Síða 1 af 1
Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 14:47
af capteinninn
Var að meta að kaupa Kindle Fire og láta senda frá Bandaríkjunum líklega með express sendingu.
Hefur einhver keypt hana og veit hvað tollur/skattur er nákvæmlega hár á þessum græjum.
Er líka að spá hvað það kostar mikið að express senda þetta hingað.
Græjan kostar um 24 þús án toll og skatts og allt það, ég þarf ekki ábyrgð á græjunni því ég hef í 99% tilvika verið fucked þegar kemur að ábyrgð á hlutum á Íslandi. Hef aldrei fengið neitt úr þeim.
Vill frekar bara senda þetta hingað til mín og borga toll og skatt sjálfur, hef pantað hluti frá Amazon í Bretlandi áður og það var einkar einfalt, verst bara að þeir selja ekki Kindle Fire nema í BNA.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 14:49
af PepsiMaxIsti
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... ry_id=4510Venjulegur kindle hérna á 30.000, þannig að e´g hugsa að 55 sé ekki langt frá því að vera rétt verð, líka með ábyrgð
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 14:51
af tlord
þeir eru sennilega að bæta ca 20-25% við verðið. finnst þér að þeir eigi að vinna frítt?
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 14:53
af gardar
tlord skrifaði:þeir eru sennilega að bæta ca 20-25% við verðið. finnst þér að þeir eigi að vinna frítt?
Þeir eru líka sennilega að fá þetta á heildsöluverði
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 14:58
af Blackbone
http://www.smartshop.is/is/vara/kindle-fire-7/4592veit ekkert um þessa síðu en þarna er hún allavega ódýrari
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 15:07
af tlord
gardar skrifaði:tlord skrifaði:þeir eru sennilega að bæta ca 20-25% við verðið. finnst þér að þeir eigi að vinna frítt?
Þeir eru líka sennilega að fá þetta á heildsöluverði
þeir eru væntanlega með díl hjá einhverri póstverslun, ætli það sé nema 5 - 10%, svo er líka 2 ára ábirgð í gegnum þá
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 15:27
af capteinninn
Breytti postinum mínum þegar ég áttaði mig á því hvað ég hugsaði ekki þegar ég gerði postinn. Buy.is og fleiri vefverslanir standa sig vel að bjóða upp á þessa þjónustu og finnst mér þeir alveg klárlega hafa rétt á því að leggja á vörur.
Margir nenna ekki að standa í veseninu að senda þetta hingað og finnst mér frábært að þeir séu að hjálpa fólki að fá vörur frá útlöndum á betra verði.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 16:11
af Daz
25.5% vsk og svo tollmeðferðargjald (500 kr eða 3000, fer eftir heildarverðinu). Muna bara að virðisaukinn er á innkaupaverðinu (verð + flutningur) ekki bara á verðinu sem þú borgar söluaðila.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 16:27
af rattlehead
Hef heyrt að ekki er hægt að ná í kvikmyndatengt efni á Íslandi gegnum Kindle Fire. Væntanlega út á höfundarrétti.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 16:37
af Daz
rattlehead skrifaði:Hef heyrt að ekki er hægt að ná í kvikmyndatengt efni á Íslandi gegnum Kindle Fire. Væntanlega út á höfundarrétti.
Það er ekki hægt að ná í kvikmyndatengt efni í gegnum Amazon storeið í Kindle Fire, það er alveg örugglega hægt að downloada öllu sem þú hefur sjálfur keypt og afritað á tölvutækt form.
Er það nokkuð frekar hægt í gegnum Itunes? Eða nokkra aðra online "löglega" media verslun á netinu (Bandaríska í það minnsta).
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 17:02
af rattlehead
Daz skrifaði:rattlehead skrifaði:Hef heyrt að ekki er hægt að ná í kvikmyndatengt efni á Íslandi gegnum Kindle Fire. Væntanlega út á höfundarrétti.
Það er ekki hægt að ná í kvikmyndatengt efni í gegnum Amazon storeið í Kindle Fire, það er alveg örugglega hægt að downloada öllu sem þú hefur sjálfur keypt og afritað á tölvutækt form.
Er það nokkuð frekar hægt í gegnum Itunes? Eða nokkra aðra online "löglega" media verslun á netinu (Bandaríska í það minnsta).
Það er reyndar rétt hjá þér.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 17:07
af gardar
Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:19
af Daz
gardar skrifaði:Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Það var stefnan að þeir leggðu VSK á vörur á rafrænu formi. Ekki Kindle.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:23
af kubbur
pff, keypti kindle 4 nt beint frá amazon, kostaði 25 þús komið í hendurnar á mér, tók 2 daga
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:24
af Daz
kubbur skrifaði:pff, keypti kindle 4 nt beint frá amazon, kostaði 25 þús komið í hendurnar á mér, tók 2 daga
Amazon sendir ekki Kindle Fire til Íslands.
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:32
af gardar
Daz skrifaði:gardar skrifaði:Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Það var stefnan að þeir leggðu VSK á vörur á rafrænu formi. Ekki Kindle.
Já ég átti við þetta varðandi umræðuna hér að ofan varðandi rafrænar vörur fyrir kindle...
Það er kannski hálf kjánalegt að rukka vsk af rafrænum vörum ef það er svo ekki hægt að kaupa rafrænar vörur frá íslenskri ip
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:36
af capteinninn
kubbur skrifaði:pff, keypti kindle 4 nt beint frá amazon, kostaði 25 þús komið í hendurnar á mér, tók 2 daga
Hvað borgaðirðu í Express shipping sem þú væntanlega notaðir? Fékkstu frá Amazon.com eða Amazon.co.uk?
Þannig að þetta kostar um 35-40 þús um það bil?
Virkar ekki alveg að kaupa bækur og þannig? þarf ekki að downloada þáttum og bíómyndum í þetta
Re: Kindle Fire til Íslands
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:43
af Daz
gardar skrifaði:Daz skrifaði:gardar skrifaði:Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Það var stefnan að þeir leggðu VSK á vörur á rafrænu formi. Ekki Kindle.
Já ég átti við þetta varðandi umræðuna hér að ofan varðandi rafrænar vörur fyrir kindle...
Það er kannski hálf kjánalegt að rukka vsk af rafrænum vörum ef það er svo ekki hægt að kaupa rafrænar vörur frá íslenskri ip
(Vildi bara hafa þetta skýrt, svona fyrir þá sem vita ekkert um málið).
Það er eitthvað við þessa mismunandi miðla, kvikmyndir og bækur. Amazon ætti að leggja vsk á rafbækur sem þeir sannarlega selja Íslendingum. Hitt er síðan varið af allskonar hagsmunarsamtökum, þar sem íslenska ríkið kemst sko ekki með tærnar þar sem þeir hafa hælana í gróða og gjaldahugsjón.