Síða 1 af 1

Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 16:20
af intenz
Jæja drengir, hafið þið einhverja reynslu af slíku?

Það er haugur af þessu til:

http://www.tannhvittun.is
http://kringlubros.is
http://hvitartennur.is
http://www.hvittbros.is
http://www.stjornubrostannhvittun.is

En svo aftur á móti er mjög mikið verið að vara við þessu...

http://www.visir.is/varad-vid-fuskurum- ... 1110229788
http://www.visir.is/ahyggjur-af-sterkum ... 2701239981

Hvað finnst ykkur? Ætti maður að treysta þessu?

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 16:32
af Klemmi
Fékk fría mótagerð af tönnunum mínum frá vinkonu minni sem er tannsmiður og prófaði með því ContrastPM+ með 20% carbamide peroxide, hafði þetta í mér í 2klst einu sinni og sá þá ágætis mun, varð ekki var við neinar aukaverkanir eða vesen.

Hef alltaf ætlað að nota þetta aftur við tækifæri, en þetta var allavega einfalt í notkun og fljótvirkt. En hvort sem þetta er óhollt í hóflegri eða óhóflegri notkun þori ég ekki að segja til um, en vil einnig nefna fyrir mitt leyti að OF hvítar tennur eru ekki fallegar :)

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 16:36
af Bjosep
Ef þú vilt vera öruggur þá læturðu bara tannlækni (tannsmið kannski líka) hvíta á þér tennurnar. Það kostar samt örugglega hátt í 30 þúsund krónur skiptið.

Ég nennti nú ekki að klikka á tenglana, en man eftir umræðunni um daginn um að fúskarar væru að nota of sterk efni og nota þau vitlaust.

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 16:39
af AciD_RaiN
Það er lítil verslun hinu megin við götuna hjá stóru krónunni í hfj sem heitir að mig minni fjarðarsport og hún er með rosa solid tannhvítu efni þar... Þetta var það eina sem mín fyrrverandi notaði og hún var vel inn í þessu...

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 16:44
af Joi_BASSi!
það virkar lang best að nota bara klór. það er samt frekar skrítið bragð til að byrja með.
munnfylli einusinni á dag

:troll

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 17:04
af Gúrú
Joi_BASSi! skrifaði:það virkar lang best að nota bara klór. það er samt frekar skrítið bragð til að byrja með.
munnfylli einusinni á dag


Ekki fara inn á spjallborð og gefa svona algjörlega van- ráðgjöf til fólks.

Það að nota klór eða matarsóda er að framkvæma glerungseyðingu sem að gerir tennurnar "hvítari"
en um leið framkvæmir það varanlegan skaða og þú færð aldrei þennan glerung til baka.

Njóttu kostnaðarins sem að mun hleypa á hundruðum þúsunda á hverja einustu tönn við það að smíða postulínskrónur
ef að þú ætlar að taka munnfylli af klór daglega.

Hilarious hvað þetta er allt copy/paste hjá þessum vefsíðum samt.

Hvittbros (Þórður Birgisson) skrifaði:Það er því miður eðlilegt að litur tanna breytist með tímanum. Ef tennur okkar hafa dökknað eða hafa alltaf verið dekkri en við erum sátt við er hægt að nota hvíttunaraðferðir til að lýsa tennurnar. Tannhvíttun gefur í flestum tilvikum mikinn árangur. Óhætt er að fullyrða að lýsing tanna eða "tannhvittun" hefur gjörbreytt möguleikum tannlækna til að fegra bros sjúklinga okkar.


Kringlubros (Kristín Sandholt) skrifaði:Það er því miður eðlilegt að litur tanna breytist með tímanum. Ef tennur okkar hafa dökknað eða hafa alltaf verið dekkri en við erum sátt við er hægt að nota hvíttunaraðferðir til að lýsa tennurnar

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 18:37
af intenz
Hvað með matarsóda? Ég hef heyrt um það og googlað það í drasl en ekki fundið neitt slæmt um það. :-k

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 18:47
af gardar
Hættu bara að reykja gamli ;)

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 18:48
af intenz
gardar skrifaði:Hættu bara að reykja gamli ;)

Langt síðan ég hætti. :droolboy

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 20:08
af Gúrú
intenz skrifaði:Hvað með matarsóda? Ég hef heyrt um það og googlað það í drasl en ekki fundið neitt slæmt um það. :-k


Er þetta grín eða? :wtf

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 20:21
af Tbot
Matarsódi virkar oft sem ágætis stíflueyðir.

