Síða 1 af 1
Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 14:22
af hundur
Sælinú. Ég er orðinn ansi þreyttur á öllum ömurlegu koddunum sem ég á og ætla því að kaupa mér nýjan á næstu dögum. Getið þið mælt með einhverju sérstöku? Er eitthvað vit í því að kaupa kodda sem kostar yfir 10 þúsund kall?
Re: Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 15:24
af bixer
http://www.betrabak.is/index.php?page=s ... &Itemid=73 ég er að nota svona kodda og ég elska hann, ég tek hann oft með mér í stuttar ferðir því ég vil helst ekki sofa á öðrum koddum. Mæli hiklaust með þessum
mig minnir að það sé ekkert mál að fá afslátt hjá betra bak, athugaðu það endilega. þetta eru góðar vörur en mikil álagning
Re: Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 16:03
af stankonia
á sama koddann, mun aldrei fara í neitt annað aftur
Re: Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 16:04
af AciD_RaiN
Ég keypti mér kodda á 23 þús fyrir frekar löngu síðan sem jú var mjög góður og allt það en svo pissaði köttur í hann og frekar erfitt að þrífa þennan svamp og hvað þá merkipiss frá gröðum högna!!! Fór í rúmfatalagerinn og keypti þar kodda á 9.900 sem er tærasta snilld. Besti koddi sem ég hef nokkurntíman legið á... Svo er önnur týpa í rúmfó sem kostar 7.900 em er með svona dæld niður eins og ofangreindur koddi frá betra bak en ég veit ekki hvernig hann er en er með sama efni og þannig. Vonandi finnurðu eitthvað sem hentar þér
Re: Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 16:25
af mundivalur
ég er með svona
http://www.rumfatalagerinn.is/rl/vefver ... y_id=86501er alltaf með hann,ekki að fíla lögunnina að hinum koddanum
Re: Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 17:13
af isr
Tempur koddar frá Betrabak,algjör snild.
Re: Heilsukoddar
Sent: Sun 04. Mar 2012 18:31
af J1nX
það er líka svakalega mismunandi hvernig koddar fólki finnst þægilegt, ég t.d. vill sofa með "mjúka" kodda á meðan kærastunni finnast "harðir" koddar miklu betri.. mæli bara með því að þú farir niðreftir í betra bak eða eitthvað álíka og prófir bara nokkra og veljir þann sem þér líkar best