Síða 1 af 1

Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 19:36
af DJOli
Ég var aðeins að dunda mér með lagið "Hjá Þér" með Sálinni hans jóns míns og komst að því að með nokkrum stillingum (m.a. tónjöfnun) er hægt að gera lagið mun betra (að minnsta kosti samkvæmt mínu tóneyra).

Þið getið nálgast samanburðinn hér:
http://www.simnet.is/rosberg/Salin_-_Hj ... _DJOli.wav
(37sek hvor útgáfan)
Fyrri er útgáfan sem kemur af geisladiskinum
Seinni útgáfan er sú sem ég vann aðeins í (sirka 10 mínútur í hljóðvinnslu sem fól meðal annars í sér að lækka í laginu um sirka 50%, ég lækkaði líka í tónjafnaranum um sirka -2db til að komast hjá clipping.

Ef þú heyrir almennilega þá ættirðu strax að taka eftir því að kassagítarinn hljómar strax mun mun betur, og söngurinn er skýrari og þægilegri en áður.

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 19:40
af SolidFeather
ja ok.

Þér tókst að gera slæmt lag verra.

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 19:44
af Klemmi
DJOli skrifaði:Ég var aðeins að dunda mér með lagið "Hjá Þér" með Sálinni hans jóns míns og komst að því að með nokkrum stillingum (m.a. tónjöfnun) er hægt að gera lagið mun betra (að minnsta kosti samkvæmt mínu tóneyra).

Þið getið nálgast samanburðinn hér:
http://www.simnet.is/rosberg/Salin_-_Hj ... _DJOli.wav
(37sek hvor útgáfan)
Fyrri er útgáfan sem kemur af geisladiskinum
Seinni útgáfan er sú sem ég vann aðeins í (sirka 10 mínútur í hljóðvinnslu sem fól meðal annars í sér að lækka í laginu um sirka 50%, ég lækkaði líka í tónjafnaranum um sirka -2db til að komast hjá clipping.

Ef þú heyrir almennilega þá ættirðu strax að taka eftir því að kassagítarinn hljómar strax mun mun betur, og söngurinn er skýrari og þægilegri en áður.


Heyrðu nei, ég er því miður ekki sammála þér.

Bassinn frá gítarnum er horfinn og söngurinn er óþæginlega skrækur, jaðrar við að skera í eyru.

Er ekki að reyna að móðga þig, bara segja að fyrir mitt leyti er þetta ekki betrumbót.

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 19:52
af GuðjónR
Sammála klemma, seinni útgáfan er mun verri en sú fyrri þó þær séu báðar hræðilegar.
Herra skrækur verður ennþá skrækari þegar bassinn er farinn. :face

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 19:53
af Tiger
Fyrri parturinn mun betri. Seinni alltof flatur og án fyllignar.

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 19:54
af worghal
þetta seinna er engannveginn betra, en það gæti verið að þú sért að nota einhvern annan equalizer en default ?

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 20:17
af DJOli
worghal skrifaði:þetta seinna er engannveginn betra, en það gæti verið að þú sért að nota einhvern annan equalizer en default ?

Default?
Meinarðu þá fyrir almenna afspilun?
Ef svo er þá, nei, ég nota ekki tónjafnara.
Ég notast einungis við Bassa og Treble stillingarnar á magnaranum hjá mér, og þegar ég vinn með tónlist þá er treble nánast alltaf í botni og bassinn "flat".

Ykkur líkar þetta annars ekki, svo ég held þessu út af fyrir mig sjálfan, meeeh.

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 20:36
af AciD_RaiN
Þú verður að taka gagnrýni sem ábendingu á að þú getir gert betur. Haltu áfram og þegar þú ert búinn að ná þessu vel haltu þá áfram...

Gagnrýni er af hinu góða til að við getum bætt okkur :happy

Re: Sálin - Hjá Þér [Samanburður] var aðeins að dunda mér.

Sent: Fös 30. Mar 2012 20:38
af DJOli
Ég er með soundcloud, you know.

http://soundcloud.com/lafur-aronsson

Original tónlist og taktar, all of it.