Síða 1 af 1
Aðstoð varðandi mediacenter heima fyrir.
Sent: Mið 04. Apr 2012 00:25
af gullis
Sælir. Veit ekki alveg hvað ég átti að skýra þennan þráð.
En vandamálið mitt er að mér langar til að geta horft á myndir og þætti inní svefnherberginu...
Það sem ég er með er tölvan, PS3 frammí stofu, Plasma tæki frammí stofu og túbutæki inní svefnherbergi.
Eru til einhverjar snúrur sem geta leyst þennan vanda minn eða verð ég að fá mér annað hvort flatsjónvarp eða flakkara inní svefnherbergið.
Erum að tala um að það er ca 15 metrar frá router,ps3 og tölvu og inní svefnherbergið.
Re: Aðstoð varðandi mediacenter heima fyrir.
Sent: Mið 04. Apr 2012 01:24
af Gunnar
mediatank til að streama yfir í svefnherbergið?
með hdmi og rca þá.
Re: Aðstoð varðandi mediacenter heima fyrir.
Sent: Mið 04. Apr 2012 08:18
af hagur
Ertu að nota PS3 til að spila efni í stofunni? Getur alveg fengið 15m langa composite video + L/R audio snúru og tengt úr PS3 og í túbuna inn í herbergi.
Spurningin er bara hvort þú þurfir þá alltaf að vera að svissa á milli myndútganga á PS3, eða hvort hún sendi mynd+hljóð út um HDMI og AV á sama tíma. Annar galli er að þú getur þá auðvitað ekki horft á sitthvorn hlutinn inn í stofu og herbergi á sama tíma (ef það er issue).
Langbesta lausnin er bara að fá sér einhvern nettan TV-flakkara inn í herbergið.
Re: Aðstoð varðandi mediacenter heima fyrir.
Sent: Mið 04. Apr 2012 22:32
af gullis
hagur skrifaði:Ertu að nota PS3 til að spila efni í stofunni? Getur alveg fengið 15m langa composite video + L/R audio snúru og tengt úr PS3 og í túbuna inn í herbergi.
Spurningin er bara hvort þú þurfir þá alltaf að vera að svissa á milli myndútganga á PS3, eða hvort hún sendi mynd+hljóð út um HDMI og AV á sama tíma. Annar galli er að þú getur þá auðvitað ekki horft á sitthvorn hlutinn inn í stofu og herbergi á sama tíma (ef það er issue).
Langbesta lausnin er bara að fá sér einhvern nettan TV-flakkara inn í herbergið.
Það er snildar lausn,, var bara eitthvað svo viss um að svo langa snúru væri ekki hægt að fá.Það skiptir engu ég er hvort sem er bara á einum stað í einu Ég þakka ykkur fyrir þessar uppl
Re: Aðstoð varðandi mediacenter heima fyrir.
Sent: Fim 05. Apr 2012 01:32
af axyne
Nokkuð viss um að ps3 getur ekki send composide og HDMI á sama tíma.
Mikið bögg að vera að skipta sífelt yfir.
Re: Aðstoð varðandi mediacenter heima fyrir.
Sent: Fim 05. Apr 2012 02:21
af capteinninn
axyne skrifaði:Nokkuð viss um að ps3 getur ekki send composide og HDMI á sama tíma.
Mikið bögg að vera að skipta sífelt yfir.
Hann gæti fengið svona fjöltengi eins og ég fékk mér fyrir varpann minn, það var reyndar bara composite og ekki hdmi en þá gat ég breytt því hvaða tæki ég vildi tengja við varpann á hverjum tíma. Sérð þetta oft í skólum sem hafa myndvarpa og fleira. Alger snilld, smellir þessu bara til þegar þú ferð inn í svefnherbergi