Síða 1 af 3

Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 16:35
af ORION
'LINKUR á þráð eftir mig ;)'

[-o<

Þetta er allt of ofarlega i google :sparka

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 16:39
af braudrist
Fyrsta sem poppar upp þegar maður gúglar nafninu þínu? :D

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 16:40
af tdog
Er ekki allt í lagi að þetta sé þarna inni, fólk verður bara að taka afleiðingum gjörða sinna. Og lifa með þeim.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 16:45
af ORION
tdog skrifaði:Er ekki allt í lagi að þetta sé þarna inni, fólk verður bara að taka afleiðingum gjörða sinna. Og lifa með þeim.

Annars held ég að það væri sniðugt að fjarlægja bara nafnið,

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 16:47
af dexma
Mér finnst frekar að það ætti að opna þráðinn sem þú skrifaðir um fbg hér fyrir ekki svo löngu, þráður sem hvarf mjög snögglega.

Þú virðist ekkert hafa lært :)

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 16:50
af ORION
dexma skrifaði:Mér finnst frekar að það ætti að opna þráðinn sem þú skrifaðir um fbg hér fyrir ekki svo löngu, þráður sem hvarf mjög snögglega.

Þú virðist ekkert hafa lært :)

Er betur settur akkúrat núna,frekar enn launalaus vinna hjá honum sem átti að endast að eilífu,
Nenni samt ekki að fara í þessa sálma...

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 18:52
af gardar
Hvað segirðu, hvenær fæ ég endurgreitt gallaða móðurborðið sem þú seldir mér og lofaðir að endurgreiða? :)

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 19:35
af vikingbay
gardar skrifaði:Hvað segirðu, hvenær fæ ég endurgreitt gallaða móðurborðið sem þú seldir mér og lofaðir að endurgreiða? :)

Hehe, djöfull ert þú brjálaður því þú fékst gallað móðurborð og ekki endurgreitt :lol:
Veit samt einhver hvernig þetta fór? Man hvað ég sat fastur yfir þessum þræði, það var eitthvað lúmskt spennandi við þetta :)

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 19:53
af rapport
Ég vil að allir svona þræðir verði fluttir á spes forum sbr. "Koníaksstofan" undir heitinu "Leiðarljós"...

Það getur verið svo goddamn erfitt að leita að sápunni hérna...

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 20:00
af Viktor
rapport skrifaði:Ég vil að allir svona þræðir verði fluttir á spes forum sbr. "Koníaksstofan" undir heitinu "Leiðarljós"...

Það getur verið svo goddamn erfitt að leita að sápunni hérna...

x2

Allir FBG þræðirnir um Buy.is og hans viðskiptahætti.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 20:48
af Gúrú
ORION skrifaði:
tdog skrifaði:Er ekki allt í lagi að þetta sé þarna inni, fólk verður bara að taka afleiðingum gjörða sinna. Og lifa með þeim.

Annars held ég að það væri sniðugt að fjarlægja bara nafnið,

Til þess að enginn viti að þú hafir gert þetta? [-X

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 20:55
af GuðjónR
Ég hefði nú bara sleppt því að vekja athygli á þræðinum, vissi ekkert af honum fyrr en ég las ábendinguna í upphafsinnlegginu :face

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 21:25
af ZiRiuS
GuðjónR skrifaði:Djöfull fara svona fávitar í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega þroskahamlað til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Verð nú að lýsa yfir óánægju minni varðandi þetta comment þitt Guðjón á þessum þræði og lýsir þetta algjörri vanþekkingu þinni á þroskahömluðu fólki... Ég veit að þetta er gamall þráður en ég bara vil að þetta komi ekki fyrir aftur, varð fyrir smá vonbrigðum þegar ég las þetta comment :(.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 21:26
af hagur
If you can't do the time, don't do the crime.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 21:27
af dori
rapport skrifaði:Ég vil að allir svona þræðir verði fluttir á spes forum sbr. "Koníaksstofan" undir heitinu "Leiðarljós"...

Það getur verið svo goddamn erfitt að leita að sápunni hérna...

Styð þessa tillögu.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:15
af Gúrú
ZiRiuS skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Djöfull fara svona fávitar í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega þroskahamlað til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Verð nú að lýsa yfir óánægju minni varðandi þetta comment þitt Guðjón á þessum þræði og lýsir þetta algjörri vanþekkingu þinni á þroskahömluðu fólki... Ég veit að þetta er gamall þráður en ég bara vil að þetta komi ekki fyrir aftur, varð fyrir smá vonbrigðum þegar ég las þetta comment :(.

