Síða 1 af 1

Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 09:04
af Daz
fara til mbl.is

Hver gerði hvað, fyrir hvern og :shock: :shock: :face
mbl.is sagði skrifaði:Nýtt Android-app frá öryggisfyrirtækinu Trend Micro gerir mögulegt að lengja líf rafhlaðna í snjallsímum frá fyrirtækinu.

Snjallsímar eru mjög tæknilega fullkomnir eins og flestir vita sem kynnst hafa þeim. Rafhlaðan er hins vegar Achillesar-hæll þessara síma. Android telur að hægt sé að laga þetta með því að nýta sér appið.

Með nýju rafhlöðunni, sem Android kynnti í gær, verður hægt að lengja hverja hleðslu um nokkra klukkutíma. Appið gerir símanum kleift að meta hvaða búnaðurinn sem völ er á notar mikið rafmagn og þar með forðast að nota það sem eyðir miklu rafmagni. Með app-tækninni getur notandinn fengið skilaboð um forrit sem hann er með noti óeðlilega mikið rafmagn.


Ha? Stillti einhver google translateið sitt á "Steypa" en ekki "Íslenska"?

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 09:10
af Arkidas
Var einmitt að fara að pósta þessu :p.

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 09:11
af GuðjónR
WTF! :shock:

Hvað er í gangi?

Stundum finnst mér eins og þetta sé bara á næsta leiti.

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 09:17
af DabbiGj
Frekar léleg vinnubrögð hjá blaðamanninum(gæjanum sem situr og þýðir fréttir erlendis frá) að skrifa Achilles frekar en að nota íslenkuna Akkiles þarsem það er verið að vitna í grískar fornsögur.

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 09:20
af Daz
DabbiGj skrifaði:Frekar léleg vinnubrögð hjá blaðamanninum(gæjanum sem situr og þýðir fréttir erlendis frá) að skrifa Achilles frekar en að nota íslenkuna Akkiles þarsem það er verið að vitna í grískar fornsögur.

Eh, gæjinn sem þýddi þetta notaði bara google translate, sem einmitt þýðir "Achilles" sem "Achilles" :) Þessi texti var gjörsamlega ekki lesinn yfir.

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 10:30
af GuðjónR
Metnaðurinn er enginn.

Fengið að láni hjá Flick My Life:

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 10:33
af littli-Jake
GuðjónR skrifaði:WTF! :shock:

Hvað er í gangi?

Stundum finnst mér eins og þetta sé bara á næsta leiti.


Ohhh, .essi mind er vond. Mjög mjög vond

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 11:18
af dori
Fréttamennska á Íslandi er því miður lélegur brandari.

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 11:19
af Daz
Búið að eyða fréttinni út :(

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 11:40
af Fumbler

Re: Verðlaun fyrir samhengisfrjálsustu frétt dagsins...

Sent: Mið 29. Feb 2012 11:48
af Daz
S.s. appið gerir nákvæmlega það sama og öll önnur "battery saver" app gera, sem og allir ráðleggja manni að gera ef maður vill spara batterí? Fréttin var s.s. bæði bull og ekki frétt heldur því ekkert nýtt hafði gerst.