Síða 1 af 4

Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 21:54
af Robertas Denton
Það barst mér til eyrna í síðustu viku að sá hræðilegi atburður hefði átt sér stað að norskum lækni hefði verið synjað um atvinnu vegna skoðana hans á svokallaðri þróunarkenningu Darwins.

Fyrst vildi ég ekki trúa þessu, en svo þegar á vikuna leið þá varð það ljóst að þessi óhugnuður hafði átt sér stað. Ég sem er mikill baráttumaður fyrir réttlæti og rökrænni hugsun varð hálf bumbult við að lesa þessi tíðindi og ég gat engan veginn skilið það hvers vegna svona óréttlæti og mannvonska fyrirfinnst í jafn háþróuðu landi eins og Noregi.

Stuðningsmenn þróunarkenningarinnar hafa eflaust hoppað sína af kæti við þessar fréttir frá frændum okkar Norðmönnum en þeim sömu var skellt aftur jafnóðum niður á jörðina seinna þetta kvöld þegar mikils metnir menn í okkar samfélagi komu lækninum norska til varnar á samskiptasíðunni Facebook.

Gunnar í Krossinum reið á vaðið rétt að ganga 11 um kvöldið og sagði orðrétt: "Þegar menn hafa ekki rök beita þeir ofbeldi. Þetta er farið að gerast óþægilega nærri okkur."

Og 5 mínútum síðar þá var það enginn annar en Guðbjartur úr tölvuversluninni Kísildal sem tók upp hanskann fyrir lækninnn í norðri og sagði orðrétt: "Það er bannað að benda á það að keisarinn sé ekki í neinum fötum :/"

Andstæðingar sköpunarkenningarinnar hafa eflaust sopið kveljur þegar þeim varð ljóst hvaða hákarlar höfðu ljáð umræðunni rödd sína og sýnt stuðning við lækninn og jafnframt lýst frati á þróunarkenninguna án þess þó að falla í gryfju rökleysu og hroka.

Í næstu athugasemdum á eftir þá fer Guðbjartur yfir víðan völl og hrekur á brott ýmsar staðreyndir Darwins hvað varðar þróunarkenninguna og það má segja að hann Guðbjartur hafi einfaldlega pakkað þeirri kenningu saman fyrir fullt og allt og hent henni út í hafsauga á aðeins c.a. sólarhring. Geri aðrir betur!

Það er þó lækninum huggun harmi gegn að þrátt fyrir það hafa lent í miklu óréttlæti þá er til nóg af víðsýnu fólki í heiminum eins og Gunnar og Guðbjartur sem láta ekki klappstýrur vísandanna skyggja á hina heilögu ritningu baráttulaust.


Hér svo linkur á umræðuna: http://www.facebook.com/profile.php?id= ... 87&sk=wall - Darwin :slapp Guðbjartur

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 22:02
af AciD_RaiN
Jesús kristur segi ég nú bara... Fólk má nú alveg hafa sínar skoðanir á þessum málefnum en maður þarf ekki að vera að troða því á aðra. En svo eru það náttúrulega gáfumenn sem sjá sannleikann... Er ekki Stephen Hawking með hæstu greindavísitölu í heiminum í dag?

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 22:17
af GuðjónR
Usss frusss....þetta truflar mig ekkert. Hvort sem menn trúa á guð/allah/búdda/einstein eða darwin...
Og ef menn nenna að eyða tíma og orku að tala um þetta þá er það alveg þeirra mál.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 22:19
af beatmaster
GuðjónR skrifaði:Usss frusss....þetta truflar mig ekkert. Hvort sem menn trúa á guð/allah/búdda/einstein eða darwin...
Og ef menn nenna að eyða tíma og orku að tala um þetta þá er það alveg þeirra mál.



=D>

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 22:19
af worghal
þetta gefur andstæðingum þróunarkenningunnar engann byr til að sigrast á henni.
og sömu leiðis er þróunarkenningin ekki í neinum vanda.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 22:22
af Gúrú
AciD_RaiN skrifaði:Er ekki Stephen Hawking með hæstu greindavísitölu í heiminum í dag?


Nei, ekki nálægt því. Hann er með háa greindarvísitölu samt sem áður.

Greindarvísitala er ekki neitt einstaklega tengd stjarneðlisfræði og hann er ekki einu sinni í framfylkingu þess sviðs.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 22:23
af Nariur
ef læknir trúir ekki þróunarkenningunni er hann vanhæfur og á ekki að fá að vera læknir.

