Síða 1 af 5
Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:00
af appel
Djfls rugl er þetta, ekki hægt að fara út og bara þú veist labba! Stórhríðir og asahlákur á víxl, með tilheyrandi ófærð fyrir allt og alla, og svo massív svell, polla og viðbjóð sem gerir þetta land bara ógeðslegt að búa á. Þetta er ekki bara búið að vera svona í nokkra daga, heldur tvo heila mánuði! Ekki hægt að ganga á göngustígunum, ekki hægt að hjóla, skokka, eða neitt.
Enginn annar kominn með nóg af þessu?
Eigum við ekki bara að reyna flýja þetta land á hlýrri staði með stöðugra veðurfar, og möguleiki á útiveru 99% tíma ársins frekar en 1% tíma ársins? Vá hvað maður er kominn með upp í kok. Skammdegi, bleyta, vindur, bla bla...
Allavega, skipið til Ameríku fer kl 9 í fyrramálið.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:13
af hagur
Þetta er bara fínt. Gerir vorið og sumarið bara ennþá yndislegra.
Glasið mitt er hálffullt btw.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:14
af Varasalvi
appel skrifaði:Djfls rugl er þetta, ekki hægt að fara út og bara þú veist labba! Stórhríðir og asahlákur á víxl, með tilheyrandi ófærð fyrir allt og alla, og svo massív svell, polla og viðbjóð sem gerir þetta land bara ógeðslegt að búa á. Þetta er ekki bara búið að vera svona í nokkra daga, heldur tvo heila mánuði! Ekki hægt að ganga á göngustígunum, ekki hægt að hjóla, skokka, eða neitt.
Enginn annar kominn með nóg af þessu?
Eigum við ekki bara að reyna flýja þetta land á hlýrri staði með stöðugra veðurfar, og möguleiki á útiveru 99% tíma ársins frekar en 1% tíma ársins? Vá hvað maður er kominn með upp í kok. Skammdegi, bleyta, vindur, bla bla...
Allavega, skipið til Ameríku fer kl 9 í fyrramálið.
Það er hægt að fá naggladekk á hjól
Edit: Ég hef farið til Ameríku, eða til að vera nákvæmari, ég hef búið í Bandaríkjunum. Þó veðrið sé betra þá get ég ekki sagt að það sé betra að búa þar. En það er bara mín skoðun
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:17
af noizer
Það var ekkert grín að labba heim úr ræktinni áðan. Gatan að húsinu mínu er aðeins upp í móti og hún er bara klaki, þurfti næstum því að skríða heim.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:23
af daniellos333
Gætiru verið aðeins meiri vælari? Það eru stærri vandamál en þetta.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:23
af axyne
hahaha fegin að missa af þessu ógeði, fellu nokkur snjókorn í vikunni og það er það litla sem ég hef séð af snjó hérna í köben.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:24
af Páll
Úff, gæti ekki verið meira sammála! Þoli ekki þetta rusl.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:26
af ASUStek
eg aejrgjr vbbararar byuinn awð fdrekka fpinnku io eg kbara lanbbba gheim
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:30
af info
daniellos333 skrifaði:Gætiru verið aðeins meiri vælari? Það eru stærri vandamál en þetta.
sammála, finnst ég alltaf vera að lesa frá þér eitthvað væl um ísland og hvað allt er vonlaust
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:38
af AronBjörns
Grasið er ekki alltaf grænna hinum megin!
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 00:57
af intenz
Já veðrið er einmitt það versta við þetta land.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 01:13
af Hjaltiatla
Fór að skokka í gær ,fannst það meira spennandi að þurfa að hoppa yfir nokkra skafla
En maður vill samt að sumarið fari að koma það er auðvitað lang skemmtilegasti tíminn.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 01:33
af AntiTrust
Meh, það er ekki eins og maður þurfi að labba mikið. Væri reyndar alveg til í að hafa svona vetur eins síðasta vikan var 4-5 mánuði á ári. Eina sem pirrar mig er bara hversu algengar þessar hitasveiflur eru orðnar.
