Síða 1 af 1

Playstation 3 120gb slim pælingar..

Sent: Mið 08. Feb 2012 13:48
af Glazier
Litli bróðir minn er að fá PS3 120gb slim í afmælisgjöf bráðlega og ég fór aðeins að pæla..

Get ég ef borðtölvan mín og ps3 tölvan hans er tengt með snúru í router fært bíómyndir/ljósmyndir/tónlist yfir á ps3 tölvuna og horft á?
En ef það eru full hd myndir (stórir .mkv fælar)?

Edit: Ooog já, á ég ekki að vera orðinn VIP? :wtf

Re: Playstation 3 120gb slim pælingar..

Sent: Mið 08. Feb 2012 13:57
af BBergs
Nærð í þetta: http://www.ps3mediaserver.org/ og setur upp í PC tölvunni.

Þá kemur hún upp sem Media Server í PS3 tölvunni og þá geturu streamað myndum úr henni (svo lengi sem að það sé kveikt á henni).

Re: Playstation 3 120gb slim pælingar..

Sent: Mið 08. Feb 2012 14:13
af Glazier
BBergs skrifaði:Nærð í þetta: http://www.ps3mediaserver.org/ og setur upp í PC tölvunni.

Þá kemur hún upp sem Media Server í PS3 tölvunni og þá geturu streamað myndum úr henni (svo lengi sem að það sé kveikt á henni).

Hmm, það var ekki beint pælingin.. meira svona hvort ég geti setið í borðtölvunni og beinlínis fært .mkv .avi og .jpg fæla yfir á harða diskinn í ps3 tölvunni.
Því ég veit að stream-ið er ekki nógu gott til þess að geta spilað full HD bíómyndir í gegnum það :)

Er með sjónvarpsflakkara sem er tengdur með snúru beint í router og ég set allar myndir inná hann með þessum hætti (1tb wd live) en ef þetta er hægt í ps3 tölvunni (og þá aðalega með stóra .mkv fæla) þá get ég alveg eins selt sjónvarpsflakkarann og látið ps3 tölvuna koma í staðinn.

Re: Playstation 3 120gb slim pælingar..

Sent: Mið 08. Feb 2012 14:22
af BBergs
Ah - misskildi.

Ég streama nú samt 720p myndum (nú síðast The Art of Flight) úr fartölvunni og það er að koma flawless út!

Ég hef verið að nota USB lykil til að taka hluti útaf og setja inná HDD í PS3 ... ( Þ.á.m. Fifa 12 save-file )

Re: Playstation 3 120gb slim pælingar..

Sent: Þri 14. Feb 2012 04:28
af worghal
eina hd formatið sem ps3 skilur án þess að streama er mp4 og ogg minnir mig, ps3 skilur líka high res avi en ekki mkv.
best væri að nota bara ps3 media server. óþarfa tíma eyðsla að færa hluti á milli.

Re: Playstation 3 120gb slim pælingar..

Sent: Þri 14. Feb 2012 09:11
af hsm
Er það ekki líka rétt hjá mér að PS3 notar FAT32 svo að það er ekki hægt að setja stærri skrár en 4GB ?