Þetta er svolítið eins og að rafvirki trúi ekki að rafeindir séu til eða prestur trúi ekki á guð

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:12
af fallen
GuðjónR skrifaði:Usss frusss....þetta truflar mig ekkert. Hvort sem menn trúa á guð/allah/búdda/einstein eða darwin...


Það er náttúrulega ekki rétt að líkja við trúnni á Guð/Thor/Vishnu/Póseidon við því að trúa vísindalegum kenningum sem menn á borð við Darwin og Einstein hafa sett fram. Eitt er hægt að sýna fram á, hitt ekki.

Einnig finnst OP skemmtilegt að leika sér með orð sýnist mér, að setja sköpunarkenningu og þróunarkenningu í sama flokk bara af því honum þóknaðist að setja "kenning" fyrir aftan sköpunina er annaðhvort fáfræði eða stórkostlegur skortur á vitsmunalegum heiðarleika.

Miðað við tilvísanirnar í Kísildal og Guðbjart sem má finna útum allt í innleggjum OP þá verður maður að íhuga hvort tilgangurinn með þessum notanda sé að vekja athygli á þeirri ágætu búð með vægast sagt fáránlegum skoðunum. All publicity is good publicity? Duno.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:14
af coldcut
HAHAHAHA Hvaða rugl er þetta?

Sýnir best hvað þróunarkenningin er viðurkennd þegar hámenntað fólk fær ekki vinnu útaf því að það samþykkir hana ekki.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:17
af Daz
Á stundum sem þessum kemur mér bara eitt í hug

Mynd

Fáum við stundum eitthvað svona affall af málefni.com? Eða er búið að loka á comment á einhverju moggabloggi? Hvernig skrifar maður svona mikið um facebookumræður? Afhverju er þetta ekki bara á facebook!!!???

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:21
af chaplin
coldcut skrifaði:HAHAHAHA Hvaða rugl er þetta?

Sýnir best hvað þróunarkenningin er viðurkennd þegar hámenntað fólk fær ekki vinnu útaf því að það samþykkir hana ekki.

Nákvæmlega, mér finnst ekkert skrítið að hann hafi ekki fengið þessa vinnu.

Þetta er nákvæmlega eins og Nariur sagði.

Nariur skrifaði:Þetta er svolítið eins og að rafvirki trúi ekki að rafeindir séu til eða prestur trúi ekki á guð


Þróunarkenningin er staðreynd, þrátt fyrir að hún sé ennþá kölluð kenning. Hvort þetta hafi þó allt gerst eins og vísindamenn telja veit maður ekki, en þróunarkenning sjálf er legit.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:24
af SolidFeather
http://is.wikipedia.org/wiki/Kenning

Menn eru ekkert að henda orðinu kenning til og frá eins og þeim hentar.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:24
af Daz
chaplin skrifaði:Þróunarkenningin er staðreynd, þrátt fyrir að hún sé ennþá kölluð kenning. Hvort þetta hafi þó allt gerst eins og vísindamenn telja veit maður ekki, en þróunarkenning sjálf er legit.


Kenning verður aldrei staðreynd, það þarf alltaf bara eitt dæmi sem afsannar hana. Hún getur aftur á móti þótt góð, sérstaklega ef hún getur spáð fyrir um óorðinn/óþekktann atburð/hlut sem síðar kemur heim og saman við kenninguna. Það sannar hana aftur á móti ekki.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:26
af ManiO
Vinsamlegast hættið að gefa tröllinu að borða. Linkar á facebook umræðu...

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:26
af AntiTrust
Nei, inn á þessa facebook síðu fer ég ekki! :P

Annars segi ég það sama og Guðjón - Maður hefur bara takmarkaða orku til þess að "rök"ræða um þessi mál.

Sitt sýnist hverjum, svo lengi sem það hefur ekki áhrif á mig og mína. Það er verið að aðskilja trú og trúarbrögð frá samfélaginu meira og meira á hverju ári - Þetta er barátta sem var töpuð frá fyrsta degi, hún tekur bara sorglega langan tíma.

Fólk hefur að sjálfsögðu rétt á því að lifa lífinu í e-rri andlegri vímu ef það kýs svo, svo lengi sem það er áróðurslaust. Það er bara ekki svo gott í mörgum tilfellum.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:31
af appel
Ég er skráður í þjóðkirkjuna, bara svona einsog hinn venjulegi "kristni" íslendingur.

