiki ljósin í skúrnum
Sem er samt ekkert sniðugt þegar maður er að læðast í skúrinn seint um nætur
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:57
af lukkuláki
Verðið að finna link á svona pressu erum við að tala um 8 bar eða minna ?
Pressan í vinnunni hjá mér er æðisleg og svo til alveg hljóðlaus
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 22:59
af GuðjónR
gardar skrifaði:Eini ókosturinn við þessar pressur er bara ef maður er með þær í sambandi 24/7 úti í skúr og svo missa þær þrýsting á nóttunni og byrja að draga inn á sig loft með tilheyrandi látum.
hahahaha ég hef lent í því ... ekki gott
en það er on/off rofi á þeim....svissar á "off" ... þegar hún er ekki í notkun
p.s. get stillt þrýstingin frá 1bar upp í 12 bar ... en nota 8 bar sem lofverkfærin mín vinna best á þeim þrýsting.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 23:26
af worghal
hvernig er þetta með rakann sem myndast í loftpressunum, eruð þið með filtera fyrir það eða hvað ?
hvað mundi annars ódýr loftpressa og filter kosta ?
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 23:32
af dori
Ef það eina sem á að gera er að nota þetta í staðin fyrir svona loftbrúsa myndi ég skoða loftpressur sem eru hugsaðar fyrir airbrush. Þær eru miklu hljóðlátari en þessar sem eru hugsaðar fyrir loftverkfæri og slíkt dót (en ná ekki nema kannski helmingnum af þrýstingnum sem hinar ná).
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 23:35
af lukkuláki
Setur bara svona glas á loft útganginn. Kostar lítið og ætti að taka allt loft. Ég hef séð pressur með stærri glös og líka með 2 glösum.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Lau 07. Apr 2012 23:56
af Baldurmar
Veit einhver hvað tannlæknapressa kostar ?
Þær eru "hreinar" og lausar við olíu smitað vatn í loftinu.
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Sun 08. Apr 2012 00:12
af arons4
Baldurmar skrifaði:Veit einhver hvað tannlæknapressa kostar ?
Þær eru "hreinar" og lausar við olíu smitað vatn í loftinu.
Örugglega slatta, annars er það alveg óþarfi í svona.. Alltaf hreinsað vélina mína með stórri loftpressu og aldrei lent í veseni, ef það er raki er lítið mál að losna við hann..
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Sun 08. Apr 2012 12:07
af siggi83
Re: Loftbrúsar eða þetta?
Sent: Sun 08. Apr 2012 12:12
af Kristján
það kemur örugglega meiri þrystingur í lungunum þínum, þetta er örugglega ætlað til að blása í vindsængur eða eitthvað.
ég fór nú bara í löður um daginn og hreinsaði mína þar
var á palbíl reyndar þá þannig setti bara tölvuna á pallinn en ef þið erum með gummifætur á tölvuni þá er í lagi að setja hana bara á skotið og blása