Síða 1 af 1

Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Þri 31. Jan 2012 16:34
af hundur
Sælinú. Nú er ég með frekar undarlega spurningu fyrir ykkur. Ég var að vinna sumarvinnu í Danmörku seinasta sumar, en var og hef alltaf verið með lögheimilið mitt á Íslandi. Ég fékk launin greidd í Evrum, og mér skilst að félag vinnuveitandans sé skráð á Guernsey, sem mér skilst að sé svokölluð skattaparadís - og ég fékk launin mín greidd þaðan líka. Ég borgaði ekki skatt í Danmörku vegna þessara launa, en ætti ég að borga skatt hér á landi? Ég var á verktakasamningi.

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Þri 31. Jan 2012 16:42
af SolidFeather
Scumbag Steve myndi ekki gera það.

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Þri 31. Jan 2012 16:46
af einarhr
Íslenskir iðnaðarmenn/verktakar sem selja út sína vinnu í td. Svíþjóð borga enga skatta í Svíþjóð, þeir gera það á Íslandi. Það er samningur á milli Norðurlandana að Verktakar greiða skatt í því landi sem fyrirtækið er skráð í. Annað á um almenna launamenn.

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Fim 02. Feb 2012 12:32
af tlord
talaðu við endurskoðanda

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Fim 02. Feb 2012 12:57
af AciD_RaiN
Ef þú getur komist hjá því að borga skatt þá myndu margir grípa gæsina og nýta sér það...

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Fim 02. Feb 2012 13:08
af tlord
getur verið risky ef peningurinn hefur verið millifærður inn á ísl bankareikn frá erlendu fyrirtæki

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Fim 02. Feb 2012 14:14
af capteinninn
Talaðu við endurskoðanda. Gætir alveg lent í einhverju helluðu rugli útaf svona skattamálum.

Betra að borga endurskoðanda aðeins ef þú þarft þess og vera alveg 100% á þessu frekar en að taka sénsinn

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Fim 02. Feb 2012 14:30
af tdog
Ekki tala við Skattinn allavega, þeir munu gera allt sem þeir geta til að svíkja þetta út úr þér. Endurskoðandinn er skársti kosturinn.

Re: Skattaparadísin Guernsey?

Sent: Fim 02. Feb 2012 14:30
af Gúrú
"Hann á að borga skatt í Danmörku og ef að hann er lægri en sá skattur sem að hann hefði borgað hér þá á hann borga þann mismun í skatta á Íslandi
en ekki neitt umfram það þökk sé skattasamningi við Danmörku"

Ef að þú ætlar að reyna að komast hjá því að borga skattinn af þessu þá vil ég benda þér á það að Norðurlöndin, í gegnum Norrænu ráðherranefndina,
eru með mjög marga og víðtæka samninga um gagnkvæma upplýsingagjöf til að forðast skattsvik við fjöldann allan af löndum og að sjálfsögðu sín á milli.

Það skiptir líka núll máli hvaða skattalög eru í gildi hjá aðilanum sem að borgar þér, það sem að skiptir máli er hvar þú ert og hvaðan þú ert.