Hafði ekki farið í kirkju í þónokkuð langan tíma, en fór fyrir 2 vikum í skírn. Einhver gamall kall að skíra, greinilega "old skool", og vá hvað maður fékk gusu af raunveruleikafirringu frá þessum kalli, ég hló inní mér að þessu rugli. Maður byrjaði að velta fyrir sér hversu absúrd þessi trúarbrögð eru, og hvað maður í raun á bara ekkert heima í þessari þjóðkirkju. Maður fer að segja sig úr þessu rugli, enda er maður bara ekkert sammála þessu. Eina sem heldur manni þarna inni eru þessar hefðir.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:34
af AntiTrust
appel skrifaði:Ég er skráður í þjóðkirkjuna, bara svona einsog hinn venjulegi "kristni" íslendingur.

Hafði ekki farið í kirkju í þónokkuð langan tíma, en fór fyrir 2 vikum í skírn. Einhver gamall kall að skíra, greinilega "old skool", og vá hvað maður fékk gusu af raunveruleikafirringu frá þessum kalli, ég hló inní mér að þessu rugli. Maður byrjaði að velta fyrir sér hversu absúrd þessi trúarbrögð eru, og hvað maður í raun á bara ekkert heima í þessari þjóðkirkju. Maður fer að segja sig úr þessu rugli, enda er maður bara ekkert sammála þessu.


Akkúrat ástæðan fyrir því að tölur um raunverulegt trúleysi liggja ekki fyrir, það er svo geðveikt mikið af ykkur "skápatrúleysingjunum" sem hafa hreinlega bara ekki nennt að hafa fyrir því að skrá sig úr þjóðkirkjunni.

Verður spennandi að sjá þessar tölur breytast með næstu kynslóð, þegar margir foreldrar eru ekki skráðir í kirkju og börn ekki sjálfkrafa skráð í trúfélög við fæðingu.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:38
af Haxdal
Veit ekki hvort ég ætti að gefa tröllinu að borða but here it goes,

Ég gafst upp á að lesa þetta röfl í þessum Guðbjarti. Hann er að endurtaka sama Creationist ruglið og ég hef heyrt of oft til að halda tölu á því og það er ekki hægt að rífast við svona menn, sama hvað er sagt þá mun ekkert hafa áhrif á skoðun hans um þróunarkenninguna.

sem dæmi ..
Með erfðafræðinni kom í ljós að það er gríðarlegt flækjustig á upplýsingunum sem liggja bakvið uppbyggingu lífvera. Flækjustig langt umfram það sem Darwin hafði séð fyrir sér, breytingarnar sem hann taldi að myndu gerast náttúrulega urðu að víkja fyrir tilviljanakenndum stökkbreytingum og er tilurð allra líffæra og líkamsforma nánast fullkomnlega óútskýrð enn þann daginn í dag.

:hillarius

Þetta er bara vitleysa, margir virtir vísindamenn hafa margoft komið með rök á móti þessu rugli Creationista en hérna er mín útgáfa eftir að hafa lesið nokkrar bækur um þróunarkenninguna.

Já, Darwin vissi ekkert um gen eða DNA en tilvist þeirra er engan vegin slæmt fyrir þróunarkenninginuna. Ef eitthvað þá hjálpar það henni að vita hvernig hvernig einkenni foreldra færast til afkvæma og hvað eru "náttúrulegar breytingar" annað en tilviljanakenndar stökkbreytingar, mistök við afritun á DNA í kynfrumunum. Sumar stökkbreytingar eru til góðs og aðrar til hins verra. Slæmar stökkbreytingar minnka líkurnar á að viðeigandi lífform muni fjölga sér og þar með dreifa stökkbreytingunni, meðan jákvæðar stökkbreytingar munu auka líkurnar á að lífformið fjölgi sér og þar með dreifa stökkbreytingunni. Sama er hægt að segja um tilurð líffæra, augun urðu ekki til við eina stökkbreytingu. Þau hafa líklegast byrjað sem ljósnæmar frumur á yfirborði húðarinnar og með tilviljanakenndum stökkum yfir milljónir kynslóða þróast hægt og bítandi yfir í það sem við þekkjum í dag sem augu. Slæmar stökkbreytingar hafa ekki verið sjálfbærar, t.d. hefur það ekkert hjálpað lífverunni að vera með ljósnæmar frumur á maganum. Sama hefur gerst með öll hin líffærin, þau hafa öll þróast á sama hátt.. allt sem gaf lífverunni forskot á aðrar lífverur sömu tegundar gaf henni auknar líkur á að lifa af og fjölga sér, sem svo aftur leiddi til þess að það væri auknar líkur á að afkvæmin væru með sömu stökkbreyttni.

