Síða 1 af 2

Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 12:46
af vesi
Sælir vaktara.. nú í nótt var brotist inn hjá þeim í mæðró og tölvum stolið.
http://www.dv.is/frettir/2012/3/28/brot ... um-stolid/
nú væri gamann að komast að því hvernig vélar þetta væru og við tækjum okkur saman og fylgjumst vel með bland.is, kassi.is og fleirrum síðum sem eru að selja notað dót. Mér fynnst þetta ömurlegt og geri mér grein fyrir því að littlar líkur séu á að þetta finnist.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 13:49
af AciD_RaiN
Vá... Alltaf er verið að stela frá algjörlega röngum aðilum. Hvernig væri að ræna bara þessa kalla sem eru að sleppa við að borga einhverja milljarða bara afþví bara!!

Auðvitað á ekkert að vera að stela en að stela frá fátækum og hjálparstofnunum er fyrir neðan allar hellur. Mjög líklegt að þetta poppi upp í "undirheimum Reykjavíkur"

Ef einhverjir hér eru kunnigir þýfismálum í þeim blessaða heimi þá er tilvalið að biðja þá aðila að fylgjast með...

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 14:01
af lifeformes
djöf... eru þetta slappir tappar :thumbsd

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 14:03
af playman
Það sem að mér fynst frekar gruggugt er hversu nýar þær voru, rétt viku gamlar?
og 3 nýar vélar fyrir mæðró sem kosta 1 milljón? hvað eru þær að gera með svona öflugar/dýrar vélar?

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 14:07
af DJOli
Það sem ég er réttara sagt forvitnari með er að skv frétt sem ég rak augun í þá voru þetta þrjár tölvur að andvirði yfir 1.1milljón isk.

Hvað gera þær sem eru yfir í mæðrastyrksnefnd? sitja inni allann daginn og spila tölvuleiki eða?.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 14:15
af playman
DJOli skrifaði:Það sem ég er réttara sagt forvitnari með er að skv frétt sem ég rak augun í þá voru þetta þrjár tölvur að andvirði yfir 1.1milljón isk.

Hvað gera þær sem eru yfir í mæðrastyrksnefnd? sitja inni allann daginn og spila tölvuleiki eða?.

Sama og ég hugsaði/sagði :sleezyjoe :-k

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 14:30
af tomasjonss
Kannski sérkennilegt verðlag. Gæti ekki verið að inni í þessari tölu sé líka verð á ýmiskonar hugbúnaði sem þær þurfa á að halda?

Síðan er auðvitað betra að eiga dýrari og öflugari tölvu svo þú þarft ekki að vera að endurnýja eftir ákveðin X tíma.

Burtséð frá þessu, þá vona ég að Karma nái í skottið á þessum marbendlum.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 14:40
af playman
tomasjonss skrifaði:Kannski sérkennilegt verðlag. Gæti ekki verið að inni í þessari tölu sé líka verð á ýmiskonar hugbúnaði sem þær þurfa á að halda?

Síðan er auðvitað betra að eiga dýrari og öflugari tölvu svo þú þarft ekki að vera að endurnýja eftir ákveðin X tíma.

Burtséð frá þessu, þá vona ég að Karma nái í skottið á þessum marbendlum.


Þá hafa þær verið tekið í þurt #-o
Allaveganna hérna á AK þá eru þær ekkert með tölvur, bara penna og blað, og virkar vel. (Allaveganna svo að ég viti)
Hugsanlega hafa þær þurft Office pakka, þar sem að þetta er soldið stærra battery þarna fyrir sunnan. sem kostar kanski um 17k
En að þær þurfi einhverja super vélar til að keyra bókhald, er bara rugl.
http://tolvutek.is/vara/gigabyte-uppfaersla-3 ætti að vera meyra en nóg fyrir þær.
og sú vél ætti að duga þeim í nokkur ár auðveldlega, ættu að geta náð einum 6 árum allaveganna.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 15:06
af capteinninn
Var einmitt að hugsa nákvæmlega sama með verðið á þessu, er ekki frekar ólíklegt að þau nái 1.1 milljón króna tölvum nema það hafi verið tekið með skjávarpar og flatskjáir?
Ég ætla samt að fylgjast með þessu og sjá hvort maður sjái einhverjar vélar til sölu sem gætu verið þessar.

