Síða 1 af 1

Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 11:27
af Ulli
Nú á að fara kénna tölvuleikjum um..
http://mbl.is/frettir/erlent/2012/02/09 ... kjasjukur/

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 11:37
af coldcut
Það er ekki verið að kenna tölvuleikjum um endilega, bara ein af ástæðunum fyrir veruleikafirringu hans. En mikil tölvuleikjaspilun gerir engum gott!

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 11:41
af dori
Svo er spurning hvort hann hafi byrjað að haga sér undarlega af því að hann varð leikjasjúkur eða hvort hann hafi orðið leikjasjúkur af sömu ástæðum og hann fór að haga sér undarlega. Ég hallast að því seinna.

Hann hefur örugglega orðið fyrir einhverju áfalli (telst gjaldþrota fyrirtæki ekki stundum sem slíkt) og notaði þetta m.a. sem útrás.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 12:33
af einarhr
Mín skoðun er sú að það eigi ekki að ræða þennan ræfil hérna á vaktinni. Það sem hann var úti eftir er athygli og þegar það er skrifað um hann hægri go vinstri í blöðum og spjallborðum þá fær hann á athygli sem hann var úti eftir.

Þetta er bara mín skoðun

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 13:11
af daniellos333
Mynd

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 13:12
af daniellos333
einarhr skrifaði:Mín skoðun er sú að það eigi ekki að ræða þennan ræfil hérna á vaktinni. Það sem hann var úti eftir er athygli og þegar það er skrifað um hann hægri go vinstri í blöðum og spjallborðum þá fær hann á athygli sem hann var úti eftir.

Þetta er bara mín skoðun


Hann á skilið athygli.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 13:16
af ORION
daniellos333 skrifaði:
einarhr skrifaði:Mín skoðun er sú að það eigi ekki að ræða þennan ræfil hérna á vaktinni. Það sem hann var úti eftir er athygli og þegar það er skrifað um hann hægri go vinstri í blöðum og spjallborðum þá fær hann á athygli sem hann var úti eftir.

Þetta er bara mín skoðun


Hann á skilið athygli.


Hann á skilið blásýru í æð :pjuke

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 13:49
af kallikukur
Hann á skilið að vera hent niður í kjallara þar sem hann fengi eitthvað rusl að éta einu sinni á dag og fengi enga athygli né neinn til að tala við.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 14:03
af beggi90
kallikukur skrifaði:Hann á skilið að vera hent niður í kjallara þar sem hann fengi eitthvað rusl að éta einu sinni á dag og fengi enga athygli né neinn til að tala við.


Úúú er keppni hver getur ýmindað sér ljótustu refsinguna fyrir Breivik, er ég kominn á dv.is/bland.

Annars er ágætt að velta fyrir sér hvort of mikil tölvuleikjanotkun hafi slæm áhrif á fólk sem er eitthvað veikt á geði.
Trúi ekki að leikirnir séu orsök en þeir hafi pottþétt ekki bætt andlegt ástand mannsins.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 16:03
af FuriousJoe
beggi90 skrifaði:
kallikukur skrifaði:Hann á skilið að vera hent niður í kjallara þar sem hann fengi eitthvað rusl að éta einu sinni á dag og fengi enga athygli né neinn til að tala við.


Úúú er keppni hver getur ýmindað sér ljótustu refsinguna fyrir Breivik, er ég kominn á dv.is/bland.

Annars er ágætt að velta fyrir sér hvort of mikil tölvuleikjanotkun hafi slæm áhrif á fólk sem er eitthvað veikt á geði.
Trúi ekki að leikirnir séu orsök en þeir hafi pottþétt ekki bætt andlegt ástand mannsins.



http://www.dv.is/bland er ekki til !

:biturk

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 16:17
af dori
Maini skrifaði:http://www.dv.is/bland er ekki til !

:biturk

Mynd
Haldið bara áfram umræðunni þar sem hún var komin.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 16:23
af worghal
hann var með öfgafullar pólitískar skoðanir sem höfðu áhrif á dómgreind á ákvarðanir hans.
ég segi að þetta er pólitík að kenna og því ætti að banna slíkt!

hann var með öfgafullar trúarlegar skoðanir sem höfðu áhrif á dómgreind á ákvarðanir hans.
ég segi að þetta er trú að kenna og því ætti að banna slíkt!

problem? :troll

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 16:42
af Plushy
Frekar að hann hafi verið sjúkur fyrir, og að tölvuleikir hafi ekkert gert honum gott á þann veg.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 17:42
af Bjosep
Hættið að tala illa um Breivik! Hann er dugmikill!

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 18:01
af fremen
Alltaf er reynt að bendla serial killers við einhverja tölvuleikjasýki. Það er til waste-of-oxygen lýður út um allan heim sem gerir ekkert nema spila tölvuleiki alla ævi, þú sérð það fólk ekki vakna upp einn daginn og ákveða að stúta öllum.

Af hverju er ekki hægt að sætta sig við bara að maðurinn sé geðveikur? Tölvuleikjasýki hefur ekkert með það að gera.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 18:55
af daniellos333
fremen skrifaði:Alltaf er reynt að bendla serial killers við einhverja tölvuleikjasýki. Það er til waste-of-oxygen lýður út um allan heim sem gerir ekkert nema spila tölvuleiki alla ævi, þú sérð það fólk ekki vakna upp einn daginn og ákveða að stúta öllum.

Af hverju er ekki hægt að sætta sig við bara að maðurinn sé geðveikur? Tölvuleikjasýki hefur ekkert með það að gera.


Hann var samt sem áður nýlega útskurðaður sem andlega "heilbrigður", en þessar "öfgafullu skoðanir" hans sé ástæðan fyrir morð á 70 börnum, ER ÞAÐ EKKI GEÐVEIKI?, OK.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 19:06
af appel
Hann drakk vatn...

bönnum vatn!

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 20:01
af Daz
appel skrifaði:Hann drakk vatn...

bönnum vatn!

Uuuu JÁ! http://www.dhmo.org/ !!!

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 20:40
af cure
appel skrifaði:Hann drakk vatn...

bönnum vatn!


Nákvæmlega, svo var annað sem hann gerði, hann svaf á nóttunni eins og allir fjöldamorðingjar hafa gert!!! svefn ætti náturlega að vera bannaður með lögum í öllum ríkjum.

Re: Breivik Leikja sjúkur -_-

Sent: Fim 09. Feb 2012 20:51
af rapport
Getum við ekki sæst á að allt sé gott í hófi.

Hóf sé einstaklingsbundið t.d. geti sumir spilað tölvuleiki endalaust án þess að það skemmi þá en aðrir myndi einhverskonar fíkn og enn aðrir verði hreinlega geðveikir?

Ég lenti sjálfur í því að láta MTG og svo Fallout2 ganga fyrir menntaskólanum á sínum tíma... er það ekki svolítið klikkað?

Það væri lítið mál fyrir mig að eyða 500+ klukkutímum í uppáhalds leikina mína á fjórum mánuðum ef ég gæfi alla skynsemi lönd og leið.

Ef ég gerði það, væri ég þá geðveikur?

Gæti t.d. fjölskyldan í samráði við lækni látið svipta mig sjálfræði og flytja mig á stofnun?