Síða 1 af 1

Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Mið 22. Feb 2012 22:55
af Glazier
Mig vantar FM sendi..
Þar sem það er erfitt að fá að prófa tækin áður en maður kaupir þetta vantar mig ráð hjá ykkur.
Hef átt nokkra fm senda og allir verið algjört rusl og ekki virkað almennilega.

Set verð limitið á ca. 8.000 kr. max.

Kröfurnar sem ég geri er að það sé ipod/iphone tengi á tækinu og aux tengi fyrir venjulegann mp3 spilara.
(Og auðvitað að gæðin séu sem best úr þessu).

Eftir smá skoðun finnst mér þetta álitlegur kostur: http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=4336
En þori bara ekki að kaupa þetta og komast síðan að því að þetta er ekkert sérstaklega góður sendir.

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Mið 22. Feb 2012 23:05
af beatmaster
Elko skrifaði:ELKO öryggi


Okkur í ELKO er mikið í mun að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með þá upplifun sem þeir eiga þegar þeir versla hjá okkur. Eitt af því sem undirstrikar metnað okkar í þessa veru eru eftirfarandi ánægjutryggingar sem við bjóðum upp á.

30 daga skilaréttur

Þú getur skilað vöru innan 30 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda* að fullu


GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR (nema undanskilda vöruflokka)
• Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði skilyrði
• * Ef valið er að fá vöru endugreidda er skilyrði að kaupnóta sé fyrir hendi eða að kaup séu skráð á kennitölu, eingöngu er gefin inneign gegn gjafamiða.
• Ekki er skilyrði að varan sé ónotuð
• Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi
• Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum (undanskilið eru b-vörur og stór heimilistæki s.s. kæliskápar, þvottavélar, þurrkarar, frystikistur o.s.frv.)
• Algjört skilyrði er að allir aukahlutir séu með vörunni
• Rekstrarvörur sem fylgja vörunni þarf að endurnýja við vöruskil s.s. blekhylki, einnota rafhlöður, pappír o.s.frv.
• ELKO áskilur sér rétt til að prófa vöruna ef þörf krefur innan eðlilegra tímamarka


AÐEINS ER TEKIÐ VIÐ VÖRUM Í ÓOPNUÐUM EÐA INNSIGLUÐUM UMBÚÐUM. GILDIR FYRIR EFTIRFARANDI VÖRUFLOKKA:
• Farsímar
• DVD myndir, tónlist, tölvuleikir og hugbúnaður
• Rekstrarvörur s.s. blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur o.s.frv.
• Vörur sem eru keyptar forsniðnar s.s. ákveðin lengd af snúrum
• Aðrar vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á 30 dögum

*Gildir ekki um vörur keypar í ELKO fríhafnarverslun.

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Mið 22. Feb 2012 23:10
af Glazier
En ef þetta er (eins og mig grunar) nánast vacum pakkað og umbúðirnar eru þannig að maður virkilega þarf að eyðileggja þær til að ná þessu úr, get ég samt skilað þessu og fengið fulla endurgreiðslu?

Þegar ég segi nánast vacum pakkað þá meina ég svona umbúðir..
http://www.elko.is/elko/upload/images/p ... kkning.jpg

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Mið 22. Feb 2012 23:25
af beatmaster
Stendur bara æskilegt, ég myndi opna bara aðra hliðina með skærum eða skera með hníf og geyma svo umbúðirnar ef að ég ætlaði kanski að skila þessu

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Mið 22. Feb 2012 23:28
af Glazier
Takk fyrir hjálpina.. kanski maður láti reyna á þetta eftir mánaðarmót :)

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 00:13
af macdude

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 00:14
af Glazier
macdude skrifaði:http://isiminn.is/product.php?id_product=295

Lúkkar of cheap til að geta verið góð græja.. ooog þetta hleður ekki símann minn :)
Svo er ekki aux tengi á þessu heldur virkar þetta aðeins við iphone/ipod.

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 01:59
af Krisseh
Glazier skrifaði:Eftir smá skoðun finnst mér þetta álitlegur kostur: http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=4336
En þori bara ekki að kaupa þetta og komast síðan að því að þetta er ekkert sérstaklega góður sendir.


Keypti minn í Janúar fyrir Ipod Nano 6g sem ég keypti á svipuðum tíma líka, hef ekki náð að nota Logic3 fm sendirinn mikið vegna hann passar illa í Ítalska kveikjara-tengið
Svo að mig minnir að hann virkaði mjög vel og ekkert vesen, góð lengd á snúrum á þessu svo hægt sé að leggja meðfram armpúðann. Get ekki sagt neit slæmt um hann enda valdi ég hann því þetta var líklega sá almennilegasti sem var í boði þegar ég var að leita.

Sentu mér pm ef þú vilt næla þér í mitt, hef líklega notað hann þrisvar og mun ekki nota hann á þessum bíl aftur.

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 02:39
af chaplin

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 10:21
af Klemmi
chaplin skrifaði:Vinur minn er með svona - http://www.halfords.ie/webapp/wcs/store ... 12468#tab2 - mjög sáttur við hann, ódýr og virkar.


Ég átti svona Belkin, bæði lélegt samband frá honum og lítill sem enginn bassi :/

Mæli ekki með honum.

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 11:00
af einarhr
Flestir FM sendar sem seldir eru i Evrópu og USA eru ekkert sérstakir, hef átt nokkra td iTrip, Bleking ofl. Ástæðan fyrir því að þessir sendar eru frekar slakir eru Fjarskiptalög, ss það má ekki selja FM senda með miklum styrk. Félagi minn keypti FM sendi í Tælandi sem er svo öflugur að hann blokkar allar stöðvar í ca 50 til 100 m radíus. Við fórum á 3 bílum frá Svíþjóð til Þýskalands og var hann fremstur með sinn sendi og náðum við engum örðum stöðvum á útvarpinu fyrir aftan hann :sleezyjoe

Ss. hef prófað marga en aldrei verið sáttur.

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 11:15
af pattzi
http://www.ebay.com/itm/FM-Transmitter- ... 2350wt_752

þetta er fínt :)


http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=4336

reyndar þessi t.d ég keypti svona á 900 kall komið til landsins og virkar mjög vel og frá könig :)

reyndar ekki inna ebay lengur en alveg eins no name sendar þar .

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 14:48
af chaplin
Klemmi skrifaði:
chaplin skrifaði:Vinur minn er með svona - http://www.halfords.ie/webapp/wcs/store ... 12468#tab2 - mjög sáttur við hann, ódýr og virkar.


Ég átti svona Belkin, bæði lélegt samband frá honum og lítill sem enginn bassi :/

Mæli ekki með honum.

Þú þarft þá líklegast að hafa ágætis græjur - stock hátalararnir í Corsu kvörtuðu ekki. ;)

Re: Hvar finn ég góðann FM sendi?

Sent: Fim 23. Feb 2012 14:55
af Magni81