Síða 1 af 1
EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 16:45
af tdog
Jæja félagar.
Hvernig finnst ykkur Íslenska liðið vera að spila á mótinu, hvaða væntingar hafið þið og fylgist þið með mótinu?
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 16:53
af bulldog
Þetta var fyrsti leikurinn sem þeir spiluðu vel á mótinu í dag
held samt að spánverjar og frakkar vinni íslendinganna í næstu leikjum.
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 16:59
af BjarkiB
bulldog skrifaði:Þetta var fyrsti leikurinn sem þeir spiluðu vel á mótinu í dag
held samt að spánverjar og frakkar vinni íslendinganna í næstu leikjum.
Get nú ekki sagt að þeir spiluðu ílla í leiknum á móti Króatíu. En allavega frábær leikur í dag, vörnin, markfærslan og sóknin allt uppá tíu.
Svo hef ég fulla trú að þeir geta unnið næstu leiki, ef þeir spila eins og þeir gerðu í dag. Plús Frakkar hafa ekki staðið sig jafn vel og venjulega, svo nú er tíminn fyrir Íslendinga að svara fyrir sig og vinna þá!
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 17:19
af capteinninn
Síðasti leikur var alger hörmung eins og ég held að allir séu sammála um en mér sýndist í þessum leik þeir vera komnir aftur í gang.
Sá samt bara síðustu 20 mín eða svo.
En sjá off topic, veit einhver hvernig maður getur horft á leikina í iPad? Heyrði að þeir væru að vinna í að gera ruv.is síðuna iPad-væna en ekkert er komið enn.
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 17:25
af tdog
Ertu búinn að prufa m.ruv.is ?
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 17:27
af bulldog
Íslendingar unnu Frakka 32-24 árið 2007. Frakkar svöruðu svo fyrir það á Ól. þegar þeir unnu Íslendinganna í úrslitunum. Ég held að Ísland tapi báðum leikjunum sem eru eftir
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 19:19
af tdog
bulldog skrifaði:Íslendingar unnu Frakka 32-24 árið 2007. Frakkar svöruðu svo fyrir það á Ól. þegar þeir unnu Íslendinganna í úrslitunum. Ég held að Ísland tapi báðum leikjunum sem eru eftir
Ég held það nefnilega líka. Við komumst ekki upp úr milliriðlinum.
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 19:28
af vesi
vona samt að frakkar spili eins og þeir gerðu í kvöld, á móti okkur.. svona einusinni
Re: EM í handbolta
Sent: Sun 22. Jan 2012 19:41
af dexma
Vodafone segist streyma í pad.
http://www.vodafone.is/em/http://www.vodafone.is/em/index/live"Streymi er í boði fyrir hefðbundnar tölvur, lófatölvur (iPad) og snjallsíma (iPhone). Streymi okkar er því miður einungis aðgengilegt innanlands, vegna takmarkana á útsendsingarrétti."
hannesstef skrifaði:Síðasti leikur var alger hörmung eins og ég held að allir séu sammála um en mér sýndist í þessum leik þeir vera komnir aftur í gang.
Sá samt bara síðustu 20 mín eða svo.
En sjá off topic, veit einhver hvernig maður getur horft á leikina í iPad? Heyrði að þeir væru að vinna í að gera ruv.is síðuna iPad-væna en ekkert er komið enn.