Síða 1 af 1
Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 19:15
af Krissinn
Hver er munurinn? Og hvor þeirra skilar bestu gæðum?
Re: Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 19:18
af Tiger
Bleksprautu skilar miklu betri gæðum ef þú ert að prenta úr ljósmyndir á góðan ljómyndapappír. Laserprentari þarf að vera gríðarlega dýr til að ná flottum litagæðum, en mjög henntugur ef þú ert að prenta mikið svarthvítt t.d. ritgerðir og þessaháttar. Mun ódýrari í rekstri í svoleiðis dæmi.
Re: Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 19:28
af hagur
Laser prentari er líka margfalt fljótari að prenta, sem er mikill kostur þegar maður er að prenta út langar ritgerðir, svo dæmi sé tekið.
Re: Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 20:12
af Krissinn
Okey, ég er að hugsa um prentun á ljósmyndum á ljósmyndapappir. Veit einhver hvernig þessi hefur verið að koma út:
http://tolvutek.is/vara/canon-pixma-ip3 ... tuprentari
Re: Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 22:07
af Tiger
þessi prentari er alveg örugglega fínn fyrir peninginn. Eins í þessu að þú færð oft það sem þú borgar fyrir að vissu leiti. Held að prentunin sé mjög fín, spurning um endinguna. Ég keypti mér MP630 frá Canon á sínum tíma og prentar mjög vel, en var fjótur að fara að spóla og flækja pappír ofl, enda ekki dýr prentari á sínum tíma.
Re: Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 23:50
af Krissinn
Tiger skrifaði:þessi prentari er alveg örugglega fínn fyrir peninginn. Eins í þessu að þú færð oft það sem þú borgar fyrir að vissu leiti. Held að prentunin sé mjög fín, spurning um endinguna. Ég keypti mér MP630 frá Canon á sínum tíma og prentar mjög vel, en var fjótur að fara að spóla og flækja pappír ofl, enda ekki dýr prentari á sínum tíma.
Bróðir pabba var að kaupa svona prentara í gær og pabbi var eitthvað búinn að skoða þetta og hann sagði við mig að það það kæmu mjög skýrar og fínar myndir úr honum, okkur langar að geta prentað valdar ljósmyndir út á ljósmyndapappír og sett tildæmis í ramma eða albúm. Hann á nefnilega Olympus E-400 myndavél og það er ekkert flott að prenta ljósmyndir teknar með henni með HP 1500 sem við erum með núna
Re: Bleksprautuprentari eða Laserprentari
Sent: Fös 02. Mar 2012 23:55
af dori
Svo er alltaf spurning um að kaupa sér ekki rándýran prentara sem kostar töluvert í rekstri heldur nota bara framköllunarþjónustu. Þannig er hægt að tryggja bestu gæðin.
Bara að henda þessu inn sem option sem ætti að skoða.