Síða 1 af 1
Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 11:47
af izelord
Herro.
Nú fékk ég þá hugmynd að henda mér á ströndina í páskafríinu. Það er frekar stutt í að það hefjist (miðvikudag) og jafnvel byrjað hjá sumum. Hvernig er best að hafa sig að við að finna flug á skynsamlegu verði með svona fyrirvara?
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 11:49
af Benzmann
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 12:03
af CendenZ
lastminute.co.uk
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 12:06
af capteinninn
http://www.dohop.comhttp://www.momondo.comSvo myndi ég skoða heitapottatilboð hjá flugfélögunum, náði einu sinni miða heim frá London á einhvern 10 þús kall með sköttum og alles.
Svo geturðu checkað á hostelum þar sem þú ætlar að fara ef þig vantar ódýra gistingu, gerðu samt verðsamanburð á þeim og hótelunum því stundum eru hótelin ódýrari. Ég uppgötvaði Hostel í fyrra þegar ég var að ferðast í 5 vikur og þau eru alger snilld, ódýr, kynnist öðru fólki og þú getur annaðhvort verið í koju með öðru fólki eða tekið sér herbergi en það er þó dýrara. Mæli með að skoða hjá Hostel International
http://www.hi.com
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 12:18
af IL2
Hvert ertu að fara? Hugsa að það sé best fyrir þig að reyna að fá einhvern pakka héðan, annars er flugið svo hlutfallslega dýrt frá Íslandi í heildarpakkanum.
Ertu einn? Fara til London og hanga á Hethrow og athuga með lausa miða.
Annars Lastminute eða Netflight. Mér persónulega hefur aldrei þótt Dohop vera ódýrt þótt þeir hafi batnað.
Síðan vera duglegur á heimasíðum þeirra flugfélaga sem fljúga þangað sem þú ert að velta fyrir þér seint á kvöldin og nóttinni.
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 12:24
af izelord
IL2 skrifaði:Hvert ertu að fara? ...
Það er spurningin, slétt sama. Bara í sól og sumar.
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 13:26
af IL2
http://holidays.lastminute.com/last-second-deals.htmHeld samt að fara á Hethrow með bara handfarangur og vera tilbúinn að bíða væri best. Þá er reyndar orðin spurning um gistingu á áfangastað.
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 15:34
af djkid
eg gerdi thetta um daginn skaust til dk og sweden
maeli med tylesand i halmstad sweden
taktu flug til koben svo lest til halmstad... easy peasy
kostar litid og thad er c.a 30 stiga hiti a strondinni tharna
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 16:43
af DJOli
Hvað með EasyJet?
Þeir eiga víst að bjóða upp á flug til m.a. bretlands fyrir svo lítið sem 7þús kallinn hvora leið.
Re: Að ferðast með engum fyrirvara
Sent: Mán 02. Apr 2012 18:37
af IL2
Án þess að hafa farið á síðuna hjá þeim, er það ekki með einhverjum fyrirvara? Til dæmis eftir 3 vikur eða eitthvað svoleiðis.