Síða 1 af 1

Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 12:12
af mckristur
Hæ,
Ég vildi bara athuga hvort þetta væri kannski vettvangur fyrir það vandamál sem ég varð fyrir í gær, fimmtudaginn 16.feb., en þannig er mál með vexti að 10tommu brúnni toshibatölvu var stolið af mér í gær. Hún var í HP-bakpoka og skólabækur ásamt Kindle lestölvu var einnig með í þessum pakka. Ég get ekki ímyndað mér að það sé hægt að fá mikinn pening fyrir þessa tölvu, þar sem hún er ódýrasta tölvan frá Toshiba. Ég vil bara fá þetta aftur vegna þess að skólaverkefnin mín öll eru þarna og annað skiptir mig engu máli. Ég biðla þvi til ykkar hérna, ef þið rekist á þetta að hafa samband. Fundarlaun yrðu vegleg, töluvert veglegri en endursöluverðmæti alls þess sem var í bakpokanum.
takk...

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 12:34
af Marmarinn
á hvaða stað/svæði gerðist þetta?

þú ert örugglega búinn að kæra þjófnaðinn er það ekki?

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 12:47
af Black
ég hef augun opinn fyrir þessu, mæli með að líta á bland.is oft sem svona hlutir detta þar inn, síðan mæli ég með að sækja dropbox undir skólagögninn.. þá er lítil hætta á að þau týnist. :hugenose

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 13:16
af Gúrú
Svona þræðir eru gott tækifæri til að minna alla námsmenn á dropbox og sambærilegar lausnir.

Gangi þér samt vel. :|

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 14:43
af mckristur
takk fyrir það, ég mun líklega ekki klikka á þessu aftur... en já, þetta gerðist á horni Klapparstígs og Lindargötu í kringum 7leytið í gær... kæmi mér á óvart ef viðkomandi gæti fengið meira en 3þús.kr. fyrir þessa tölvu

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 16:44
af gutti
Var dótinu stolið úr bíl bara forvitni ? :-k

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 19:49
af flottur
komdu með speccs fyrir toshiba tölvunna ef maður skyldi rekast á hana á bland.is

Re: Þjófnaður

Sent: Fös 17. Feb 2012 23:06
af FuriousJoe
Ertu með serial nr ? (farðu þangað þar sem hún var keypt, þeir gætu átt þessar upplýsingar í kerfinu)

Re: Þjófnaður

Sent: Lau 18. Feb 2012 18:41
af mckristur
Er ekki með infóið um tölvuna, nema að hún er 10tommu, brún Toshiba NB505
Og já, töskunni var stolið úr bíl, Toureq, sem gleymdist að læsa :dissed á horni klapparstígs og lindargötu

Re: Þjófnaður

Sent: Lau 18. Feb 2012 18:48
af AciD_RaiN
mckristur skrifaði:Er ekki með infóið um tölvuna, nema að hún er 10tommu, brún Toshiba NB505
Og já, töskunni var stolið úr bíl, Toureq, sem gleymdist að læsa :dissed á horni klapparstígs og lindargötu

Það er alveg ótrúlegt hvað er mikið af myndavélum á þessu svæði en ótrúlegt hvað fáar virka. Hefurðu prófað að athuga hvort lögreglan sé að vakta þetta svæði. Þetta hafa væntanlega verið fíkniefnaneytendur sem reyna að skipta þessu fyrir dóp og þar sem ég þekki mikið til í þeim heimi skal ég senda þau skilaboð áfram að það muni koma sér illa að koma vélinni EKKI í hendur einhvers sem getur svo komið henni til þín. Lofa engu en þetta hefur virkað oftar en einu sinni. Vonum bara að þetta fari allt vel :)

Re: Þjófnaður

Sent: Sun 19. Feb 2012 05:26
af gutti
Mig minnir það var marg oft búið að benta fólkið á ekki skilja hlutir í bíll þótt sé læst eða ekki sjálfur hefur brotið inn í bíll hjá mér þegar ég var á bíll :klessa

Re: Þjófnaður

Sent: Sun 19. Feb 2012 10:32
af lukkuláki
gutti skrifaði:Mig minnir það var marg oft búið að benta fólkið á ekki skilja hlutir í bíll þótt sé læst eða ekki sjálfur hefur brotið inn í bíll hjá mér þegar ég var á bíll :klessa


AW ! MY EYES !!! :popeyed

Hefurðu heyrt um púka ? (Ritvillupúkinn)
Þú þarft sárlega á honum að halda
http://www.frisk.is/puki-ritvilluvorn/

Re: Þjófnaður

Sent: Sun 19. Feb 2012 13:06
af capteinninn
Eins og einhver sagði hérna áðan þá myndi ég fylgjast með bland.is en líka til dæmis live2cruize.com og markaðnum hérna á vaktinni.

Mér finnst það mjög hæpið að lögreglan geri eitthvað í þessu máli, eitt sinn réðst einhver fullur gaur á bíl bróður míns og tveir dyraverðir á skemmtistað, bróðir minn og myndavél frá borginni sem sáu þetta allt gerast. Dyraverðirnir náðu honum og héldu honum þangað til að Lögreglan kom en hún gerði ekkert í þessu máli, veit ekki hvort það sé mannekla eða lögreglan nennir ekki að gera vinnuna sína.