Held að það sé engin illkvittni á bak við þetta í garð þroskahamlaðs fólks, meiningin á bakvið þetta er greinilega ekki sú að þroskahamlað fólk geri svona hluti oftar/frekar en aðrir. :)

Kannski hægt að lesa það þannig en ég held að enginn geri það nema sá sem að hefur ástæðu til að lesa slíkt út úr þessu (skil það að fólk sem að vinnur/umgengst slíkt fólk lesi þetta frekar þannig). :D

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:17
af gardar
vikingbay skrifaði:
gardar skrifaði:Hvað segirðu, hvenær fæ ég endurgreitt gallaða móðurborðið sem þú seldir mér og lofaðir að endurgreiða? :)

Hehe, djöfull ert þú brjálaður því þú fékst gallað móðurborð og ekki endurgreitt :lol:
:)

Getur þú sagt mér afhverju ég ætti ekki að fá endurgreitt? Tala nú ekki um þar sem maðurinn var búinn að fallast á að endurgreiða mér en hefur bara ekki staðið við það.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:22
af ZiRiuS
Gúrú skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Djöfull fara svona fávitar í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega þroskahamlað til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Verð nú að lýsa yfir óánægju minni varðandi þetta comment þitt Guðjón á þessum þræði og lýsir þetta algjörri vanþekkingu þinni á þroskahömluðu fólki... Ég veit að þetta er gamall þráður en ég bara vil að þetta komi ekki fyrir aftur, varð fyrir smá vonbrigðum þegar ég las þetta comment :(.

Held að það sé engin illkvittni á bak við þetta í garð þroskahamlaðs fólks, meiningin á bakvið þetta er greinilega ekki sú að þroskahamlað fólk geri svona hluti oftar/frekar en aðrir. :)

Kannski hægt að lesa það þannig en ég held að enginn geri það nema sá sem að hefur ástæðu til að lesa slíkt út úr þessu (skil það að fólk sem að vinnur/umgengst slíkt fólk lesi þetta frekar þannig). :D

Þetta er samt engu að síður eitthvað sem má passa í framtíðinni, auðvitað veit maður að Guðjón meinti þetta ekki illa en þá minni ég á málstækið "aðgát skal höfð í nærveru sálar".

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:29
af GuðjónR
ZiRiuS skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Djöfull fara svona fávitar í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega þroskahamlað til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Verð nú að lýsa yfir óánægju minni varðandi þetta comment þitt Guðjón á þessum þræði og lýsir þetta algjörri vanþekkingu þinni á þroskahömluðu fólki... Ég veit að þetta er gamall þráður en ég bara vil að þetta komi ekki fyrir aftur, varð fyrir smá vonbrigðum þegar ég las þetta comment :(.

Í hvaða samhengi og hvenær var það sagt??

Grafa þá og reykja þá og enda með því að éta þá með hinum þorramatnum.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:44
af ZiRiuS
GuðjónR skrifaði:

Þetta var sagt í þræðinum sem minnst er á efst í þessum þræði, á blaðsíðu 2 eða 3.

Borða þroskahamlaða eins og þorramat? Sloppinn í bjórinn? :D

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:47
af lukkuláki
ZiRiuS skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Djöfull fara svona fávitar í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega þroskahamlað til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Verð nú að lýsa yfir óánægju minni varðandi þetta comment þitt Guðjón á þessum þræði og lýsir þetta algjörri vanþekkingu þinni á þroskahömluðu fólki... Ég veit að þetta er gamall þráður en ég bara vil að þetta komi ekki fyrir aftur, varð fyrir smá vonbrigðum þegar ég las þetta comment :(.

Voðalega eru menn viðkvæmir ... maður segir nú ýmislegt og meinar ekki rassgat með því en áttar sig ekki á að maður getur móðgað með svona orðum.
Fínt hjá þér að koma þessu á framfæri.

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 22:57
af GuðjónR
Þetta var ekki ílla meint, hefði svo sem getað skrifað:
Djöfull fara svona aular í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega vangefið til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 23:01
af ZiRiuS
lukkuláki skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Djöfull fara svona fávitar í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega þroskahamlað til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Verð nú að lýsa yfir óánægju minni varðandi þetta comment þitt Guðjón á þessum þræði og lýsir þetta algjörri vanþekkingu þinni á þroskahömluðu fólki... Ég veit að þetta er gamall þráður en ég bara vil að þetta komi ekki fyrir aftur, varð fyrir smá vonbrigðum þegar ég las þetta comment :(.

Voðalega eru menn viðkvæmir ... maður segir nú ýmislegt og meinar ekki rassgat með því en áttar sig ekki á að maður getur móðgað með svona orðum.
Fínt hjá þér að koma þessu á framfæri.

Strákar þetta snýst ekki um viðkvæmni eða hvort að þetta sé djók eða ekki. Þetta er sagt á níðrandi hátt og það er það sem skiptir máli. Þetta er bara viðhorfsbreyting sem þarf og ekkert annað og vonandi er fólk hérna nógu þroskað til að átta sig á því.

GuðjónR skrifaði:Þetta var ekki ílla meint, hefði svo sem getað skrifað:
Djöfull fara svona aular í taugarnar á mér, fólk þarf að vera alvarlega vangefið til að halda að það komist upp með svona lagað.
Röfla svo um persónuvernd!

Guðjón ertu að grínast? Ég vona innilega að þú sért í glasi og meinir ekki það sem þú ert að láta út úr þér hérna á almannafæri?

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 23:15
af axyne
Nú spyr maður sem ekki veit, hver er munurinn á þroskahömluðum og þroskaheftum einstaklingi ?

Re: Nennir einhver að eyða þræði?

Sent: Lau 28. Jan 2012 23:15
af bulldog
það er ekki lengur talað um þroskaheft fólk heldur er orðið þroskahömlun notað. Svo getur þroskahömlun verið mismikil.