Þau þyrftu að láta vita hvernig tölvur þetta voru, ætti ekki að vera flókið að senda söluaðilanum tölvupóst og spyrja hvernig tölvur þetta voru og þeir geta checkað eftir kennitölu.
Ég er búinn að senda þeim tölvupóst og spyrjast fyrir um þetta og læt ykkur vita hvaða tölvur þetta eru þegar ég fæ svar

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 15:18
af Tiger
Það er talað um að tjónið nemi rúmlega milljón, er þá ekki inní því skemmdir á hurð/gluggum og fleirra sem gæti hafa skemmst í innbrotinu?

Og mér finnst nú ekki ólíklegt að mæðrastyrksnefnd hafi fengið þessar tölvur gefins/styrk eða á mjög góðu verði þótt markaðsvirði þeirra sé hátt.

En það er ekki pointið með þessum þræði, að spá hvernig tölvunar þær voru með. Heldur leggjumst á eitt við að hafa augun opin, því ég held maður komist ekki lægra í aumingjaskalnum en að ræna af mæðrastyrksnefnd.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 15:37
af playman
Tiger skrifaði:En það er ekki pointið með þessum þræði, að spá hvernig tölvunar þær voru með. Heldur leggjumst á eitt við að hafa augun opin, því ég held maður komist ekki lægra í aumingjaskalnum en að ræna af mæðrastyrksnefnd.

Tjah það er betra að vita hverninn vélbúnað var stolið, soldið erfitt að ætla að leita að stolnum bíl og ekki vitað hverninn
bíl var stolið :happy

En ég er hjartanlega sammála með aumingjaskapin, það ætti að taka þessa aðila híða þá vandlega og henda þeim út í hraun. :mad

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 15:55
af vesi

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 16:04
af appel
Bara fá sér gamlar 486 tölvur og bolta þær í jörðina.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 16:31
af AciD_RaiN
appel skrifaði:Bara fá sér gamlar 486 tölvur og bolta þær í jörðina.

Ef það væri hægt að gera like hérna þá fengir þú eitt frá mér :happy

Hérna kemur fram að tölvurnar hafi verið að andvirði rúmri milljón
http://ruv.is/frett/ovist-um-paskauthlu ... aestu-viku

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 17:11
af Solkerfi
Afhverju eru viðkvæmar upplýsingar geymdar localt á vélunum ?

Ég ætla rétta að vona að gögnin fari ekki ódulkóðuð í hendur rangra manna.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 17:32
af Gúrú
Solkerfi skrifaði:Afhverju eru viðkvæmar upplýsingar geymdar localt á vélunum ?

Ég ætla rétta að vona að gögnin fari ekki ódulkóðuð í hendur rangra manna.


Að sjálfsögðu er þetta allt ódulkóðað á local vélum og í höndum rangra manna.

Fólk sem að veit ekkert um öryggi er almennt lélegt í því að halda upplýsingum öruggum. :|

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 28. Mar 2012 17:52
af appel
Solkerfi skrifaði:Afhverju eru viðkvæmar upplýsingar geymdar localt á vélunum ?

Ég ætla rétta að vona að gögnin fari ekki ódulkóðuð í hendur rangra manna.

Þetta eru miðaldra kellingar, helduru að þær séu eitthvað inni í öryggismálum og dulkóðun?

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Þri 03. Apr 2012 13:28
af Solkerfi
Þær meiga ekki taka niður slíkar upplýsingar eða halda úti slíkum gagnagrunni án þess að vera með einhverja stefnu í gagnaöryggi.

Lögbrot as it is

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Þri 03. Apr 2012 14:06
af DJOli
Rúv skrifaði:Þremur nýjum tölvum að verðmæti yfir eina milljón króna var stolið hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í nótt.

Vísir skrifaði:Þjófarnir höfðu þrjár nýlegar Lenovo fartölvur á brott með sér - tölvurnar voru keyptar í síðustu viku.

Nýherji skrifaði:Lenovo TP T420 Fartölva kostar 344.900 kr. m/vsk.

http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 6,655.aspx

Þetta er allt að smella saman.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Þri 03. Apr 2012 14:33
af playman
Hvað í ósköpunum eru þær að gera með þessar vélar?
Spila BF3 þegar ekkert er að gera?
Held frekar að þær hefðu átt að kaupa ódýrari vélar og auka matarúthlutuninna. [-X

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Þri 03. Apr 2012 17:21
af lukkuláki
playman skrifaði:Hvað í ósköpunum eru þær að gera með þessar vélar?
Spila BF3 þegar ekkert er að gera?
Held frekar að þær hefðu átt að kaupa ódýrari vélar og auka matarúthlutuninna. [-X


