Síða 1 af 2

Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 21:33
af lukkuláki
Mig langar í tilefni þess að ég las á heimasíðu áðan að samanlögð reynsla starfsmanna væri 40 ár (starfsmenn eru 4)
að vita hvað við Vaktarar erum með samanlagt mikla reynslu í tölvugeiranum. Mér finnst frekar kjánalegt að leggja þetta saman.
Ef ég færi að vinna þarna þá gæri hann breytt þessu í 55 ára reynslu :-"

Myndi halda mv. þessar forsendur að td. Skýrr væri með nokkur hundruð ára reynslu í tölvugeiranum :P

Ég er með 15 ára reynslu í tölvugeiranum.


15 ár.

Endilega plúsið og leggið saman sjáum hvað þetta endar í mörgum árum.

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 21:41
af vesley
Við vinnu hjá Tölvugeiranum ætti það að vera um slétt 1 ár

Nám sem tengist tölvum þá lengist þetta í 1,5 ár.

En tími fyrir framan tölvu :shock: ætla ekkert að pæla í því :lol:

EDIT: Tími sem hefur farið í samsetningar og álíka vinnu 6 ár

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 21:42
af oskar9
Er búinn að vera púsla saman vélum fyrir mig og aðra og sinna viðgerðum og upsetningum í 6 ár

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 21:45
af kubbur
11 ár síðan ég fór að fikta

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 21:46
af AciD_RaiN
Ég var nú alltaf að reyna að læra eitthvað nýtt, hakka og gera heimasíður og búa til vírusa frá 9-12 ára en svo hef ég ekkert sinnt þessu fyrr en frá október í fyrra þannig ég ætla að leyfa mér að segja að ég hafi vitað hvað ég var að gera í 5 mánuði :catgotmyballs

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 21:53
af ORION
Skrifaði fyrstu php skriftuna mína 10 ára, og reiknið nú!
Haha,,, Er 17.

Jæks hvar verð ég eftir 10 ár?
líklegast littla-hraun fyrir rafrænt bankarán...

Skyrr -> Advania

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:01
af lukkuláki
Þetta gengur ekkert allt of vel ég var að vonast til að þið gætuð lagt saman + =
Ég 15 ár
næsti 1,5 ár
=16,5 ár
+ 6 ár
= 22,5 ár
....
...
..
.
og hver fyrir sig gæti bara bætt við og summað.

Þetta er komið í 34 ár. Veit ekki hvern fjandann Orion er að spá ekki veit ég hvað hann er gamall en auðvitað á ég að vita það ](*,)

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:10
af ORION
lukkuláki skrifaði:Þetta gengur ekkert allt of vel ég var að vonast til að þið gætuð lagt saman + =

Þetta er komið í 34 ár. Veit ekki hvern fjandann Orion er að spá ekki veit ég hvað hann er gamall en auðvitað á ég að vita það ](*,)


er 17... Ég er fjandi :fullur

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:26
af hagur
18 ár síðan ég fékk mína fyrstu tölvu og síðan var ekki aftur snúið.

34+18 = 52 ár

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:37
af siggi83
Segi svona 10 ár
Er samt búinn að eiga tölvu síðan ég var 9 ára og er 29 í dag
en byrjaði ekki spá neitt að viti í þeim fyrr en ég var 19

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:39
af vesley
Eru menn hér að tala um reynslu sína í því að sitja fyrir framan tölvu eða starfsreynslu í tölvutengdu starfi ?

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:41
af siggi83
vesley skrifaði:Eru menn hér að tala um reynslu sína í því að sitja fyrir framan tölvu eða starfsreynslu í tölvutengdu starfi ?

þá dett ég niður í 0 ef það er starfsreynsla

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:42
af hagur
Ég tók þessu sem bara fjölda ára fyrir framan tölvu.

Ef svo er, 18 ár.

Ef bara árafjöldi í tölvutengdu starfi, þá er það 13 ár hjá mér.