Ef einhver vill kynnast þróunarkenningu Darwins þá er tilvalið að lesa bókina um Uppruna Tegundanna sem hann skrifaði, en hún er í public domain og m.a. hægt að nálgast hana hér http://www.gutenberg.org/ebooks/2009
Svo ef einhver vill glugga í aðrar bækur sem byggja á þróunarkenningunni þá get ég mælt með Selfish Gene og The Blind Watchmaker eftir Richard Dawkins, þær eru báðar fínar.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fim 02. Feb 2012 23:40
af Frantic
Hlustið á þetta: http://visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP9063
Þróunarkenningin er miklu meira en bara kenning.
Edit:
Mæli líka með að lesa bækur eftir Richard Dawkins.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fös 03. Feb 2012 00:11
af Joi_BASSi!
að afneita þróun er að segja að það sé bara tilviljun að afkvæmi séu lík foreldrum sínum.

afkvæmi fær helming af litningum sínum frá hvoru foreldri. því er hver einstaklingur ólíkur öllu öðru lífi á jörðinni, líka sinni eigin tegund.
ef að genasamsetning einstaklings er góð fyrir þær aðstæður sem að hann býr við þá er minni áhætta á að hann drepist og því getur hann fjölgað sér meira.
einstaklingar sem að henta ekki sínum aðstæðum einfaldlega deyja, eða láta í lægra haldi æðri einstaklinga.

það er einmitt ástæðan fyrir því að mannkynið er hætt að þróast. það sníst ekki lengur um að hinir sterku lifa af heldur lifa allir af (ég kenni ykkur um :megasmile )


+það náttúrulega hefur ekki verið talað um þróun sem kenningu áratugum saman

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fös 03. Feb 2012 00:15
af Klaufi
:popp

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fös 03. Feb 2012 00:22
af Haxdal
Joi_BASSi! skrifaði:það er einmitt ástæðan fyrir því að mannkynið er hætt að þróast. það sníst ekki lengur um að hinir sterku lifa af heldur lifa allir af (ég kenni ykkur um :megasmile )


haha já, og reyndar erum við að fara afturábak núna. Myndin Idiocracy hittir naglann á höfuðið, mæli með að fólk kíki á hana http://www.imdb.com/title/tt0387808/.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fös 03. Feb 2012 00:34
af Joi_BASSi!
Haxdal skrifaði:
Joi_BASSi! skrifaði:það er einmitt ástæðan fyrir því að mannkynið er hætt að þróast. það sníst ekki lengur um að hinir sterku lifa af heldur lifa allir af (ég kenni ykkur um :megasmile )


haha já, og reyndar erum við að fara afturábak núna. Myndin Idiocracy hittir naglann á höfuðið, mæli með að fólk kíki á hana http://www.imdb.com/title/tt0387808/.

spurning hvort að það sé ekki kominn tími á beinskeyttan sannleika.

fólk með meðfædda sjúkdóma eða sjálfáunna áverka (beint eða óbeint) ætti ekki að fá læknisaðstoð.

síðan er náttúrulega lög gengin allt of langt. fólk þarf ekki að taka ábyrgð á neinu lengur, ekki einusinni sjálfusér.
ekki skrítið að fólk verði fávitar.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fös 03. Feb 2012 00:41
af fallen
Joi_BASSi! skrifaði:fólk með meðfædda sjúkdóma eða sjálfáunna áverka (beint eða óbeint) ætti ekki að fá læknisaðstoð.


Gaddem. Þú þarft eitthvað að fara finna siðferðiskompásinn þinn aftur, ert bersýnilega búinn að glata honum.

Re: Þróunarkenning í vanda-Andstæðingar fá byr undir báða vængi

Sent: Fös 03. Feb 2012 00:45
af Joi_BASSi!
fallen skrifaði:
Joi_BASSi! skrifaði:fólk með meðfædda sjúkdóma eða sjálfáunna áverka (beint eða óbeint) ætti ekki að fá læknisaðstoð.


Gaddem. Þú þarft eitthvað að fara finna siðferðiskompásinn þinn aftur, ert bersýnilega búinn að glata honum.

já þetta var full mikið