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 20:35
af intenz
Gúrú skrifaði:
intenz skrifaði:Hvað með matarsóda? Ég hef heyrt um það og googlað það í drasl en ekki fundið neitt slæmt um það. :-k


Er þetta grín eða? :wtf

Nei? :hugenose

Re: Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 20:45
af sakaxxx
hydrogen peroxide á að svínvirka enda er það notað til að hvíta bein og annað

http://www.skrewtips.com/2008/05/19/rin ... thy-mouth/

Tannhvíttun?

Sent: Sun 04. Mar 2012 23:43
af ManiO
Að hella klór upp í sig er e-ð sem að allir ættu að gera sér grein fyrir að er stórkostlega slæm hugmynd. Spurning hvort þetta stafi af því að klór í BNA er selt sem bleach, og svo er aðferð við að hvíta tennur kallað bleaching.

En Gúrú þú ert ansi duglegur að benda fólki á að ekki dugar að kasta fram hlutum sem staðreyndum án heimilda, en gleymir sjálfum þér af og til. Ertu með einhverjar heimildir fyrir matarsóda og eyðingu glerjungs?

Re: Tannhvíttun?

Sent: Mán 05. Mar 2012 01:24
af tdog
Ég myndi byrja á því að kaupa Colgate tannkrem, þessi sem eru merkt Whitening – Nei þetta er ekki auglýsingatrick, þetta virkar en þú þarft líka að nota þetta í 2 -3 mánuði til þess að sjá mun. OG þar sem þú brustar á þér tennurnar (vonandi 2svar á dag) er þetta enginn aukakostnaður þar sem þú þarft hvort eð er að kaupa þér tannkrem.

Re: Tannhvíttun?

Sent: Mán 05. Mar 2012 01:37
af g0tlife
Fór í tannhvítum á fyrstu hæðinni í turninum, gert mót og alles, gerir þetta svo bara sjálfur heima hjá þér á meðan þú sefur eða horfa á mynd spila leik og svínvirkar. Vandvirkar og góðar konur þar á ferð með húmorinn í lagi. Sé ekki eftir því allavega :happy

Re: Tannhvíttun?

Sent: Mán 05. Mar 2012 02:34
af ViktorS
Dettur alltaf þetta í hug þegar það er talað um tannhvítun.

Re: Tannhvíttun?

Sent: Mán 05. Mar 2012 09:26
af Gúrú
ManiO skrifaði:En Gúrú þú ert ansi duglegur að benda fólki á að ekki dugar að kasta fram hlutum sem staðreyndum án heimilda, en gleymir sjálfum þér af og til. Ertu með einhverjar heimildir fyrir matarsóda og eyðingu glerjungs?


Tannlækna. Brosciency vefsíðurnar sem að þú finnur hundruðir af (sjá neðar). 50 cent.

Þegar að ég segi matarsóda þá á ég við það sem að fólk á við með því: Að bursta tennurnar upp úr matarsóda.
Það er ekki einu sinni sambærilegt í skaða við það að nota tannkrem með x% matarsóda og ég veit ekki til þess
að nokkur, einu sinni broscience, vefsíða neiti því að þetta er bókstaflega að skemma tennurnar á þér. Allar reyna þær að sneaka því inn
með sem saklausustu orðalagi og mögulegt er. Sem dæmi:
"The free radicals from the water dissolved baking soda penetrate the teeth’s enamel[..]"
"You should only use this formula to whiten your teeth once every two weeks as baking soda is quite abrasive and can damage your tooth enamel if used too often."
"Baking soda teeth whitening is easy to accomplish and works fairly quickly. However, the baking soda particles can be hard on your enamel.
Each time you brush with baking soda, you wear down your enamel a little more." Hljómar svo saklaust að ég gæti látist.

Matarsódi, þó að hann sé ódýr, er ekki sérstaklega góð ákvörðun; en ef að þið ætlið að nota hann þá plís ekki nota hreinan matarsóda
heldur vel vatnsblandaðan matarsóda.

Re: Tannhvíttun?

Sent: Þri 06. Mar 2012 01:07
af intenz
Matarsódi er málið. Sé hellings mun eftir 1 skipti. :sleezyjoe

Re: Tannhvíttun?

Sent: Þri 06. Mar 2012 11:14
af Some0ne
Pantaði á sínum tíma svona Whitestrips rendur sem að þú límir á tennurnar og hefur í 30 min, tekur svona 7-10 skipti eftir því hversu gulur þú ert. Þetta svínvirkaði og kostar ekki svo mikið.

http://www.amazon.com/Crest-Whitestrips ... B000XS3FYM

Pantaði þetta reyndar af ebay e það er hægt að finna þetta útum allt á netinu.