Síða 1 af 1
ódýrustu bílaþrifin?
Sent: Þri 17. Jan 2012 15:07
af kizi86
ég leita hér til ykkar í sárri neyð..
fór loksins með bílinn á verkstæði eftir að hann hafi staðið hér á planinu í mestan part vetrar, og þegar hann fór á verkstæðið, tók ég eftir að það var komið fullt af myglublettum og öðrum viðbjóð inn í bílinn..
svo hér er spurningin, hvernig er best að losna við myglubletti í áklæðum og beltum, og hvar er ódýrast að fara með bílinn í alþrif?
Re: ódýrustu bílaþrifin?
Sent: Þri 17. Jan 2012 15:44
af vesi
ertu þá ekki frekar að leita meiri gæðum heldur en að spara nokkra þúsundkalla..
allavegana eithvað sem ég myndi spá í fyrst það er kominn mygla í bílin
Re: ódýrustu bílaþrifin?
Sent: Þri 17. Jan 2012 15:51
af berteh
Ef þú ert að spá í gæðum þá fær
http://glitrandi.is/ rosalega góð ummæli á bílaspjallsíðum landsins
Re: ódýrustu bílaþrifin?
Sent: Þri 17. Jan 2012 17:21
af g0tlife
það eru oft gæjar að auglýsa að þeir þrífi bíla og alltaf ódýrari en þessir staðir. Var hjá þannig manni í eitt ár, hann gerði allt sem hægt var að gera við bílinn fyrir bara 6 þúsund.
Re: ódýrustu bílaþrifin?
Sent: Þri 17. Jan 2012 17:28
af vesi
g0tlife skrifaði:það eru oft gæjar að auglýsa að þeir þrífi bíla og alltaf ódýrari en þessir staðir. Var hjá þannig manni í eitt ár, hann gerði allt sem hægt var að gera við bílinn fyrir bara 6 þúsund.
svo eru líka ennfleirri sem gera þetta illa fyrir skjótan aur, T,d bróðir minn fór með bílinn í alþrif og fékk hann til baka þolanlega hreinan fyrir utan tuskulufsur út um allan bíl og svarta bletti í topnum (eflaust eftir barkan á teppahreinsivélinni) sem voru ekki þar áður,, hann var heillengi að ná þessu úr,,
Re: ódýrustu bílaþrifin?
Sent: Þri 17. Jan 2012 17:34
af g0tlife
vesi skrifaði:g0tlife skrifaði:það eru oft gæjar að auglýsa að þeir þrífi bíla og alltaf ódýrari en þessir staðir. Var hjá þannig manni í eitt ár, hann gerði allt sem hægt var að gera við bílinn fyrir bara 6 þúsund.
svo eru líka ennfleirri sem gera þetta illa fyrir skjótan aur, T,d bróðir minn fór með bílinn í alþrif og fékk hann til baka þolanlega hreinan fyrir utan tuskulufsur út um allan bíl og svarta bletti í topnum (eflaust eftir barkan á teppahreinsivélinni) sem voru ekki þar áður,, hann var heillengi að ná þessu úr,,
Þegar þú ferð til þeirra þá ættiru að sjá hvort að þetta eru menn sem kunna þetta eða ekki. Ef þeir ætla nú bara að gera þetta úti á plani fyrir þig þá mundi ég sleppa því. Ef þú sérð að þeir eru með bílskúr og allar græjur í verkið þá ekki hika við það
BÆTT VIÐ: Fór í bílakjallarann í firðinum í nóvember, þeir gerðu allt nema sætin minnir mig á 6000-7000 kall. Var mjög ánægður með þá