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:46
af bulldog
búinn að fikta síðan 1982 ....

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mán 26. Mar 2012 22:56
af þorri69
Ferðu ekki bara í rafrænt fangelsi fyrir svoleiðis rán :-k

ORION skrifaði:Skrifaði fyrstu php skriftuna mína 10 ára, og reiknið nú!
Haha,,, Er 17.

Jæks hvar verð ég eftir 10 ár?
líklegast littla-hraun fyrir rafrænt bankarán...

Skyrr -> Advania

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 04:07
af natti
vesley skrifaði:Eru menn hér að tala um reynslu sína í því að sitja fyrir framan tölvu eða starfsreynslu í tölvutengdu starfi ?

Mér sýnist flestir hérna vera að tala um "að sitja fyrir framan tölvu" tímann...

Og ég get ekki séð að þetta gangi neitt upp... það að setja saman tölvu, overclocka hana og spila svo quake og counter-strike og <insertname> leiki í 10 ár getur ekki á nokkurn hátt skrifast sem 10 ára reynsla við tölvur.
Með sömu hugmyndafræði þá gæti ég sagt að ég hefði rúmlega 13 ára reynslu af bílum... en ég get alveg sagt ykkur það að ef það kemur ljós í mælaborðið þá fer ég með hann á verkstæði og pæli ekkert í því frekar...

Rétt eins og þegar húsasmíðameistari talar um reynsluna sína, þá telur hann ekki með árin sem hann var úti á smíðavelli sem krakki að byggja kofa...

Þannig að ef þetta ætti að vera e-ð vitrænt, þá ætti reynslan að miðuð við starfsreynslu....


Enn fyrst við erum á þessum nótunum, þá var einstaklingur að vinna hjá sama fyrirtæki og ég fyrir allnokkrum árum sem var kynntur með eftirfarandi starfsreynslu(circabout):
forritun: 10 ár
SQL database admin: 5 ár
Microsoft system admin: 7 ár
Öryggismál: 3 ár.

Nú mætti halda að hann hefði 25 ára starfsreynslu... sem kom ekki heim og saman við að maðurinn var rétt orðinn þrítugur.
Starfsreynslan var s.s. um 10 ár... en CV-ið gaf samt 25 ára starfsreynslu til kynna.
Var hann með kunnáttu sem jafnast á við 5 ár af því að vera SQL db admin? Nei. Eða 7 ára MS admin? Nei.
Basically þá var hann helvíti góður forritari, en hafði "haft puttana í" hinum og þessum málum og taldi það svona fram sem starfsreynslu.

Þetta er ekkert ósvipað og þegar talað er um "samanlagða starfsreynslu". Segir nákvæmlega ekki neitt.
Það er fáránlegt þegar fyrirtæki með 5 starfsmenn sem hafa allir 4 ára starfsreynslu státar sig af því að vera með "yfir 20 ára samanlagða reynslu".

En on topic, þá er ég með rúmlega 11 ára starfsreynslu...
Ef við ættum að telja með árin sem ég hékk á ircinu með sem "reynslu" þá erum við í allt öðrum pakka :)

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 04:38
af Varasalvi
Ég fór á tölvu námskeið í 2 vikur, svo bættu 2 vikum við þetta :8)

Annars fékk ég fyrstu tölvuna mína fyrir 16 árum og hef ekki hætt síðan :)

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 08:08
af Frost
0 ár starfsreynsla en 4 ár síðan ég fór að fikta :D

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 11:35
af rapport
iss...

1988 kom fyrsta tölvan á heimilið.
1989 þá sagði makkinn ekki "Mackintosh Heilsar" heldur einhver dónaleg skilaboð til litla bró og iconið var orðið táknrænt.

Þannig að fikt = 23ár.

Unnið í tölvugeiranum = 5 ár.