Leyfi mér að efast um að þessar vélar hafi verið keyptar af mæðrastyrksnefnd. Líklega bara styrkur frá einhverju fyrirtæki.
Þetta er samt svona eins og að segja hvað hafa þær að gera með klósettpappír ? bara nota puttana.
Það þarf tölvubúnað til að reka svona starfsemi og það er ekki endilega ódýrara að notast við eitthvað úrelt drasl sem þarf endalaust viðhald.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Þri 03. Apr 2012 17:23
af tomasjonss
lukkuláki skrifaði:
playman skrifaði:Hvað í ósköpunum eru þær að gera með þessar vélar?
Spila BF3 þegar ekkert er að gera?
Held frekar að þær hefðu átt að kaupa ódýrari vélar og auka matarúthlutuninna. [-X


Leyfi mér að efast um að þessar vélar hafi verið keyptar af mæðrastyrksnefnd. Líklega bara styrkur frá einhverju fyrirtæki.
Þetta er samt svona eins og að segja hvað hafa þær að gera með klósettpappír ? bara nota puttana.
Það þarf tölvubúnað til að reka svona starfsemi og það er ekki endilega ódýrara að notast við eitthvað úrelt drasl sem þarf endalaust viðhald.


X2

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 04. Apr 2012 12:09
af playman
lukkuláki skrifaði:
playman skrifaði:Hvað í ósköpunum eru þær að gera með þessar vélar?
Spila BF3 þegar ekkert er að gera?
Held frekar að þær hefðu átt að kaupa ódýrari vélar og auka matarúthlutuninna. [-X


Leyfi mér að efast um að þessar vélar hafi verið keyptar af mæðrastyrksnefnd. Líklega bara styrkur frá einhverju fyrirtæki.
Þetta er samt svona eins og að segja hvað hafa þær að gera með klósettpappír ? bara nota puttana.
Það þarf tölvubúnað til að reka svona starfsemi og það er ekki endilega ódýrara að notast við eitthvað úrelt drasl sem þarf endalaust viðhald.

Já hugsanlega var þetta styrkur, að einhverju eða öllu leiti, hef ekki hugmynd um það, enda kom það aldrey fram.

Þessi líking er alveg út úr kú hjá þér, þú hefðir frekar átt að seygja, "Þetta er eins og nota 200kr klósettpappír í staðin fyrir 2000kr klósettpappír"
Og ég var heldur ekkert að seygja að þær höfðu ekki þörf á tölvubúnaði, þetta er það stórt battery þarna fyrir sunnan að þær þurfa vélar.
Og heldur sagði ég aldrey að þær ættu að notast við einhvern notaðan eldgamlan búnað, þó svo að hann þurfi ekkert að vera neitt verri,
ég er að nota 7 ára gamla ferðavél og ekki get ég sagt að hún þarfnist eithvað meyra viðhalds frekar en 1 mánaða vél! :slapp
Þetta fer allt eftir því hverninn aðilinn fer með vélarnar.

Fyrir þessar konur þá væri þessi vél alveg nóg fyrir þær http://tolvutek.is/vara/hp-630-lj514ut-fartolva
og fyrir þær þá myndu þær ekki fynna neinn mun á vélunum.

Það sem að ég er að skammast mest yfir er að þær hafi keypt/afhent svona dýrar vélar,
og að þær skuli ekki hafa tekið þær með sér heim í lok vinnudags.
Auðvitað ætti að vera hægt að "treysta" fólki til þess að hafa þá samvisku að vera ekki að stela frá þeim sem
eru að láta gott af sér leiða, og vera gera svona frábært verk eins og mæðró hefur verið að gera.
En því miður þá eru til svona aðilar sem hafa einga samvisku og myndu selja dóttur/móður/ömmu/konu sína
annað hvort fyrir peninga eða næsta skamt.

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 04. Apr 2012 12:32
af AciD_RaiN
Er ekki um að gera að reyna að gera það sem við getum til að aðstoða þær bara við að finna vélarnar frekar en að reyna að stofna til leiðinda útaf þessu máli. Það er of algengt að menn fari að rífast hérna :(

Re: Innbrot hjá mæðrastyrksnefnd.

Sent: Mið 04. Apr 2012 12:49
af playman
AciD_RaiN skrifaði:Er ekki um að gera að reyna að gera það sem við getum til að aðstoða þær bara við að finna vélarnar frekar en að reyna að stofna til leiðinda útaf þessu máli. Það er of algengt að menn fari að rífast hérna :(

Sammála, nú þegar að við vitum hverninn vélar þetta eru þá ætti þetta að vera aðeins auðveldara