Síða 1 af 1
með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:50
af cure
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:52
af Eiiki
Almennt myndi ég velja Dell framyfir HP. En í þessum samanburði myndi ég kjósa HP vélina, þar sem hún er með betri disk og örlítið betri örgjörva sem engin maður finnur mun á. En annars er Dell vélin með betra batterý heldur en HP.
Í hvað á vélin annars að vera notuð?
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:52
af GuðjónR
Hvorug, en ef ég yrði að velja þá er það Dell.
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:54
af AciD_RaiN
Ég held að það sé alveg undir þér komið. Persónulega myndi ég velja Dell því ég hef bara enga reynslu af HP
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:54
af cure
GuðjónR skrifaði:Hvorug, en ef ég yrði að velja þá er það Dell.
hvað myndir þú velja þér ?
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:55
af AciD_RaiN
cure skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hvorug, en ef ég yrði að velja þá er það Dell.
hvað myndir þú velja þér ?
hahaha hann færi "the apple way"
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 21:58
af GuðjónR
cure skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hvorug, en ef ég yrði að velja þá er það Dell.
hvað myndir þú velja þér ?
Ef ég væri að fara í fartölvu í dag þá væri það MacBookPro eða Air ... en það er bara ég ...
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 22:05
af Eiiki
GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að fara í fartölvu í dag þá væri það MacBookPro eða Air ... en það er bara ég ...
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Lau 10. Mar 2012 22:11
af GuðjónR
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Sun 11. Mar 2012 00:00
af cure
Takk fyrir svörin
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Sun 11. Mar 2012 00:02
af SolidFeather
ProBook því hún er með möttum skjá.
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Sun 11. Mar 2012 00:12
af tomasjonss
Hafði varla snert apple fyrr en fyrir stuttu. Hef neyðst til þess að hamast á einni síðustu tvær vikurnar og nú langar mig eiginlega bara að skipta.
+
Blótaði þessu í sand og ösku fyrstu tvo dagana en síðan tengdumst við sterkum og nánast traustum böndum.
Já, annars tæki ég dellarann
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Sun 11. Mar 2012 11:29
af Hargo
Sýnist HP vélin vera með betra skjákorti, hraðari og stærri disk, aðeins betri CPU og er léttari.
Hinsvegar er Dell vélin með 3 ára ábyrgð, USB 3.0 og mögulega aðeins betri rafhlöðuendingu.
Ég tek þó þessari rafhlöðuendingu með fyrirvara á báðum vélum, finnst aldrei neitt að marka þetta í auglýsingum þegar stendur "allt að x klst rafhlöðuending". Fer svo rosalega eftir því hvað þú ert að gera í tölvunni og það er held ég enginn alþjóðlegur tíma benchmark sem framleiðendurnir nota. Þessar 6 klst sem rafhlaðan er sögð eiga að endast gæti þess vegna verið mælt þegar slökkt er á wifi, brightness í minnstu stillingu, slökkt á öllum óþarfa og tölvan látin vera idle. Svo er einhver annar framleiðandi sem mælir rafhlöðuendinguna á sínum vélum á allt annan hátt.
Annars mæli ég með að fara á staðinn og skoða báðar vélarnar, prófa lyklaborðið, touchpad o.fl. og taka svo ákvörðun.
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Sun 11. Mar 2012 12:33
af k0fuz
held að spurningin sé bara, hvort viltu lakari tölvu með 3 ára ábyrgð eða aðeins betri tölvu með 2 ara abyrgð. HP tölvan er almennt með betri specca, allt það sem þeir sem hafa commentað á undan mér eru búnir að telja upp. Einnig er betra netkort og skjákort í HP vélinni og tel ég það mikilvægt að vera með gott netkort sérstaklega á tímum sem þessum þar sem hægt er að fá svo ógurlegan hraða ef um góða tengingu er að ræða
Re: með hvorri tölvunni mynduð þið mæla með ?
Sent: Sun 11. Mar 2012 20:31
af Philosoraptor
Ef ég væri að kaupa mér fartölvu færi ég í þessa
http://kisildalur.is/?p=2&id=1817öflug vél fyrir peninginn og 14" er lang þægilegasta stærðin að mínu mati