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 13:09
af worghal
0 ár í starfi en 11 ár fyrir framan skjáinn og í fiktinu :D
vildi óska þess að ég hafi einnig eytt tímanum og lært flóknari hluti eins og til dæmis forritun yfir þann tíma :(

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 13:53
af Nördaklessa
er búinn að vera meira og minna límdur við skjáinn frá því ég var 13 ára er 26 ára í dag, en byrjaði eiginlega fyrst að fikta við þær fyrir um 2-3 árum...

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Þri 27. Mar 2012 15:31
af methylman
Fiktið byrjaði með því að skrifa forrit í BASIC 1983-84 svo ég telst hokinn af reynslu. Það var annars lítið sem ekkert hægt að gera við þessar vélar http://en.wikipedia.org/wiki/Sharp_MZ#Overview, nánast engir leikir til fyrir þær, enda drukknuðu þær í flóði Sinclair Spectrum véla

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mið 28. Mar 2012 04:37
af natti
worghal skrifaði:0 ár í starfi en 11 ár fyrir framan skjáinn og í fiktinu :D
vildi óska þess að ég hafi einnig eytt tímanum og lært flóknari hluti eins og til dæmis forritun yfir þann tíma :(


Hindsight is always 20/20...

Aldrei of seint að byrja...
Betra að byrja núna heldur en að horfa til baka 2016 og hugsa "djöfull hefði ég átt að byrja 2012 þegar ég var að pæla í því..."

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mið 28. Mar 2012 04:44
af worghal
natti skrifaði:
worghal skrifaði:0 ár í starfi en 11 ár fyrir framan skjáinn og í fiktinu :D
vildi óska þess að ég hafi einnig eytt tímanum og lært flóknari hluti eins og til dæmis forritun yfir þann tíma :(


Hindsight is always 20/20...

Aldrei of seint að byrja...
Betra að byrja núna heldur en að horfa til baka 2016 og hugsa "djöfull hefði ég átt að byrja 2012 þegar ég var að pæla í því..."

auðvitað, en þegar maður pælir í því hvað ég hefði getað gert á þessum 11 árum xD

Re: Tölvureynsla samanlagt :)

Sent: Mið 28. Mar 2012 08:03
af Garri
Natti er með þetta!

Hræddur um að starfsreynsla sumra hérna flokkist ekki alveg á sama hátt og öðrum þætti eðlilegt.

Ég byrjaði til dæmis að vinna við tölvur sumarið 1978, á rannsóknarstofunni á Járnblendi verksmiðjunni á Grundartanga. Vann þar á CPM-80 stýrikerfinu og á hardware sem keyrði Z80 örgjörvann og framleitt af Tandy Radio Check ef ég man nöfnin rétt.. varð upphrifinn af þessu og keypti mér í framhaldi Tandy RadioCheck tölvu sjálfur(1979 ef ég man rétt), í henni var hægt að skrifa í vélamáli og síðar basic sem ég og gerði.

Engu að síður byrjaði ég ekki að vinna við þetta að alvöru fyrr en 1985 og hef síðan þá unni við sölu á tölvum og tölvubúnaði, innflutning á tölvum, samsetningu, uppsetningu á netkerfum (aðallega Novel, bras með IRQ og addressur), kennslu á tölvur og vinsælustu forrit um 5 ára skeið og loks samfara þessu, mikilli forritun og þá meina ég mjög mikilli. Mest í Pascal en einnig í DataFlex, Cobol ásamt einhverju meir sem ég er eflaust búinn að gleyma ídag.

Man að ég tók saman helstu kerfi sem ég hafði smíðað 1995 en þau voru í kringum töluna 75 svo að já.. það má segja að starfsreynslan sé orðin all veruleg.

Hugsa að í sumum tilfellum sé starfsreynslan meiri en góðu hófi gegnir og í einhverjum tilfellum sé hægt að segja að ég sé búinn að gleyma meir en margir kunna í dag.