Annars labba ég nú nánast daglega nokkra km með hundana burtséð frá veðri, maður hættir að pælí þessu svo lengi sem maður á nógu góð föt.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 01:37
af g0tlife
Hvað ertu búinn að búa hérna lengi á íslandi og þú ert að væla um þetta ? Heldiru að fólkið í grænlandi sé að væla útaf því að það sé svo mikill snjór þar ? Man þegar maður var yngri og maður þurfti að grafa sig út úr húsi. Ef þú meikar þetta land ekki þá endilega flytja til ameríku
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 01:47
af Jim
.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 01:54
af Frost
Mér finnst allt í lagi að hafa þennan snjó en um leið og það byrjar að rigna og snjórinn verður allur að slabbi þá fæ ég alvg upp í kok
Er orðinn fullsaddur af þessu slabbi og svelli...
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 02:08
af rapport
Málið er að þetta er normal vetur, góðærin undanfarin 15-25 ár hafa verið weird m.v. alla aðra sögu veðurathugana...
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 02:15
af tomasjonss
rapport skrifaði:Málið er að þetta er normal vetur, góðærin undanfarin 15-25 ár hafa verið weird m.v. alla aðra sögu veðurathugana...
já, þú meinar, svo veðurfarið árin á undan hefur þá líka verið bóla eins og í fjármálaheiminum.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 02:22
af kubbur
þetta er ekki beint skemmtilegt bíllaus með 2 börn
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 02:27
af ViktorS
Núna er einmitt gott að búa á Austurlandi.
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 03:42
af FuriousJoe
Þetta er hörmulegt fyrir þá sem vinna við atvinnuakstur, vörubílsstjórar, leigubílsstjórar o.s.f
Ég sjálfur er vörubílsstjóri og þetta getur verið hörmulegt á tímum, festa bílinn 4-7 sinnum á dag, keðja o.s.f... og alltaf á tíma og þvílík umferð í hákuni, þetta verður þreitandi...
Svo fyllist kassinn af snjó og klaka hvert sinn sem maður aflestar.... maður er alveg skautandi inní bílnum, berandi 300kg-1000kg út í fljúgandi hálku og ójöfnur sem geta valdið því að vörurnar hrinja á hliðina og allt útúm allt....
Vill sumar núna takk!
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 04:41
af Bjosep
appel skrifaði:VÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLL
Nagladekk á reiðhjólið og mannbroddar undir skónna. Ekki flókið mál. Var að koma heim úr bænum mökkölvaður á hjólinu, á nagladekkjum. Getur prufað að hringja í Bryndísi Gyðu Michelsen ef lífið er of flókið fyrir þig!
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 08:53
af elv
Kvarta yfir snjó...búandi á landi sem heitir Ísland.
Engin kaldhæðni í því.
Annars hef ég mjög gaman að snjó, verst er þegar rigningin kemur og allt fer í drullu....en snjór er góður
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 09:10
af Ulli
Helvíti fínt hérna í Germany. kaldasti dagurinn -6 um morgunin en er búið að vera sirka 5 stiga hiti á meðaltali.snjór í um...5 daga?
Er að koma vor
Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..
Sent: Lau 28. Jan 2012 09:43
af lukkuláki
Ég væri alveg til í að vera annarsstaðar (td. Spáni - Californiu) á meðan þetta veður er svona hérna.
En Ísland er og verður alltaf best í heimi ! Hversu ömurlegt sem það getur orðið þá er það tímabundið.
Það að geta ekki farið út að hjóla og labba háir mér líka en ég læt mig þó hafa það að fara þá í ræktina á meðan og lyfta handlóðum heima ámeðan
þetta gengur yfir og hlakka því meira til þess tíma sem ég mun geta verið úti að labba og hjóla í góða veðrinu og náttúrunni á Íslandi
Það versta við Ísland og það sem er að eyðileggja landið og búsetuna á Íslandi er spillingin og ógeðið í allri pólitík og á hæstu stöðum
þar eru menn nefnilega ekki að gera neitt til að tryggja og þróa framtíð landsins heldur er unnið hörðum höndum að tryggja sína eigin hagsmuni og sinna nánustu.